Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 33

Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 33
Skilyrðing (classical conditioning), eftiröpun (modeling) og í þriðja lagi með kennslu eða með því að heyra um, lesa eða sjá atburði. Samkvæmt rannsókn frá 1981 virðast 58% verða fælnir við skilyrðingu, 17% með eft- iröpun og 10% með kennslu, en 15% mundu ekki hvernig fælni þeirra hafði byrjað.17 í fyrsta lagi má nefna sem dæmi um skilyrðingu að maður festist í lyftu og kemst ekki út fyrr en eftir tvo tíma. Við það magnast líffræði- leg viðbrögð hans verulega. Óþæg- indi og óvissa um hvenær hann losn- ar út verða allsráðandi. Með því einu að beina huganum að þvt' að festast í lyftu geta viðbrögðin orðið svipuð. Hræðslan við lyftur getur síðan breiðst út til fleiri aðstæðna svo sem að vera lokaður inni í her- bergi, ferðast með strætisvögnum, lestum og flugvél. Jafnvel getur ótt- inn breiðst út til annarra aðstæðna sem ekki er hægt að komast frá fyrir- varalaust, svo sem að sitja í stól hjá rakara, hárgreiðslukonu eða tann- lækni. í öðru lagi getur fælni lærst með eftiröpun og má til dæmis taka móð- ur sem fælist hunda eftir að hafa verið bitin á unga aldri. Þegar hún er á gangi með barn sitt og hundur verður á vegi þeirra hliðrar hún sér hjá hundinum með því að taka barn- ið í fangið og víkja úr vegi fyrir honum, fara yfir götu, inn í næsta hús, inn í búð eða eitthvað þess hátt- ar. Samfímis vakna lífeðlisleg við- brögð hennar. Barnið sem móðirin heldur þéttingsfast að barmi sér skynjar viðbrögð og spennu móður- innar. Þegar barnið eldist og fer að leika sér úti varar móðirin barnið við flækingshundum, þeir geti bitið og barnið geti fengið hundaæði. Þegar barnið er orðið sex til sjö ára segir móðirin því frá reynslu sinni er hún var bitin, hvað blæddi mikið, frá sársaukanum og þeim sárum sem af hlutust. Smám saman tileinkar barn- ið sér fælni móðurinnar. 1 þriðja lagi lærum við að fælast ákveðna hluti sem við sjáunt í dag- legu lífi, í sjónvarpi eða bíói, heyrum frásögn af eða lesum um að geti verið hættulegir. Meðferðin er oftast árangursrík Lengi var álitið að lítið væri hægt að bæta úr fælni með meðferð. Ný- legar rannsóknir hafa breytt þeirri skoðun. Fyrstur til að þróa áhrifa- ríka meðferð við fælni var Joseph Wolpe.18 Á sjötta áratugnum komst hann að því að hægt væri að gera hina fælnu ónæma fyrir þeim kring- umstæðum sem þeir óttuðust ef þeir væru fyrst þjálfaðir í slökun og væru síðan látnir takast á við vandamálið f huganum. Það er þversögn að fælni skuli geta lagast svo auðveldlega, vegna þess að án meðhöndlunar læsir hún helgreipum um mannsandann. Fælni er óttinn sem endurspeglar sjálfan sig. Sumir stika árum saman upp og niður stiga vegna þess að þeir óttast lyftur, en svo er þeim sama þó börn þeirra ferðist með lyftum. Meðferðin er í því fólgin að kenna skjólstæðingnum ný og betri við- brögð, ólík þeim sem hann áður hef- ur sýnt við aðstæður sem hann fælist. Þetta er gert til þess að hann hvorki dragi sig í hlé né flýi þær aðstæður sem hann óttast. Þeirri hegðun sem hafði verið lærð er breytt með því að fjarlægja þau áreiti sem halda hliðr- un við. Menn, líkt og dýr, hræðast yfir- leitt hið óþekkta. Það vita hesta- menn vel þegar þeir temja hesta. I stað þess að skella hnakk beint á hestinn og spenna hann á er hestur- inn smám saman vaninn við aukinn þunga þannig að fyrst er lagður strigapoki á bakið og svo koll af kolli uns hægt er að leggja við og að lok- um stíga á bak. Skjólstæðingurinn er hvattur til að æfa sig við þær aðstæð- ur sent hann óttast og til að komast að raun um að þær eru ekki eins slæmar og hann átti von á. Mark- miðið er að hann horfist í augu við þær kringumstæður sem hann skelf- ist og kynnist þeim án þess að afleið- ingarnar verði óþægilegar. Enn betra er að takast á markvissan og ánægjulegan hátt á við þessar að- stæður. Aðalmarkmið meðferðar er að skjólstæðingurinn fari á þann vettvang sem hann óttast og nálgist áreitið hægt en markvisst. Hvert skref fram á við í átt að áreitinu er tekið með hugarfari og afstöðu sem HEILBRIGÐISMAL 3/1984 33

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.