Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 17

Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 17
I öðru leyti eru tekjur af þjónustu- gjöldum o.fl. Ekki urðu breytingar á níu manna stjórn félagsins á þessum aðalfundi. Stjórnin hefur nú valið úr sínum hópi fjögurra manna framkvæmda- nefnd. Dr. Gunnlaugur Snædal er formaður, Hjörtur Hjartarson gjald- keri, Sigurður Björnsson ritari og Tómas Á. Jónasson varaformaður. Að loknum aðalfundinum fluttu yfirlæknar Leitarstöðvar, Frumu- rannsóknastofu og Krabbameins- skrár skýrslur um starfsemina og Sig- urður Árnason læknir flutti fræðslu- erindi um óbeinar reykingar og áhrif þeirra. Sunnudaginn 2. september var hið nýja hús til sýnis fyrir almenning. Starfsfólk Krabbameinsfélagsins sýndi húsið og fræddi um starfsem- ina. Pessa þrjá hátíðisdaga, frá föstu- degi til sunnudags, komu á annað þúsund gestir í húsið. -/>• Frá aðalfundi Krabbameinsfélags íslands sem haldinn var í nýja hús- inu hinn 1. september. í húsinu sem þjóðin gaí Ávaip Gunnlaugs Snædal fomanns Kiabbameinsfélagsins 1 íslandslýsingu Odds biskups Ein- arssonar frá sextándu öld er sagt að í þessu landi búi fólk sem er í eðli sínu hneigt til mannblendni, góðgerðar- semi, Ijúfmennsku og yfirleitt til allr- ar mannúðar. Þessir kostir komu greinilega í ljós haustið 1982 þegar „Landsráð gegn krabbameini" beitti sér fyrir söfnun til þess að gera Krabbameinsfé- laginu kleift að eignast nýtt húsnæði. Á fjórða þúsund manns söfnuðu rúmum þrettán milljónum króna á einum degi, og sló það öll met. Söfn- un meðal fyrirtækja og félaga árið eftir skilaði einnig stórkostlegum ár- angri. Með þessum söfnunum og sölu á eignunum í Suðurgötu flytur Krabbameinsfélagið nú í þetta hús, er við opnum í dag, skuldlaust. Við höfum sagt að þetta sé húsið sem þjóðin gaf. Hún gaf Krabbameinsfé- laginu þetta hús en einnig sjálfri sér, því að allt það starf sem hér fer fram er unnið í hennar þágu. Krabbameinsfélagið þakkar af al- hug þá velvild er allar þessar gjafir bera vott um. En vandi fylgir veg- semd hverri. Ég vænti þess að fé- lagið launi gefendunum með þrótt- miklu starfi er sýni marktækan ár- angur í þeirri baráttu er háð verður á komandi árum. íslenska þjóðin hefur sýnt það að hún getur sigrast á ýmsum vanda- málum. Baráttan við holdsveikina, berklaveikina og fleiri sjúkdóma eru dæmi um þetta. Vilmundur Jónsson landlæknir gat þess í tímaritsgrein fyrir fjörutíu árum að góð raun berklavarnanna vekti menn til um- hugsunar um hvort ekki mundi henta að beita svipuðum vinnu- brögðum við aðra sjúkdóma, fyrst og fremst krabbamein. Nú eru liðin tuttugu ár síðan skipuleg leit að leg- hálskrabbameini hófst hér á landi. Sú starfsemi hefur sannað gildi sitt svo að athygli hefur vakið víða um heim. Á þessari braut viljum við halda áfram. Ég trúi því að við Is- lendingar getum lagt þung lóð á vog- arskálarnar í rannsóknum á eðli og orsökum krabbameina. Með bættri aðstöðu mun starf félagsins eflast mjög á næstu mánuðum og árum. Ég vil að lokum endurtaka þakk- læti Krabbameinsfélagsins til allra þeirra sem hafa gert okkur kleift að flytja í þetta glæsilega hús. Megi gæf- an vera okkur hliðholl hér eftir sem hingað til. L HEILBRÍGBISMÁL 3/1984 17

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.