Heilbrigðismál - 01.06.1987, Blaðsíða 5
HEJLBR/GÐ/SMÁJ. Gunnar H. Ingimundarson
Nær áttatíu heilsugæslustöðvar
Nú eru 79 heilsugæslustöðvar á
landinu, 74 utan höfuðborgarinnar
og 5 í Reykjavík og framkvæmdir
hafnar við þá sjöttu (við Vestur-
götu). Af þessum fjölda eru 33 svo-
nefndar H2-stöðvar en þar starfa
tveir eða fleiri læknar, auk annars
starfsliðs svo sem hjúkrunarfræð-
inga, 19 eru Hl-stöðvar þar sem
einn læknir starfar, og 27 eru H-
stöðvar en þar starfar hjúkrunar-
fræðingur eða ljósmóðir en læknir
hefur móttöku reglulega.
Á árinu 1986 var opnuð ný heilsu-
gæslustöð Hlíðasvæðis í Reykjavík
og tekið í notkun nýtt húsnæði fyrir
heilsugæslu á Hofi í Öræfum, í
Ólafsvík og í Reykjahlíð í Mývatns-
sveit. í Sandgerdi var keypt hús og
tekið í notkun. í byrjun árs 1987 var
vígð heilsugæslustöð á Seydisfirdi.
í fjárlögum fyrir árið 1987 er
heimilað að kaupa húsnæði fyrir
heilsugæslustöðvar á Borgarfirði
eystra, á Flateyri og í Vogum á
Vatnsleysuströnd. Nýlega hefur
verið keypt hús fyrir heilsugæslu á
Eyrarbakka og er verið að breyta
því.
Þá verður á þessu ári unnið við
nýbyggingar heilsugæslustöðva á
nokkrum stöðum. Stefnt er að því
að heilsugæslustöðin við Hraun-
berg í Reykjavík verði fokheld á ár-
inu. Unnið veröur áfram við nýtt
hús heilsugæslunnar á Akranesi. í
Stykkishólmi er verið að byggja við
sjúkrahúsið, m.a. fyrir heilsu-
gæslu. Á Blönduósi er fokheld við-
bygging við héraðshælið, þar sem
heilsugæslu er ætlaður staður, og
verður unnið við þá byggingu í ár
eftir nokkurt hlé. Húsnæði heilsu-
gæslunnar á Akureyri verður aukið
og endurbætt á árinu. Á Húsavík
verður haldið áfram með viðbygg-
ingu við sjúkrahúsið þar sem
heilsugæsla fær inni. í fyrra var
unnið fyrir um níu milljónir króna
við nýtt hús fyrir heilsugæslu á
Þórshöfn og verður haldið áfram á
þessu ári. Nú er verið að reisa 340
fermetra hús fyrir heilsugæslu á
Djúpavogi og verður sú bygging
fokheld í haust. Líkiegt er að á
þessu ári verði hafnar framkvæmd-
ir við heilsugæslustöð í Þorláks-
höfn, en hún verður byggð eftir
sömu teikningu og stöðin á Vopna-
firði. Lokið er við að steypa upp 650
fermetra hús fyrir heilsugæslu við
Sólvang í Hafnarfirði og átti það að
verða tilbúið undir tréverk í vor.
Eins og sést á þessari upptalingu
má vænta úrbóta í húsnæðismálum
margra heilsugæslustöðva á þessu
ári. - jr.
Heimildir:
Fjárlög fyrir áriö 1987.
Upplýsingar frá Ingibjörgu R. Magn-
úsdóttur deildarstjóra í heilbrigdis- og
tryggingamálaráðuneytinu.
HEILBRIGÐISMÁL 2/1987 5