Heilbrigðismál - 01.06.1987, Síða 13
HEff.BRIGÐÍSMÁJ. / Eggert Pétursson / Helgi Guðbergsson
blóðrennsli um vöðva sé ein af
grundvallarorsökum vöðvagigtar.
Nefna má að þungur og þröngur
fatnaður getur truflað blóðrennsli.
Önnur orsök verkja eru ýmiss kon-
ar áverkar eftir högg, tognanir og
örlitlar rifur eða slit í vöðvavef
vegna ofreynslu. Eftir skemmd á
vöðva hefst viðgerð, en hún tekur
nokkurn tíma. Á meðan minnkar
kraftur vöðvans og þar með geta til
áreynslu. Eftir áreynslu þurfa
vöðvafrumurnar eða þræðirnir að
ná efnajafnvægi að nýju. Vöðvarnir
þurfa hvíld.
Vöðvaspetma knýr vítahring vöðva-
gigtar. Hringinn þarf venjulega að
rjúfa á mörgum stöðum með hitameð-
ferð, slökun, æfingum, lyfjum og
fleiru. Svo á að hindra að hjólið byrji
aftur að snúast.
Álag og áverkar
Álagsþættir eru gjarnan bundnir
atvinnu, heimavinnu sem annarri
vinnu, en einnig íþróttum. Tíðni,
stefna og lengd hreyfinga og kraft-
urinn sem beitt er hverju sinni
skipta máli. Mikilvæg atriði eru
hvíldarmynstur og það hve lengi
vöðvi er hafður samandreginn án
slökunar, hvort sem áreynslan er
mikil eða lítil, sérstaklega þegar
engin hreyfing á sér stað um leið.
Vöðvaspenna fylgir mjög mörg-
um störfum í nútímaþjóðfélagi vél-
væðingar og kyrrsetu. Oft er bein-
línis um rangar vinnustellingar að
ræða, en ekki er alltaf hægt að lýsa
vinnustellingunum sem röngum
þótt starfinu fylgi vöðvaspenna og
hreyfing sé lítil.
Titringur verkfæra og kuldi eða
kæling vegna dragsúgs valda oft
vöðvaspennu og einnig samdrætti í
æðum, og þar með minnkuðu blóð-
flæði. Ef tíðar, langar eða áreynslu-
frekar hreyfingar eru gerðar á sama
tíma verður blóðflæði til vöðvans
minna en ella og afleiðingin er verk-
ur. Stöðug vöðvaspenna er verst.
Hún hefur í för með sér minna blóð-
streymi um æðar vöðvans þrátt fyr-
ir aukna þörf fyrir súrefni og nær-
ingu svo og brottflutning úrgangs-
efna.
Áverkar flokkast vitanlega undir
álag og þótt vissir einstaklingseig-
inleikar finnist fremur meðal þeirra
sem verða fyrir slysum en hinna
sem sleppa, er þó ekki hægt að kalla
slys einstaklingsbundin. Umhverf-
ið ræður oft miklu um áverka:
Manni skrikar fótur á hálu gólfi
með byrði í fangi og fær hnykk á
bakið. Hnykkur kemur á háls bíl-
stjóra og farþega við aftanákeyrslu.
Menn reka sig á o.s.frv.
V ítahringur
Áverkar geta oft verið upphaf
gigtverkja. Lítill áverki sem fólk
Af meðfylgjandi súluriti sést hvernig
10% af mismunandi'heildarstyrkgefur
mismunandi „þöskuldsvöðvastyrk". A
og B geta verið vöðvar tveggja manna
eða tveir vöðvar eða tvö vöðvakerfi hjá
sama manni. Lárétta brotalínan táknar
afl sem nota þarf að staðaldri við til-
tekna vinnu. A þreytist ekki en B þreyt-
ist og verður aumur.
VÖÐVASTYRKUR
A
B
VÍTAHRINGUR VÖÐVAGIGTAR
SJÚKDÖMUR
AVERKI
\
VERKUR
STlFNI
STIRÐLEIKI
MINNKAÐ
BLÖD—
FLÆÐI
VÖDVA—
SLAPPLEIKI
tl V
SJÚKDÖMAR ^VÖÐVASPENNÁ
t
REYK'NOAR STRESS
TAUGASPENNA
KVlÐI
SVEFNTRUFLUN
\\
ÞREYTA
ÞUNGLYNDI
MARGVlSLEGT
ALAG
HEILBRIGÐISMÁL 2/1987 13