Heilbrigðismál - 01.06.1987, Page 28
og á öörum sviðum þjóðlífsins.
Fundurinn telur að hver einstakl-
ingur skuli án tillits til búsetu eða
efnahags eiga kost á bestu fáanlegu
heilbrigðisþjónustu og frelsi til að
velja það form þjónustunnar sem
hentar honum best. Fundurinn
fagnar þeim árangri sem náðst hef-
ur á undanförnum árum enda njóta
íslendingar nú aðbúnaðar í heil-
brigðismálum sem er með því besta
sem gerist. Mannfjöldaþróun mun
leiða af sér auknar kröfur á hendur
heilbrigðisþjónustunni og því er
brýnt að nýta vel þá fjármuni sem
til ráðstöfunar eru. Þessu markmiði
á að ná með valddreifingu þar
sem fjárhagsleg og stjórnunarleg
ábyrgð fer saman. Forðast ber mið-
stýringu sem fyrr eða síðar hlýtur
að leiða til verri og dýrari þjónustu.
Fagleg valddreifing er ekki síður
nauðsynleg hér en annars staðar.
í samræmi við ofanritað telur
fundurinn varhugavert að sameina
spítala landsins undir eina stjórn.
Með því eykst hætta á miðstýringu
verulega og of mikið faglegt vald
kynnni að vera lagt í hendur fárra
aðila. Ekki hefur verið sýnt fram á
að með því náist sú hagkvæmni í
rekstri sem að er stefnt. Hag-
kvæmni getur jafn vel náðst með
minni rekstrareiningum, eðlilegu
samstarfi og verkaskiptingu sem
þróast hefur undanfarin ár. Hæfi-
leg samkeppni og metnaður fyrir
hönd hverrar stofnunar tryggir
einnig nauðsynlegan samanburð.
Landsfundur ítrekar að nauðsyn-
legt er að raunhæfur samanburður
sé gerður á sambærilegri þjónustu
sjúkrahúsa og annarra heilbrigðis-
stofnana, bæði hvað varðar kostn-
að og gæði þjónustunnar. Leitað
verði leiða til að efla verðskyn neyt-
enda og starfsfólks í heilbrigðis-
þjónustunni. Nauðsynlegt er að
sett verði á stofn hagdeild sem safni
saman og vinni úr upplýsingum
fyrir þá sem um heilbrigðismál
fjalla, þannig að ákvarðanir séu
teknar á traustari forsendum en nú
er. Ekki er nauðsynlegt að ríkið
sjálft reki þjónustuna þótt greitt sé
fyrir hana úr sameiginlegum sjóð-
um, en eftirlit með öllum rekstri er
nauðsyn.
Gera þarf langtímaáætlanir í
heilbrigðisþjónustunni með það
markmið í huga að sem bestur
árangur náist með því fjármagni
sem ætlað er til fjárfestinga. Fram-
fylgja þarf ákvörðunum um upp-
byggingu fullkominna deilda-
skiptra sjúkrahúsa í hverjum lands-
fjórðungi og eðlilegur fram-
kvæmdamáti tryggður.
Með tilliti til verulegrar fjölgunar
aldraðra á næstu árum leggur
landsfundurinn áherslu á mikil-
vægi aukinnar þjónustu við aldraða
í heilbrigðiskerfinu. Leita verður
allra leiða sem tryggt geta öryggi og
hag hinna öldruðu svo sem með að-
stoð í heimahúsum, dagdeildum,
dvalarheimilum og hjúkrunar-
heimilum, þannig að aldraðir eigi
jafnan kost á þeirri þjónustu sem
best hentar. Með fjölbreyttum úr-
ræðum þarf að virkja framtak ein-
staklinga og félaga við uppbygg-
ingu og rekstur þessara stofnana.
Fagnað er auknum framlögum í
framkvæmdasjóð aldraðra.
Hvatt er til aukinna aðgerða í
þágu fatlaðra, m.a. með auknum
upplýsingum um réttindi þeirra,
uppbyggingu framkvæmdasjóðs,
stofnun sambýla, ráðstöfunum til
endurhæfingar og atvinnuþátttöku
án þess að réttindi glatist meðan á
aðlögunartíma stendur. Hugað
verði sérstaklega að lífeyrisréttind-
um öryrkja.
Fundurinn lýsir yfir áhyggjum
28 HEILBRIGÐISMÁL 2/1987