Heilbrigðismál - 01.06.1987, Síða 30
fyrir aldraða og aukinni heimilis-
þjónustu fyrir þá.
6. Sköpuð aðstaða fyrir aukna end-
urhæfingarstarfsemi og hlúð að
sjúkraþjálfun.
7. Byggð upp geðdeild Landspítal-
ans og mörkuð stefna í geðheil-
brigðismálum.
8. Sett lög um hollustuvernd, sem
er heilstæðasta mengunarlöggjöf
landsins.
9. Undirbúin lög um tóbaksvarnir.
10. Stuðlað að betri kjörum heil-
brigðisstétta en verið hafa nú á
undanförnum árum.
En verkefnin sem bíða eru hróp-
andi í himininn eftir sem áður og
þessi helst:
1. Tryggja verður að allir eigi jafn-
an aðgang að bestu heilbrigðisþjón-
ustu sem völ er á hér á landi. Að
undanförnu hafa komið fram þau
sjónarmið að leggja eigi á sjúklinga-
skatta. Því höfnum við.
2. Tryggja ber framkvæmd heilsu-
gæslulaganna um land allt, en í
Reykjavík hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn framlengt úrelt og gamalt kerfi
allt til þessa dags með bráðabirgða-
ákvæðum í lögum ár eftir ár.
3. Tryggja verður betur fram-
kvæmd laga um málefni aldraðra.
4. Gera ber áætlun um fram-
kvæmdir í heilbrigðismálum til
aldamóta með sundurliðun fyrir
svæði og einstaka þjónustuþætti.
5. Leggja ber áherslu á að auka
verulega, margfalda, fjármuni til
forvarnarstarfs.
6. Bæta verður aðstöðu heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytisins til
þess að hafa raunverulega yfir-
stjórn á hendi, meðal annars að því
er varðar rekstur sjúkrahúsa. Var-
ast ber vaxandi tilhneigingu til þess
að leggja fagráðuneytin undir fjár-
málaráðuneytið í einu og öllu.
7. Þjóðnýta á Iyfjaverslunina og
tengja hana heilsugæslustöðvun-
um. Lyfjaverslun ríkisins verði
undir heilbrigðisráðuneyti.
8. Tannlækningar verði teknar inn
í tryggingakerfið og verði fyrsta
skrefið 25% greiðsla allra tann-
læknareikninga. Jafnframt verði
haldið áfram þróun þeirrar tann-
verndarstefnu sem mörkuð var í
heilbrigðisráðuneytinu 1982 og
1983.
9. Lokið verði við K-byggingu
Landspítalans eins hratt og mögu-
legt er.
10. Unnið verðiskipulegaaðþvíað
bæta kjör heilbrigðisstétta, það er
þeirra starfshópa sem hafa lökust
kjörin og búa við mest vinnuálag.
s
Borgaraflokkurinn
Úr „Stefnuskrá Borgaraflokksins fyrir
alþingiskosningar 25. apríl 1987":
Ýtrasta áhersla verði Iögð á full-
komna heilsugæslu og heilsu-
vernd, m.a. með skipulögðum fyr-
irbyggjandi aðgerðum.
Gæta skal fyllstu hagsýni við
byggingu sjúkrahúsa, heilsugæslu-
eða endurhæfingarstöðva. Slíkum
stofnunum verði gert kleift að
starfa á sjálfstæðum grundvelli.
Umhyggja fyrir mannlegu lífi,
gagnstætt eyðingu þess, er æðsta
markmið góðrar ríkisstjórnar. Því
mun Borgaraflokkurinn beita sér
fyrir því að sett verði ný Iöggjöf um
fóstureyðingar og ófrjósemisað-
gerðir og fræðsla þar að lútandi
verði aukin. Borgaraflokkurinn
mun leggja áherslu á að leysa fé-
lagsleg vandamál vegna barneigna
og stórauka aðstoð við einstæða
foreldra. Löggjöf um fæðingarorlof
verði í stöðugri endurskoðun.
Borgaraflokkurinn vill tryggja
V
30 HEILBRIGÐISMÁL 2/1987