Heilbrigðismál - 01.03.1989, Page 6
IRLIT RlKISINS O.FL. / Búi
Bakverkur
Lagast oft án meðferðar
en er þjóðfélaginu dýr
Talið er að um 80% fólks á Vest-
urlöndum og í öðrum tæknivædd-
um iðnríkjum heims fái bakverki
einhvern tíma á lífsleiðinni. Al-
gengast er að verkir þessir séu frá
mjóbaki. Fæstir eru lengi óvinnu-
færir en þó lætur nærri að tíundi
hluti fjarvista frá vinnu vegna veik-
inda sé vegna ýmiss konar bak-
veiki. Pá mun fimmtungur allra
heimsókna til heilsugæslulækna og
heimilislækna vera vegna sjúk-
dóma eða verkja í stoðkerfi og
nærri helmingur þeirra stafar frá
baki.
í sumum tilvikum lagast bak-
verkur á einni til tveim vikum og
þrír af hverjum fjórum sem fá bak-
verki eru orðnir góðir innan mán-
aðar, með eða án meðferðar. Af
þeim sem eftir eru lagast margir
innan þriggja mánaða á sama hátt.
Eftir standa þó 5-10% sem hafa
viðvarandi bakverki.
Algengt vandamál
Nýlega lét Vinnueftirlit ríkisins
gera athugun á einkennum frá
hreyfi- og stoðkerfi meðal úrtaks
íslendinga á aldrinum 16-65 ára.
Grein eftir Gísla Einarsson
Niðurstöður þessarar könnunar
voru birtar í Læknablaðinu haustið
1988. Meðal annars kom þar fram
að 56% karla í öllum aldursflokk-
um höfðu haft mjóbaksverki ein-
hvern tíma síðastliðna tólf mánuði
áður en könnunin var gerð. Hjá
konum var þessi tala 65%. Um
25% karla og 36% kvenna höfðu
haft einkenni frá mjóbaki síðast-
liðna sjö sólarhringa. Um 13%
karla og 18% kvenna höfðu verið
frá vinnu síðastliðna tólf mánuði
vegna verkja í mjóbaki. Af þessum
tölum má draga þá ályktun að
óþægindi frá hreyfi- og stoðkerfi
virðast vera mjög algeng hjá ís-
lendingum og hafa veruleg áhrif á
vinnufærni þeirra.
Mjóbaksverkir eru minnst áber-
andi í yngstu aldursflokkunum,
Rétt líkamsbeiting er mikilvæg til
að reyna að forðast óþarft álag á
liði og vöðva. Þessar teikningar
eru úr nýju fræðsluriti Vinnueftir-
lits ríkisins og sýna hvemig hægt
er að lyfta hlut án þess að reyna of
mikið á bakið.
þ.e. frá 16 ára aldri, tíðnin vex síð-
an hratt fram til 40-44 ára aldurs
þar sem hún er hæst. Hugsanlegar
ástæður þess að mjóbaksverkir eru
algengir hérlendis eru taldar lang-
ur vinnudagur, slæmar vinnuað-
stæður, streita og köld veðrátta.
Dýr verknr
Erlendar rannsóknir sýna hve
gífurlegt þjóðfélagsvandamál er
um að ræða. í kanadískri rannsókn
kom fram að af heildarkostnaði
vegna fjarveru frá vinnu vegna
sjúkdóma voru 14% vegna bak-
veiki. Mestur hluti þess var kostn-
aður vegna tryggingabóta. Um
70% allra bakverkja í þessari rann-
sókn voru mjóbaksverkir.
Svíar hafa áætlað að heildar-
kostnaður þjóðfélagsins vegna
bakverkja nemi meira en 50 mill-
jörðum sænskra króna árlega (sem
gæti samsvarað 12 milljörðum ís-
lenskra króna hér á landi). Munar
hér mest um vinnu- og fram-
leiðslutap vegna fjarveru bak-
veikra.
Lengi var talið að vandamál
vegna bakverkja stöfuðu af sliti við
6 HEILBRIGÐISMAL 1/1989