Heilbrigðismál - 01.03.1989, Blaðsíða 19

Heilbrigðismál - 01.03.1989, Blaðsíða 19
JGEXSMAL / Ljiismyndjnnn (Jóhannes Long) Gervigangráðir í hjarta Hafa bætt og lengt líf margra Islendinga síðasta aldarfjórðunginn Grein eftir Arna Kristinsson Leiðslukerfi hjartans. í árdaga þurfti frummaðurinn að geta þraukað fimbulvetur án þess að hafa mikið að bíta og brenna og þurfti því að hægja á líkamsstarf- seminni. Einnig varð hann að geta tekið viðbragð og flúið villidýr merkurinnar á miklum hraða. Til að geta þetta þurfti hjartsláttar- hraði hans ýmist að vera ofurhæg- ur eða mjög hraður. Þá þróaðist í hjartanu bráðsnjallt rafkerfi sem heilinn stýrir með ósjálfráða tauga- kerfinu. Stjórnandi þessa rafkerfis í hjartanu heitir gangráður, hann ákveður hjartsláttarhraðann og frá honum berast boð eftir rafleiðslum og valda samdrætti hjartavöðvans. Gangráðurinn er sjálfvirkur og er hjartsláttarhraði í hvfld við fæð- ingu um 120 slög á mínútu, en verður helmingi hægari þegar ald- ur færist yfir. Heilinn getur bæði hert á og hægt þennan sjálfvirka boða. Rafboð berast frá gangráðn- um efst í hjartanu, fyrst um gáttir (forhólf) en síðan um slegla (aftur- hólf) sem dæla blóði út um allan líkamann. Hjartsláttarhraði í hvíld er við fæðingu um 120 slög á mín- útu, en verður helmingi hægari þegar aldur færist yfir. Gangráðsveiklun og leiðslu- truflanir. Einstaka barn fæðist með galla í leiðslukerfi hjartans, en langoftast er um að ræða hrörnun- arsjúkdóm sem kemur á efri árum. Leiðslutruflanir eru í meginatrið- um tvenns konar, bilun í gangráði eða truflun í leiðslukerfi. Afleið- ingin er stöðvun hjartsláttar eða mjög hægur hjartsláttur. Stöðvun hjartsláttar í örfáar sekúndur veld- ur yfirliði, en getur einnig lýst sér sem svimi eða magnleysi ef hjarta- stöðvun stendur skemur. Við rof í leiðslu í hjarta verður taktur lötur- hægur, stundum 20 til 30 slög á mínútu. Það veldur yfirliðum, magnleysi og mæði. Gervigangráðir. Til að ráða bót á gangtruflunum hafa verið gerð sér- stök tæki, gervigangráðir. Þetta eru flókin tæki, drifin af rafhlöð- um. Nú er rúmur aldarfjórðungur frá fyrstu gangráðsígræðslunni en hún var framkvæmd í Stokkhólmi og er sá sjúklingur ennþá lifandi. Geimferðirnar hafa valdið byltingu í búnaði gangráða. Stærðin var áð- ur eins og hnefi manns en er nú sem eldspýtnastokkur. Rafhlöður í gervigangráðum endast nú í sex ár en entust áður aðeins í sex mán- uði. Leiðslurnar brotnuðu oft áður fyrr, en bregðast nú varla. ígræðsl- an fer fram með staðdeyfingu í húð. Rafleiðslu er rennt eftir bláæð inn í hjartað. Fylgst er með ferð Ieiðslunnar á sjónvarpsskermi, við gegnumlýsingu. Leiðslunni er komið fyrir inni í viðeigandi hjarta- hólfi og ýmsar mælingar fram- kvæmdar. Þá er búinn til vasi fyrir gangráðinn undir húð sjúklings framan á brjóstvegg og rafleiðslan Fyrstu gervigangráðirnir voru mun stærri en þeir sem nú er farið að nota. Gangráðurinn er settur undir húð framan á brjóstvegg og leiðslur liggja eftir bláæð inn í hjartað. 1 18 HEILBRIGÐISMÁL 1/1989 tengd við hann. Sjúklingar þurfa að vera á sjúkrahúsi fáeina daga til ígræðslu gervigangráðs. Síðan er gangráðurinn mældur tvisvar á ári. Þegar sést að rafhlaðan er að tæm- ast er skipt um gangráð með því að spretta upp örinu yfir vasanum, leiðslan losuð frá gamla gangráðn- um og skrúfuð í nýtt tæki. Einfaldir og flóknir gangráðir. Gervigangráðir í hjarta eru mis- flóknir. Einföldustu gangráðir eru tengdir hjartanu með einni leiðslu inn í hægri slegil. Þeir hlera takt hjartans og grípa aðeins í taumana ef takturinn verður of hægur. Þá senda þeir rafboð inn í hjartað og valda samdrætti. Flóknari gervi- gangráðir geta hert á hjartsláttar- hraðanum í samræmi við þarfir lík- amans, eins og hinn náttúrulegi gangráður gerir. Eru þá tvær leiðsl- ur tengdar inn í hjartað, önnur í gátt og hin í slegil, og geta báðar hlerað taktinn og hottað á hólfin í réttri röð. Afköst hjartans aukast mun meira við áreynslu þegar þessir gangráðir eru notaðir og sjúklingarnir geta gert meira og þeim líður betur. Gangráðina má stilla á ýmsan hátt og einnig fá frá þeim upplýsingar. Raflostsgangráðir. Hér að fram- an hefur verið lýst gangráðum til að herða á hjartsláttarhraðanum. En einnig eru til gangráðir sem hlera sjúklegar, hraðar hjartsláttar- truflanir og stöðva þær með raf- boðum. Við sérstakar aðstæður getur verið mikil hætta á skyndi- dauða vegna takttruflunar sem kallast sleglaflökt. Þetta má hindra með ígræðslu raflostsgangráðs. Þessi meðferð er þó tæpast búin að slíta barnsskónum en á vafalítið mikla framtíð fyrir sér. Gangráðir framtíðarinnar. Nú þegar eru framleiddir gangráðir sem nema ýmsa starfsemi líkam- ans, hreyfingu, hita, súrefnisbú- skap o.fl. og breyta hjartslætti í samræmi við það. Framtíðargang- ráðir verða tengdir tveimur hjarta- hólfum. Þeir munu nema starfsemi líkamans og líkja þannig eftir boð- um þeim sem berast í heilbrigðum líkama til hjartans og fá það til að slá með réttum hraða. Fyrstu íslensku sjúklingarnir voru sendir til Danmerkur til ígræðslu hjartagangráðs fyrir 25 ár- um, en síðustu tvo áratugi hafa þessar aðgerðir verið framkvæmd- ar hér heima. Árlega fá um 40 ís- lenskir sjúklingar gervigangráð. Flestir þeirra eru sjötugir eða eldri, bæði konur og karlar. Nú ganga um fjögur hundruð íslendingar með gervigangráð, og hafa sumir haft hann á þriðja áratug. Um helmingur sjúklinga með rof í hinu náttúrulega leiðslukerfi deyr innan tveggja ára ef þeir fá ekki meðferð, en með gervigangráð hafa menn eðlilegar lífshorfur. Flestir eru með einfaldari gerð gangráða en brátt kemur að því að nær allir fái tveggja hólfa gangráð eða gangráð sem breytir hraða eftir þörfum hverju sinni. Árni Kristinsson er sérfræðingur í lyflækningum og hjartalækningum og er yfirlæknir á Landspítalanum. Með gervigangráð í mörg ár Eins og fram kemur í grein- inni eru nú um fjögur hundruð manns hér á landi með gervi- gangráð. Fyrsti íslendingurinn sem fékk slíkan gangráð var Hörður Gestsson sem gekkst undir aðgerð í Árósum í febrúar 1963, en hann er látinn fyrir fá- um árum. Helga Valdimarsdóttir, sem nú er 73 ára, var sennilega næst í röðinni. Helga hafði lengi verið heilsulítil. Fyrir um 22 árum var hún lögð inn á sjúkrahús vegna bakveiki og þá uppgötvaðist að hjartsláttur hennar var mjög hægur. Hún var send í skyndi til Árósa í gangráðsaðgerð sem tókst vel. „Eftir það hefur mér liðið miklu betur," sagði Helga. Skipt hefur verið um gangráð nokkrum sinnum, fyrst nokkuð þétt og síðast í fyrra en þá hafði hann enst í átta ár. Þegar Helga var spurð hvort hún myndi ráð- leggja fólki að fá gervigangráð, ef það þyrfti á honum að halda, svaraði hún: „Já, ef það langar að lifa." Óli M. ísaksson hefur verið með gervigangráð í sjö ár og fékk hann eftir að hann hafði verið fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahús nokkrum sinnum. Síðan hefur honum liðið vel, hann hefur getað unnið alla venjulega vinnu og er enn í starfi þó hann sé orðinn 91 árs. Óli fer í skoðun á þriggja mán- aða fresti og þá er styrkur raf- hlöðunnar mældur, en ekki hefur þótt ástæða til að skipta um gangráð. „Ég veit ekkert af þessu tæki og það háir mér ekki á nokkurn hátt," sagði Óli, en þess má geta að hann er mikill hestamaður. -/>• HEILBRIGÐISMÁL 1/1989 19

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.