Heilbrigðismál - 01.03.1989, Page 7

Heilbrigðismál - 01.03.1989, Page 7
HEILBRJGÐISMÁL / Ljósmyndarinn (Jóhannes Long) erfiðisvinnu en hins vegar hefur komið í Ijós að þrátt fyrir mikla fækkun líkamlega erfiðra starfa í öllum iðnaðarþjóðfélögum hafa bakvandamál aukist. Pví er tæpast einungis um slitvandamál að ræða. Þar sem tryggingakerfið hefur ver- ið hvað fullkomnast er vandinn meiri en víðast annars staðar. Svo er t.d. um Svíþjóð en þar sjá menn fram á gjaldþrot sjúkratrygginga- kerfisins innan tuttugu ára ef svo fer fram sem horfir. O/ mikiö álag Hverjir eru þeir baksjúkdómar sem valda slíkum vaxandi vanda? í stórum dráttum má skipta þeim í fjóra flokka. 1. Sköddun á vöðvum, vöðvafestum og sinutn. Þetta er langstærsti flokkur baksjúkdóma og einnig hinn erfiðasti í greiningu og með- ferð. Venjuleg röntgengreining kemur ekki að gagni og oft er mjög erfitt að segja nákvæmlega til um hvaða vöðvafesta er sködduð. Ein- kenni þessa kvilla eru stirðleiki, þreyta og eymsli sem oftast eru vegna of mikils eða rangs álags á vöðva. Allt eru þetta almenn ein- kenni sem geta stafað af ýmsum öðrum ástæðum svo sem svefn- leysi eða streitu. Yfirleitt er ástand- ið orðið gott innan sex vikna. 2. Sköddun eða slit milli hiyggjar- liða (þvertinda). Sumir telja að þessi sköddun sé allt að fimmtung- ur baksjúkdóma, aðrar rannsóknir sýna mun lægri tölur. Það veldur erfiðleikum við greiningu að sárs- auki eða verkur getur fundist langt frá þeim lið sem um er að ræða, og þá oftast mun neðar í mjóbaki eða á mjaðmasvæði. 3. Brjósklos. Einungis mjög lítill hluti mjóbaksverkja sem valda óvinnufærni stafa af brjósklosi. Segja má að það sé nokkur „kost- ur" við að fá þessa tegund bak- sjúkdóms að oft má ná góðum ár- angri með skurðaðgerð. Til þess að tryggja það er hins vegar mjög mikilvægt að staðfesta og staðsetja brjósklosið fyrir aðgerð. 4. Gigtsjúkdómar. í þessum flokki er einnig aðeins um fáa ein- staklinga að ræða miðað við þann fjölda fólks sem fær mjóbaksverki af öðrum ástæðum. Getur leitt niður í fætur Eins og áður er sagt er oft erfitt að finna hvað nákvæmlega bjátar á hjá þeim sem fá mjóbaksverki. Þrátt fyrir margar rannsóknarað- ferðir er nákvæm greining á bak- verkjum vandasöm og þar með einnig meðferð sjúkdómsins. Skipta má helstu einkennum (og þar með einnig ástæðum þeirra) í þrjá höfuðflokka: 1. Mjóbaksverkur án leiðniverks neðan mjóbaks. 2. Sársauki eða verkur sem leiðir niður í fætur. 3. Sársauki með leiðniverk og auk þess taugaeinkenni. í síðastnefnda tilvikinu er um að ræða aðþrengda taug sem veldur breytingu á vöðvasvörun, skyn- skerðingu, brenglun á þvaglátum eða jafnvel enn alvarlegri einkenn- um. Þrátt fyrir að venjuleg röntgen- myndataka sé mikið notuð til að- stoðar við greiningu mjóbaks- HEILBRIGÐISMÁL 1/1989 7

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.