Heilbrigðismál - 01.03.1989, Qupperneq 27
Erlent
Góðir siðir
og slaemir
Fjórði hver Banda-
ríkjamaður borðar aldrei
morgunverð, sem sumir
næringarfræðingar telja
þó að sé mikilvægasta
máltíð dagsins. Um 40%
borða hins vegar snakk á
hverjum degi og um
22% sofa í sex tíma eða
skemur. Petta kom fram
í nýlegri könnun vestra.
I sérstakri könnun
meðal aldraðra (65-84
ára) sögðust 95% nota
gleraugu og 8% nota
heyrnartæki.
U.S. Statistics 1988.
Ræðum um
heilbrigði
Alþjóða heilbrigðis-
stofnunin helgar þetta ár
umræðum um heilbrigði.
Slagorð alþjóða heil-
brigðisdagsins, 7. apríl,
var: Ræðum um heil-
brigði. í ávarpi í tilefni
dagsins sagði Hiroshi
Nakajima, hinn nýi
framkvæmdastjóri stofn-
unarinnar, að allir eigi
að geta valið sér heil-
brigða lífshætti, en til
þess verður fólk að fá að
vita hvað er því fyrir
bestu. Þeir sem hafa
þekkinguna verða að
miðla henni til annarra.
Starfsfólk heilbrigðis-
þjónustunnar svo og
blaðamenn, kennarar,
foreldrar og aðrir verða
að nota þau tækifæri
sem bjóðast til að fræða
og veita upplýsingar.
„Ræðum um heilbrigði
fremur en sjúkdóma,"
sagði Nakajima.
VJorld Health,
janúar-febrúar 1989.
Barist við
blóðfituna
Bandarísku læknasam-
tökin (AMA) hafa hrint
af stað herferð gegn kól-
esteróli. Fyrst verður
áhersla lögð á að fræða
fólk um þátt þessarar
blóðfitu í hjarta- og æða-
sjúkdómum, hvetja það
til að láta mæla kólester-
ól í blóði og reyna að
draga úr því hjá þeim
sem eru yfir hættumörk-
um. Átak þetta hófst í
febrúar 1989. Fræðsluefni
Pessi teikning, sem ein-
kennir átak bandarísku
læknasamtakanna gegn
kólesteróli, sýnir hvern-
ig blóðfita safnast innan
á æðavegginn (opið er
eins og Bandaríkin í
lögun).
mun birtast í dagblöð-
um, h'maritum, útvarpi
og sjónvarpi.
Ár hvert deyr um hálf
milljón Bandaríkjamanna
úr hjarta- og æðasjúk-
dómum, en það er meira
en mannfall þeirra í öll-
um styrjöldum á þessari
öld. Of mikið kólesteról í
blóði er einn af helstu
áhættuþáttum þessara
sjúkdóma (ásamt reyk-
ingum, háþrýstingi, of-
fitu, hreyfingarleysi,
streitu o. fl.). Hjá um
helmingi fullorðinna
Bandaríkjamanna mælist
kólesterólið 200 mg eða
meira í hverjum desilítra
blóðs. Hjá um helmingi
þessa fólks fer kólester-
ólið yfir 240 mg, en það
tvöfaldar hættuna á
hjartaáfalli.
Hægt er að draga úr
kólesteróli í blóði með
því að minnka neyslu á
mettaðri fitu, borða
meira af vatnsleysanleg-
um trefjaefnum og halda
líkamsþyngdinni í skefj-
um. Ef á þarf að halda er
beitt lyfjameðferð.
Árangur þessarar her-
ferðar byggist á því að
hægt verði að ná til
þeirra sem eru í mestri
hættu og hvetja þá til að
leita ráða og breyta lífs-
háttum sínum.
American Medical News,
2. desember 1988.
Norðmenn stefna
að útrýmingu
reykinga
Fyrir átta árum beindi
norska læknafélagið •
þeim tilmælum H1 ríkis-
stjórnarinnar að unnið
yrði að því að gera Nor-
eg reyklausan fyrir
næstu aldamót. Tvær
síðustu ríkisstjórnir hafa
samþykkt þessa stefnu.
Hins vegar hefur lítið
dregið úr reykingum (nú
reykja um 40% karla og
32% kvenna). Þess
vegna hafa nokkur öflug
félög tekið sig saman og
gert áætlun um útrým-
ingu reykinga.
Meðal þess sem að er
stefnt fyrir 1995 er að
banna reykingar alveg í
opinberum stofnunum
og í öllum flugsamgöng-
um innanlands sem ut-
an, hækka aldursmark til
tóbakskaupa í 18 ár, taka
tóbak út úr verðlags-
vísitölu, hækka tóbaks-
verð um meira en 20%
á ári, stöðva sölu á
reyklausu tóbaki og
hætta að selja tollfrjálst
tóbak.
Handlingsplan for
röykfritt Norge ár 2000.
Meira en nóg
af tjöru
Evrópubandalagið hef-
ur ákveðið að setja há-
mark á tjöru í sígarett-
um. Frá árslokum 1992
verða sígarettur með
meira en 15 mg af tjöru í
reyk hverrar sígarettu
ekki leyfðar í löndum
bandalagsins og frá árs-
lokum 1995 verður mark-
ið sett við 12 mg.
Official Journal of Ihc Europcan
Communities 20. 2. 1988.
HEILBRIGÐISMAL 1/1989 27