Heilbrigðismál - 01.03.1993, Side 6

Heilbrigðismál - 01.03.1993, Side 6
Ljósmyndarinn í Mjódd (Manneldisráð) Hvað borða bömin? Könnun á mataræði skólabama Grein eftir Laufeyju Steingrímsdóttur Frá því elstu menn muna hafa neysluvenjur barna og unglinga verið fullorðnum áhyggjuefni og jafnvel hneykslunarhella. Svo mik- ið er víst að það teldist til tíðinda ef niðurstöður nýrrar neyslukönnun- ar sýndu að mataræði æskufólks væri eins og best yrði á kosið. Hitt verður að segjast eins og er að full- yrðingar um lélegt viðurværi barna og unglinga á Islandi hafa oftar en ekki byggst á getgátum eða ein- hvers konar tilfinningu fyrir ástandinu. Fram til ársins 1992 höfðu aðeins tvær skipulagðar rannsóknir verið gerðar á mataræði skólafólks hér á landi, sú fyrri á Vestfjörðum árið 1939, hin síðari í Reykjavík árið 1977 en Baldur John- sen læknir stóð fyrir þeim báðum. Síðastliðinn vetur gekkst Mann- eldisráð Íslands loks fyrir ítarlegri könnun meðal skólabarna sem var meðal annars ætlað að svara þeirri grundvallarspurningu hvort börnin okkar fái nægilega holla og næring- arríka fæðu. Könnunin fór þannig fram að þjálfaðir spyrlar heimsóttu 22 skóla víðs vegar á landinu og tóku viðtöl við nemendur úr 5., 7. og 9. bekkjum grunnskóla, samtals 1166 börn og unglinga. Niðurstöður könnunarinnar sýna að skortur á nauðsynlegum nær- ingarefnum telst varla almennt vandamál meðal íslenskra skóla- barna þótt því sé ekki að neita að einstaka börn sýni merki um ófull- nægjandi viðurværi. Vöxtur og þroski barnanna ber þessari niður- stöðu ekki síður vitni, því óvíða verða börn hávaxnari en einmitt hér á landi og hefur meðalhæð far- ið hækkandi undanfarna áratugi. Þótt börn og unglingar líði ekki skort er samt sem áður hægt að benda á nokkur atriði í mataræði þeirra sem brýnt er að færa til betri vegar. Til dæmis er áberandi að sykurneyslan er mun meiri en þekkist meðal nágrannaþjóða. Hvert barn borðar að jafnaði hvorki meira né minna en 167 grömm af sykri á dag og samsvarar það tveim desilítrum. Þegar dreginn er frá sá sykur sem er í fæðutegundum frá náttúrunnar hendi, til dæmis í ávöxtum, mjólk og ávaxtasafa verða enn eftir 96 grömm af hrein- um strásykri sem hvert barn inn- byrðir á dag. Svo mikil sykurneysla hefur vart verið skráð í nokkurri neyslukönnun meðal nágranna- þjóða. Gosdrykkir og aðrir sykraðir svaladrykkir eiga drjúgan þátt í þessari miklu neyslu og lætur nærri að helmingur sykursins sé innbyrtur á þann hátt. Svo vikið sé að öðrum fæðuteg- undum sem eru áberandi í fæði ungs fólks þá er neysla mjólkur og mjólkurvara yfirleitt rífleg bæði meðal stráka og flestra yngri stelpna. Hægt er að fullyrða að mjólk og mjólkurmatur séu veiga- meiri þáttur í fæði íslenskra barna en víðast hvar annars staðar. Þegar stúlkur komast á unglingsár minnkar mjókurneyslan oft veru- lega, jafnvel svo að kalkþörfinni er ekki fullnægt sem skyldi. Fjórða hver stúlka á þessum aldri fær minna en ráðlagðan skammt af kalki daglega. Þessi þróun er sér- staklega bagaleg þar sem stúlkur hafa einmitt þörf fyrir kalkríka fæðu á unglingsárum þegar bein þeirra þéttast hvað mest og örast. Kalklítil fæða á þessum árum getur því haft afdrifaríkar afleiðingar fyr- ir beinstyrk síðar á ævinni og er ástæða til að óttast að bein brotni frekar eða falli saman þegar komið er á efri ár ef kalk skortir á ungl- ingsárum. Þegar á heildina er litið breytist mataræði stúlkna heldur á verri veg þegar kemur á unglingsár. Sér- staklega er áberandi hve margar 14 ára stúlkur sleppa morgunmat. Rúmlega 40 af hundraði þeirra borða engan morgunmat að minnsta kosti þrisvar í viku eða oft- ar. Meðal tíu ára telpna telst slíkt til algjörrar undantekningar og flestir tíu ára krakkar, bæði strákar og stelpur, borða morgunmat á hverj- um degi. En hversu mikilvægt er að borða morgunmat? Kennarar gera sér ef- laust manna best grein fyrir gildi þess að nemendur komi ekki mat- arlausir í skólann. Svangir krakkar Hvert barn fær 96 grömm af hrein- um strásykri á dag og er helming- urinn úr sykruðum drykkjum. 6 HEILBRIGÐISMÁL 1/1993

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.