Heilbrigðismál - 01.03.1993, Blaðsíða 9
Tómas Jónasson o.
Innlent
Skylda að nota
reiðhjálm í
keppni
Hestaíþróttasamband
íslands hefur samþykkt
skyldunotkun reiðhjálma
í keppni í fullorðinsflokki
en áður hafa börn og
unglingar verið skylduð
til notkunar hjálma í
keppni. Þess er vænst að
almenn hjálmanotkun
fari að aukast og verði
með tímanum jafn sjálf-
sögð og notkun bílbelta.
I fræðsluriti um reið-
hjálma, sem nýlega var
gefið út, kemur fram að
til að standast norrænar
kröfur verði reiðhjálmar
að hylja vel hnakka,
hvirfil og enni, og veita
eyrum vörn fyrir högg-
um. Hökuól má ekki
vera úr teygjanlegu efni
og á að tengjast hjálmin-
um á fleiri en tveimur
stöðum. Skyggni eða der
hjálmsins á að vera úr
eftirgefanlegu efni en að
öðru leyti á efnið í hjálm-
inum að vera höggdeyf-
andi og hafa mótstöðu
gegn því að hvassir hlut-
ir geti stungist í gegnum
ytra byrði hjálmsins.
Reiðhjálmar eru taldir
geta dregið verulega úr
höfuðáverka við fall af
baki og víða erlendis
gera tryggingafélög notk-
un hjálma að skilyrði fyr-
ir bótagreiðslu.
Minnstar
tannskemmdir
á Siglufirði?
Á árinu 1991 greiddi
Tryggingastofnun ríkisins
942 milljónir króna fyrir
tannlækningar en að lang
stærstum hluta er um að
ræða endurgreiðslu á
tannviðgerðum barna og
unglinga. Að meðaltali
námu greiðslurnar 3628
krónum á íbúa. Af 26
umboðsskrifstofum
Tryggingastofnunar voru
hæstar greiðslur í Mýra-
og Borgarfjarðarsýslu,
6292 krónur á íbúa, í
öðru sæti var Dalasýsla
(5587 krónur) og í þriðja
sæti Akureyri og Eyja-
fjarðarsýsla (5006 krón-
ur). Lægstu greiðslur á
íbúa voru á Siglufirði,
2474 krónur, en næst
komu ísafjörður og Vest-
ur-Skaftafellssýsla. Þessar
upplýsingar komu fram í
nýjasta hefti tímarits
Tryggingastofnunar. Erf-
itt er að skýra þennan
mikla mun með mismun-
andi aldursskiptingu en
hugsanlegt er að fjöldi
tannlækna eða aðgengi
að þjónustu þeirra hafi
einhver áhrif.
Dregur úr
drykkju
Svo virðist sem áfeng-
isneyslan sé að komast
aftur í svipað horf og
fyrir tíma bjórsins. Á síð-
asta ári nam áfengissalan
3,55 lítrum af hreinum
vínanda á hvern íbúa og
hefur dregið stöðugt úr
henni síðan bjórinn var
lögleyfður árið 1989, en
þá var hún 4,13 lítrar.
Fyrir þann tíma hafði
hún orðið hæst 3,44 lítrar
árið 1987. Tölur fyrir
fyrstu þrjá mánuði þessa
árs sýna að enn heldur
áfram að draga úr áfeng-
issölu.
í fyrra seldi Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins
5,6 milljónir lítra af bjór,
nær 1,3 milljónir lítra af
léttu víni og 1,2 milljónir
lítra af sterku víni.
Reyklaust flug
Samgönguráðuneytið
hefur ákveðið, að tillögu
flugráðs og með hliðsjón
af tilmælum Alþjóða
flugmálastofnunarinnar,
að banna reykingar í öllu
flugi milli Islands og
annarra landa í Evrópu
frá og með 1. september
1993. Að því er varðar
flug til Norðurlanda og
Bretlands gildir þetta frá
1. apríl. Með þessu móti
er komið til móts við ein-
dregnar óskir farþega um
hreint loft í háloftunum
og fylgt þróun sem orðið
hefur í nálægum lönd-
um.
Reykingabann gildir í
flugi SAS milli fslands og
Danmerkur eins og milli
hinna norrænu landanna.
Erfðaþættir
h j artas j úkdóma
rannsakaðir
Nú stendur yfir sjötti
og síðasti áfangi hóp-
rannsóknar Hjartavernd-
ar sem hófst fyrir aldar-
fjórðungi og nær til rúm-
lega þrjátíu þúsund karla
og kvenna sem voru 34-
61 árs á þeim tíma. Yngra
fólki, 25-34 ára, var boðið
til sérstakrar rannsóknar
árið 1973 og aftur tíu ár-
um síðar.
Að sögn Nikulásar Sig-
fússonar yfirlæknis
Rannsóknastöðvar
Hjartaverndar hefur lengi
verið á döfinni að rann-
saka enn yngra fólk og er
nú verið að gera áætlun
um rannsókn á fólki á
aldrinum 15-24 ára sem
eru afkomendur þátttak-
enda í hóprannsókninni.
Fyrirhugað er að kanna
meðal annars erfðaþætti í
sambandi við hjartasjúk-
dórna. Ef tilskilin leyfi
fást mun rannsóknin geta
hafist á þessu ári. -jr.
HEILBRIGÐISMÁL 1/1993 9