Heilbrigðismál - 01.03.1993, Blaðsíða 7

Heilbrigðismál - 01.03.1993, Blaðsíða 7
Stúdíó 28 (Gott fólk/Manneldisráð) - Teikniþjónustan sf. Hlutföll orkuefna Prótein Kolvetni Prótein Fita Viðbættur sykur Annar sykur Fæði skólafólks Manneldismarkmið eru einfaldlega ekki góðir nemend- ur, þeir eru ýmist eirðarlausir eða þreyttir. En niðurstöður könnunar- innar sýna að áhrif þess að sleppa morgunverði eru víðtækari en marga hefði grunað. Það kemur nefnilega í ljós að þeir nemendur sem borða morgunverð sjaldan eða aldrei, fá mun næringarsnauðara og lélegra fæði en þeir sem borða nánast alltaf morgunmat. Munur- inn á næringarefnum í fæði þessara tveggja hópa er slíkur að þeir sem borða morgunmat flesta daga vik- unnar fá 50% meira af öllum nauð- synlegum næringarefnum en hinir sem sleppa morgunmatnum. Ástæðan fyrir þessum mikla mun er ekki aðeins afburða hollusta og næringargildi morgunverðarins, heldur skiptir hitt ekki síður máli að þeir sem sleppa morgunmat borða greinilega meira af lélegri fæðu seinna um daginn en hin sem byrja daginn með morgunmat. Það kemur því ekki á óvart að sykur- neyslan er mun meiri meðal þeirra sem sleppa morgunmatnum og einnig er algengara að þessi sömu börn séu feitlagin. Niðurstaðan virðist sú að það sé beinlínis fit- andi fyrir ungar stúlkur að borða ekki morgunmat og með því að byrja daginn án þess að borða sé að nokkru Ieyti búið að marka stefn- una fyrir daginn í sjoppufæði, sæl- gæti og gosdrykki. Nesti eða matur í skóla eru mik- ilvægir þættir í neyslu barna og unglinga. Tíu ára börn sem búa í þéttbýli koma langflest með ágætt nesti að heiman, í flestum tilfellum gróft brauð eða ávöxt. Nestispökk- um fer strax að fækka meðal stelpna í 7. bekk og þegar komið er í 9. bekk sjást fáir með nesti, hvort heldur er strákar eða stelpur. Þótt nestismálin séu í ágætu horfi meðal yngri barnanna er ástæða til að vekja athygli á einu mikilvægu atriði. I öllum skólum í þéttbýli eru seldir drykkir í nestistíma. Mjólk er þar ævinlega á boðstólum en oftast eru þar líka sætir drykkir, kókó- mjólk, safi og svaladrykkir. Mjólkin á mjög í vök að verjast þar sem hún er í samkeppni við sæta drykki og nú er svo komið að hún er sá drykkur sem minnst er selt af í skólum landsins. Flest börn drekka þar af leiðandi sætan drykk í skól- anum þótt síst sé á sykurneyslu þeirra bætandi. Það er athyglisvert að vatn stendur nemendum yfir- leitt ekki til boða í nestistímum. í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi hefur verið bryddað á þeirri ágætu nýbreytni að bera fram kalt vatn í nestistíma. Börnin hafa með sér mál eða bolla að heiman sem þau geyma í hólfi í skólastofunni og er ískalt vatnið borið fram í könnu. Þetta er dæmi um einfalda og ódýra aðgerð sem getur haft veru- leg áhrif til að minnka neyslu sætra drykkja meðal skólabarna. Aðstaða barna og unglinga í dreifbýli er allt önnur en í þéttbýli hvað varðar mat í skóla. Dreifbýlis- skólar eru flestir einsetnir og nem- endur fá yfirleitt heitan mat í há- deginu og jafnvel er boðið upp á morgunverð í sumum heiman- gönguskólum. Áhrif skólamáltíðar- innar koma meðal annars fram í því að börnin drekka mjólk eða vatn í skólanum þar sem ekki er um annað að velja með heita matn- um. Máltíðaskipan nemenda í þétt- býli er verulega frábrugðin því sem algengt er meðal fullorðinna sam- kvæmt fyrri könnun Manneldis- ráðs. Skólatíminn hefur mest áhrif þar sem margir nemendur eru í skóla í hádeginu en fá nestistíma um miðjan morgun. Hádegisverð- urinn er því seint og hann er mun veigaminni en hádegisverður full- orðinna, enda má ætla að mörg Vatn stendur nemendum yfirleitt ekki til boða í nestistímum. HEILBRIGÐISMÁL 1/1993 7

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.