Heilbrigðismál - 01.03.1993, Qupperneq 28

Heilbrigðismál - 01.03.1993, Qupperneq 28
Jónas Raf Meiri hreyfing og mirma af mat em einu ráðin til að losna við aukakflóin Grein eftir Jóhann Heiðar Jóhannsson Eftir langan vetur fara margir að hugsa sér til hreyfings, bæði í eig- inlegri og óeiginlegri merkingu. Skíðaferðirnar voru svo fáar að hvorki tókst að viðhalda þreki né bæta fyrir tapaðar orrustur í freist- ingum jóla- og árshátíðamáltíða. Sundsprettir urðu sömuleiðis færri og styttri en til stóð. Akveðnir lík- amshlutar hafa þanist út og felling- ar myndast þar sem síst skyldi. Strengur hefur þrengst í pilsi og buxum, beltið verður að ganga út um eitt eða fleiri göt, skálmar eru orðnar óþægilegar um læri og jakki liggur eins og þaninn bogastrengur um axlir. Baðvigtin er þó hinn end- anlegi dómari í árvissri fitusöfnun vetrarins og nú er ekki hægt að fresta því lengur ef eitthvað á að gera fyrir sumarið. Hvað er til ráða? Löngum hefur verið sagt að við aukakílóunum séu ekki til nema tvö ráð: Borða minna og hreyfa sig meira. Margir vilja þó ekki horfast í augu við þessa einföldu staðreynd. Það er svo miklu auðveldara að geta kennt efnaskiptunum um, aldrinum, streitunni eða einhverju allt öðru og fá þannig góða afsökun fyrir því að gera ekki neitt sjálfur. En margir eru þeir, sem taka sig á, að minnsta kosti öðru hvoru, til að reyna að losna við fitufellingarnar og endurheimta líkamsvöxt og þrek fyrri ára. Borða minna! Það er erfitt að borða minna, en getur þó tekist. Stundum er nóg að skoða lauslega hvað borðað er og hætta því sem er augljóslega óþarft. Hætta að maula sælgæti eða sötra bjór yfir sjónvarpinu og stöðva hvers kyns gosdrykkjaþamb eða nart í kökur og kex milli mála. Stundum þarf hins vegar að skoða matarvenjur mjög nákvæmlega til að finna hvað að er og hvernig lag- færa má. Til dæmis getur maður sem fær sér sex vel sykraða kaffi- bolla á hverjum degi fengið þar orku sem samsvarar fjórum kílóum af fituvef á ári. Með öðrum orðum ætti hann að geta dregið úr fitu- söfnun, sem þessu nemur, með því einu að sleppa kaffisykrinum. Þá gera margir nútímamenn og konur þau mistök að borða mjög lítið í há- deginu (til að halda í við sig!), en koma sér í staðinn upp svo mikilli svengdarkennd að þau geta ekki látið vera að narta duglega frá heimkomu og fram að kvöldmat. Tvær óþarfar brauðsneiðar með smjöri og osti eftir hvern vinnudag svara til tólf kílóa af fituvef á ári. Sumum þykir gaman að spá í hitaeiningar fæðunnar, svokallaðar kaloríur. Hinar ýmsu fæðutegundir innihalda orku, sem mæla má í hitaeiningum. Með því að athuga upplýsingar um þann hitaeininga- Orkueyðsla líkamans við ýmsar athafnir Mælt í kaloríum á klukkustund, miðað við karlmann í meðalholdum. Algjör hvíld ............ 75 Badminton .............. 450 Dans, rólegur .......... 250 Dans, fjörugur ......... 600 Fjallganga ............. 500 Ganga, róleg ........... 350 Ganga, hröð ............ 600 Golf ................... 350 Hjólreiðar, rólegar .... 450 Laxveiðar .............. 250 Leikfimi, Iétt ......... 300 Leikfimi, erfið ........ 600 Sipp, meðalhratt ....... 700 Sjónvarpsgláp ........... 95 Skokk, rólegt .......... 500 Skokk, rösklegt ........ 800 Skrifstofustörf ........ 120 Sund, hægt ............. 540 Sund, hratt ............ 750 Tækjaleikfimi .......... 550 28 HEILBRIGÐISMÁL 1/1993

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.