Heilbrigðismál - 01.03.1993, Blaðsíða 31
Erlent
Bætt ástand
í umferðinni
í Bretlandi
Umferðarslysum í Bret-
landi hefur fækkað á síð-
ustu árum. Banaslys og
alvarleg slys voru að
meðaltali 80.000 á ári
1981-85 en voru 56.000 ár-
ið 1991. Þetta er um 30%
lækkun þrátt fyrir aukna
umferð. Hluti af lækkun-
inni stafar af minni vin-
sældum vélhjóla, sem eru
hættulegri en önnur far-
artæki. Ýmsar breytingar
á umferðarmannvirkjum
gætu bætt ástandið enn.
Er þá meðal annars átt
við lagfæringar á slysa-
gildrum (svartblettum)
og aðgerðir til að draga
úr hraða í þéttbýli.
Skylda verður að hafa
loftpúða, sem blásast
upp við árekstur á broti
úr sekúndu, í öllum nýj-
um bandarískum bílum
árið 1997. Þessir púðar
eiga að geta dregið úr
slysum.
Sænskar rannsóknir
benda til að bílar séu
mjög misjafnir hvað ör-
yggi varðar. Ef allir bílar
væru jafn öruggir og þeir
bestu myndu helmingi
færri slasast en nú.
Stjórnvöld bregðast seint
við auknum kröfum um
öryggi en vonir eru
bundnar við að bílafram-
leiðendur leggi meiri
metnað í öryggismál til
að þjóna kröfuhörðum
neytendum.
British Meciical Joumal.
Tveir deyja
á hverri mínútu
Hjarta- og æðasjúk-
dómar eru helsta dánar-
orsök í Bandaríkjunum,
úr þeim deyja 930 þús-
und manns á ári eða nær
tveir á hverri mínútu að
meðaltali. Hjartaáföll
valda 490 þúsundum af
þessum dauðsföllum.
Mikið er gert til að
draga úr hættunni. Árið
1990 fóru 285 þúsund
manns í kransæðavíkkun,
392 þúsund í kransæða-
skurðaðgerð og 2 þúsund
fengu ígrætt hjarta.
Hættuleg blanda
Reykingar og áfengis-
neysla fara illa saman að
því er varðar hættu á
krabbameini í barkakýli.
Karlar sem reykja og
drekka mikið eru í fimm-
tán sinnum meiri hættu
en aðrir á að fá þennan
sjúkdóm.
Todays Health Rcport.
Reykingaský
Reykingamönnum er
helmingi hættara en öðr-
um við að fá ský á augu,
en það er sjúkdómur sem
er algengasta orsök
blindu í heiminum. Lík-
legt er að tóbaksreykur
dragi úr virkni vítamína í
blóði, en þau hjálpa til
við að gera augasteininn
gegnsæjan.
Americati Health.
Eiturmengun
Áætlað hefur verið að
þrjár milljónir Banda-
ríkjamanna eigi heima
innan einnar rnílu frá
geymslustöðum fyrir eit-
urefnaúrgang og þeim
stafi þannig bein hætta af
krabbameinsvaldandi
efnum.
Meira en fimmtíu þús-
und Bandaríkjamenn
deyja ár hvert af völdum
langvinnra sjúkdóma
sem rekja má til eiturefna
á vinnustöðum.
American Medical Nezvs.
Ekki sama
hvernig sól-
gleraugun eru
Mikil sólarbirta getur
haft áhrif á augu, ekki
síður en húð. Sólgler-
augu eru því nauðsynleg
en ekki er sama hvernig
þau eru. Dökk gler halda
birtu frá augum betur en
ljósari gler. Hins vegar
segir liturinn ekkert til
um vörn gegn útfjólublá-
I um geislum því að varn-
The World Almanac
and Book of Facts.
arlagið gegn þeim er lit-
laust. Þess vegna hafa
bandarískir gleraugna-
framleiðendur komið sér
saman um flokkun sól-
gleraugna eftir því hve
vel þau hindra útfjólu-
bláa geislun. Lágmarks-
vörn er 70% (cosmetic),
flestum nægir 95% vörn
(general purpose) en
sumir þurfa 99% vörn
(special purpose). Það
eru einkum þeir sem eru
mikið í sól, ekki síst við
sjó og vötn, í snjó eða
uppi í þunnu háfjalla-
lofti, sem þurfa á mestu
vörninni að halda.
Mayo Clinic Health Letter.
Jón og séra Jón
Ekki er langt síðan
franskt ölkelduvatn var
tekið af markaði um tíma
vegna þess að í því var
of mikið af benseni, að
mati bandarískra heil-
brigðisyfirvalda. En ekki
datt sömu yfirvöldum í
hug að taka sígarettur af
markaði þrátt fyrir það
að sá sem reykir eina
sígarettu fái í sig fimm
sinnum meira bensen en
sá sem drekkur hálfan
lítra af menguðu vatni.
Roykfritt.
HEILBRIGÐISMÁL 1/1993 31