Heilbrigðismál - 01.06.1993, Side 5
Tómas Jór
✓
Læknafélag Islands 75 ára:
Átti meðal annars að beita sér fyrir
bættu heilsufari landsmanna
- samkvæmt upphaflegum tilgangi
•é
■3
<
í haust var þess minnst að 75 ár
eru síðan Læknafélag íslands var
stofnað, sem reyndar var 14. janúar
árið 1918. Tilgangur félagsins var í
upphafi að efla hag og sóma ís-
lenskrar læknastéttar, stuðla að
aukinni menntun íslenskra lækna
Þetta merki var gert sem afmælis-
merki Læknafélagsins.
og beita sér fyrir bættu heilsufari
landsmanna. Fyrsti formaður félags-
ins var Guðmundur Hannesson.
Læknablaðið hefur verið gefið út
síðan 1915 fyrst af Læknafélagi
Reykjavíkur en síðan í samvinnu
við Læknafélag Islands.
Læknafélag Islands skiptist í átta
svæðafélög á íslandi en félög ís-
lenskra lækna erlendis eiga einnig
aðild að því. Félagsmenn eru um
1300, þar af um 400 erlendis.
I tilefni af afmælinu var hátíðar-
dagskrá þar sem litið var til liðinn-
ar tíðar, nútíðar og framtíðar. Rifjuð
var upp saga félagsins, saga lækna-
kennslu og störf lækna fyrr á tíð. Þá
var rætt um störf og hlutverk
lækna, rannsóknir sem grundvöll
kennslu og um listina að vera
læknir, svo að nokkur viðfangsefni
Nýlega festi Læknafélagið kaup á
efstu hæðinni í þessu húsi við
Hlíðarsmára í Kópavogi og er
stefnt að því að flytja starfsemina
þangað í vetur, en húsnæðið í
Domus Medica var talið orðið of
lítið.
séu nefnd. Dagskrá haustþings
læknafélaganna var óvenju fjöl-
breytt að þessu sinni. Auk lækna-
þings og vísindaþings var nám-
skeið um endurlífgun og málþing
um útgáfumál og um forgangsröð-
un í heilbrigðisþjónustu.
A aðalfundi Læknafélags íslands
um miðjan september var Sverrir
Bergmann endurkjörinn formaður
félagsins til næstu tveggja ára. -jr.
Fyrsti
læknafundurmn
Læknafundur var haldinn
í Reykjavík 27.-30 júlí 1896
og er það talinn „hinn fyrsti
almenni læknafundur hér á
landi," eins og segir í Skírni.
Jónas Jónassen landlæknir
var forgöngumaður fundar-
ins en auk hans sóttu fund-
inn tólf læknar og þrír
læknaskólastúdentar.
A fundinum kom til um-
ræðu að „stofnað yrði ís-
lenskt læknafélag." Breyting
á skipan læknahéraðanna
var rædd og fundurinn vildi
bæta kjör lækna og „hækka
borgun fyrir sjúkravitjanir
og læknisráð." Þá var rætt
um stofnun „landsspítala"
(sem var tekinn í notkun 34
árum síðar) og nauðsyn þess
að reisa hjúkrunarskýli fyrir
holdsveika sjúklinga (sem
var lokið tveim árum síðar).
Nefnd lækna var falið að
undirbúa stofnun „vitfirr-
ingaspítala" (Kleppsspíta-
linn var tekinn í notkun ell-
efu árum síðar). I Skírni seg-
ir að umræður á læknafund-
inum hafi borið vott um
mikinn áhuga.
HEILBRIGÐISMÁL 2/1993 5