Heilbrigðismál - 01.06.1993, Blaðsíða 28

Heilbrigðismál - 01.06.1993, Blaðsíða 28
Jóhannes Long (Ljósmyndarinn í Mjódd) Heilbrigðisþ j ónusta og einstaklingsfrelsi Grein eftir Vilhjálm Arnason Áður hefur komið fram (Heil- brigðismál 1/1993) að í sanngjörnu heilbrigðiskerfi er rík áhersla lögð á heilsuvernd. En ekki er hlaupið að því að tryggja þann árangur af forvarnarstarfi sem menn binda vonir við. Boðskapurinn er tiltölu- lega einfaldur: Fjölbreytt mataræði, hófleg vinna, hreyfing, nægileg hvíld, útilíf og andlegt jafnvægi stuðla að góðu heilsufari en reyk- ingar, ofát, óhóflegt vinnuálag, áfengisdrykkja og notkun annarra vímuefna eru heilsuspillandi. Þetta ætti hver maður að geta til- einkað sér án mikilla vandkvæða. En reyndin er önnur. Skýringarnar á því eru eflaust margar og ætla ég aðeins að tæpa á þeim sem varða frelsi manna. Þær raddir sem hvetja til heilsu- samlegra lífshátta verða oft hjá- róma og mega sín lítils í skarkala neyslusamfélagsins. Málið hefur verið kannað í Noregi. Þar er varið myndarlegri upphæð til heilbrigð- isfræðslu, en hundraðföld sú upp- hæð er árlega notuð til auglýsinga á heilsuspillandi afurðum, enda hefur fjöldi fólks atvinnu sína af framleiðslu slíks varnings. „Spyrja má hvernig ástand yrði á atvinnu- markaði ef ráðum heilbrigðisstarfs- fólks væri fylgt út í ystu æsar. Sum- ir fræðimenn hafa gengið svo Iangt að telja að kerfinu sé nauðsyn á að viðhalda ákveðnu heilsuleysi!" (Matthías Halldórsson. Heilbrigðis- mál 4/1991.) Tökum dæmi: Líklega myndi ekkert eitt ráð draga jafn mikið úr slysum og sjúkdómum og að leggja blátt bann við reykingum og neyslu áfengis. Fáum dylst að þetta eru tveir mestu skaðvaldar heilsu í nú- tíma þjóðfélagi. En mikið þarf til að slík stefna fái hljómgrunn í lýðræð- isríki. Líkast til eru gerræðislegir stjómarhættir eina örugga leiðin til þess að ná markmiði Alþjóða heil- brigðismálastofnunarinnar „heil- brigði fyrir alla árið 2000", því ekki munu gróðaöflin, sem þrífast á því að almenningur spilli heilsu sinni, láta ótilneydd af áróðri sínum. Og stjórnvöld eru sjálf í ankannalcgri stöðu. Ríkið hefur víða einokun á sölu tóbaks og áfengis og verðlegg- ur þessar vörutegundir hátt, meðal annars í því skyni að draga úr neyslunni. Samt er ávallt gert ráð fyrir háum upphæðum á hverju ári sem tekjum fyrir ríkissjóð. Þetta breytist ekki þótt sýnt hafi verið fram á að útgjöld ríkisins vegna vandræða og vanheilsu sem hlýst af neyslunni séu jafnvel meiri en hagnaöurinn af sölunni. Astæðan er einföld: í lýðræðis- ríki vill fólk eiga þess kost að reykja sitt tóbak og drekka sitt brennivín í friði. Kröfur um heilsu- vernd og heilnæmari lífsstíl rekast því ekki aðeins á viðskiptahags- muni fyrirtækja heldur einnig frels- iskröfur einstaklinga. Heilsan situr ekki í fyrirrúmi hjá öllum og fjöl- margir leyfa sér ýmsar lystisemdir þótt þær kunni að kosta heilsutap síðar meir. Einn meginvandinn er að alvarlegustu afleiðingar óhollra lífshátta koma oft ekki fram fyrr en eftir langan tíma og ávinningur hollustu er ekki heldur tryggður. Áratugir geta liðið áður en menn fara að finna fyrir því að heilsu- vernd sé hagkvæm fyrir samfélag- ið. Þetta gerir það að verkum að Hvers vegna er ekki fólk sem skaðar heilsu sína með því að taka viljandi áhættu látið borga beint fyrir heilbrigðisþjónustuna frem- ur en óbeint? 28 heilbrigðismAl 2/1993

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.