Heilbrigðismál - 01.06.1993, Blaðsíða 32

Heilbrigðismál - 01.06.1993, Blaðsíða 32
Brian Pilkington Sagt Heilbrigðistrúðar Nútíma náttúrulækninga- menn eru allir þeir sem stuðla vilja að bættri heilsu með líkamsrækt og neyslu hollrar fæðu, studdri með vísindalegum grunni, en forðast kukl og hindurvitni. Hinir sönnu náttúrulækn- ingamenn verða að koma í veg fyrir að hvers konar heilunar- og heilbrigðistrúð- ar nái að komast inn í hreyf- inguna á Trójuhestum sínum og skaði þar með hina upp- haflegu náttúrulækninga- stefnu sem byggist á góðum og gildum læknisfræðileg- um rökum. Guðmundur Björnsson yfir- læknir. Heilsuvernd, 1992. Myrkur og þögn Myrkrið getur fært mikla fegurð og andlega snert- ingu við hugsanir göfugra manna. Vinur minn, ef þú ert þjáður af áhyggjum og lífs- leiða þá gakktu á fund þagn- arinnar. Ingibjörg Jóhannsdóttir fyrr- verandi skólastjóri. Morgun- blaðið, 7. mars 1993. Lífsvitund Maðurinn hefur fólginn í sér möguleika á að tengjast viljandi og vitandi því afli sem er í rauninni ofvaxið skilningi okkar en birtist þó í hinu stórmerkilega samræmi sem hvarvetna má finna í umhverfinu sem við lifum í og reyndar líka í okkur sjálf- um, ef nógu djúpt er leitað. Sú heildarvitund, sem hér um ræðir, fæðir af sér að lif- að er ábyrgu lífi. Úlfur Ragnarsson læknir. Heilsuhringurinn, 1992. Brjóstsviði Þegar magasýra fer upp í vélinda Grein eftir Bjarna Þjóðleifsson Flestir kannast við brjóstsviða af eigin raun. Hans verður vart þegar bakflæði verður á sýru frá maga upp í vélinda. Eins og nafnið bend- ir til er um að ræða sviða undir bringubeini, og getur hann leitt út til beggja hliða, upp í háls og jafn- vel út í axlir. Að þessu leyti getur brjóstsviði líkst hjartaverk, sem get- ur geislað út í vinstri öxl og hand- legg. Oftast er þó auðvelt að greina á milli hjartaverkjar (oft kallað hjartaöng) og brjóstsviða. Hjarta- öng kemur yfirleitt við áreynslu en brjóstsviði tengist máltíðum og lík- amsstöðu. Allir fá smávegis sýruskvettur upp í vélinda á hverjum degi, en heilbrigt vélinda er svo fljótt að senda sýruna niður aftur að brjóstsviði kemur sjaldnast fram. Það er einkum tvennt, sem hindrar bakflæði. í fyrsta lagi skal nefnt að neðst í vélinda er hringvöðvi sem opnast þegar kyngt er en er samanherptur þess á milli. Þessi vöðvi á að tryggja að fæða fari niður í maga en magainnihald ekki upp í vélinda. Spennan í vöðvanum eykst þegar þrýstingur hækkar í kviðarholi (eins og við hnerra) þannig að þrýstingsbreytingar valda óveru- legu bakflæði ef hringvöðvinn starfar rétt. Það er margt sem getur truflað starfsemi vöðvans, (slakað á honum) t.d. lyf (taugalyf, krampa- losandi lyf, o.fl.), kaffi, alkóhól og feitmeti. I öðru lagi liggur efri hluti mag- ans vinstra megin í kviðarholi og gengur yfir til hægri og mætir vél- inda um miðbik þindarinnar. Mót maga og vélinda eru föst við neð- anverða þindina og liggja samsíða henni að hluta. Þessi festing við þindina er mjög mikilvæg til að hindra bakflæði vegna þess að þeg- ar þrýstingur hækkar í kviðarholi Ieggjast mót maga og vélinda upp að þindinni og brot kemur á þetta svæði sem lokar fyrir samgang milli maga og vélinda, líkt og þegar brot er sett á vatnsslöngu til að hindra flæði. Festingin við þindina getur slitnað og því fylgir yfirleitt gliðnun á opinu í þindinni, sem vélinda gengur í gegnum. Þetta er nefnt þindarslit og verður einkum hjá fólki með ístru eða konum sem hafa gengið með mörg börn, því meðganga teygir mikið á þindinni og veldur oft sliti. Þegar komið er þindarslit er hringvöðvinn neðst í vélinda eina vörnin gegn bakflæði. Það er mikill munur á því hvað maginn þolir betur sýru heldur en vélindað. Magasýran hefur það hlutverk að eyða gerlum og bakter- íum úr fæðunni. Þetta þýðir einnig að hún getur skaðað eða eytt frum- um magans ef hún kemst að þeim. Maginn er séstaklega útbúinn til að verjast sýru. Hann myndar bæði slím og lút (bícarbonat) til varnar, 32 HEILBRIGÐISMÁL 2/1993

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.