Heilbrigðismál - 01.06.1993, Qupperneq 9
Innlent
Heilsugæslan
á Blönduósi
í nýtt húsnæði
Heilsugæslustöðin á
Blönduósi flutti í haust í
nýtt húsnæði á fyrstu
hæð í viðbyggingu við
Héraðshælið. Fram-
kvæmdir við nýja húsið
hófust fyrir tólf árum og
er ekki lokið, en þegar
Héraðshælið var byggt
fyrir tæpum fjörutíu ár-
um tók það aðeins rúm
tvö ár.
Húsnæði heilsugæsl-
unnar er rúmir 400 fer-
metrar sem er tvöföldun
frá því sem áður var.
Heilsugæslustöðin þjónar
um 2500 íbúum á Blöndu-
ósi og í Austur-Húna-
vatnssýslu.
Á annarri hæð
Sjúkrahúsið og heilsu-
gæslan á Blönduósi hafa
verið til húsa í Héraðs-
hælinu (fjær á mynd-
inni) en nú er verið að
taka stóra viðbyggingu í
notkun í áföngum.
nýbyggingarinnar átti að
vera stór skurðdeild en
nú hefur verið fallið frá
þeim hugmyndum, að
sögn framkvæmdastjóra
sjúkrahússins og heilsu-
gæslunnar, enda hafa for-
sendur breyst síðan húsið
var teiknað. Þess í stað
verður þar aðstaða fyrir
tannlækna, rannsóknir o.
fl. Á þriðju hæð verður
legudeild fyrir tuttugu
sjúklinga og verður
fækkað um jafn mörg
rúm í eldri byggingunni.
Efri hæðirnar eru til-
búnar undir tréverk og
er þess vænst að fram-
kvæmdum ljúki á næstu
tveimur til þremur árum.
Fimm þúsund
í meðferð
Um 2,6% fullorðinna
íslendinga hafa farið í
meðferð vegna áfengis-
neyslu, eða um fimm
þúsund manns. Helming-
ur þessa hóps heldur sig
enn frá áfengi, hinir hafa
fallið. Þetta sýna kannan-
ir Hagvangs sem gerðar
voru í janúar og maí fyr-
ir Bindindisfélag öku-
manna og Áfengisvarna-
ráð. Þar kemur einnig
fram að fjórði hver full-
orðinn neytir ekki áfeng-
is. Langflestir (95%) hafa
valið sér þá lífsstefnu án
þess að hafa farið í
áfengismeðferð.
Nær hundrað
dauðsföll úr
lungnakrabba-
meini
Lungnakrabbamein er
fyrir nokkru orðið mann-
skæðasta krabbameinið
hér á landi. Árin 1986-90
lagði það að meðaltali að
velli um 80 manns á ári
(42 karla og 38 konur). í
öðru sæti hjá körlum var
blöðruhálskirtilskrabba-
mein en brjóstakrabba-
mein í öðru sæti hjá kon-
um.
Nýjustu tölur Hagstof-
unnar um dánarorsakir
sýna að árið 1991 dóu 98
manns úr lungnakrabba-
meini hér á landi, 59
karlar og 39 konur. Þetta
eru fleiri en nokkru sinni
áður. Síðustu ár hefur
dregið verulega úr reyk-
ingum hér á landi og því
er vonast til að þessar töl-
ur fari senn lækkandi, en
„meðgöngutími" lungna-
krabbameins getur verið
einn til tveir áratugir.
Hressir
Héraðsbúar
Á þessu ári sem nefnt
er ár aldraðra í Evrópu
er margt gert til að vekja
athygli á málefnum eldri
borgara og til að hvetja
þá til dáða. Er skemmst
að minnast 500 kílómetra
göngu Stefáns Jasonar-
sonar um landið í ágúst-
mánuði.
1 vor héldu Egils-
staðabúar heilsuviku í til-
efni af ári aldraðra.
Kynnt var sú þjónusta
sem öldruðum stendur til
boða og flutt voru erindi
um réttindamál, næringu,
hreyfingu og síðast en
ekki síst um lífsgleði. Svo
góð þátttaka var í sund-
leikfimi, sundi og bokkía
að til stendur að hafa
fasta tíma í þessum
greinum fyrir aldraða.
Einn dagurinn var svo-
nefndur göngudagur
aldraðra og vikunni lauk
með messu í Egilsstaða-
kirkju. Þeir sem stóðu að
heilsuvikunni eru mjög
ánægðir með undirtekt-
irnar og telja að á öðrum
stöðum á landinu megi
gera eitthvað svipað fyrir
sívaxandi hóp aldraða -
og ekki eingöngu á ári
þeirra. - jr.
Sundleikfimi fyrir aldr-
aða var meðal atriða á
heilsuviku á Egilsstöð-
um.
HEILBRIGÐISMÁL 2/1993 9