Heilbrigðismál - 01.06.1993, Síða 30

Heilbrigðismál - 01.06.1993, Síða 30
Tómas Jór Verðstýring er réttmæt leið fyrir stjórnvöld til að hvetja til hollra lífshátta. Það er réttlætismál og jafn- framt „heilsuhvetjandi" að gera með einhverjum hætti upp á milli þeirra sem baka sér heilsutjón sjálfir og hinna sem veikjast af orsökum sem þeir ráða engu um. (svo sem bílbelti og vélhjólahjálma) til að draga úr slysahættu. Sjálf um- ferðarlögin eru mikilvægt tæki til að koma í veg fyrir tjón. Það yrði dýrkeypt frelsi ef menn gætu hagað sér eins og þeim sýndist á vegum úti. Aftur á móti er það sanngjarnt að fólk hafi nokkurt svigrúm til að taka áhættu í lífinu án þess að gjalda sérstaklega fyrir það ef illa fer. Samfélagið hefur aðrar leiðir til þess að rétta af hallann sem af þessu skapast. Til dæmis er hægt að auka álögur á óhollar neysluvör- ur og afla þannig tekna í sameigin- lega sjóði sem fjármagna heilbrigð- isþjónustu. Slík verðstýring er rétt- mæt leið fyrir stjórnvöld til að hvetja til hollra lífshátta. En hvers vegna ekki að láta fólk sem skaðar heilsu sína með því að taka viljandi áhættu borga beint fyrir heiibrigðisþjónustuna fremur en óbeint? Gegn því eru ýmis rök. I fyrsta lagi er erfitt að meta í flest- um tilvikum þegar slys eða sjúk- dóma ber að höndum hvað er á ábyrgð einstaklingsins og hvað ræðst af þáttum sem hann ræður engu um. Menn eru til dæmis mis- næmir fyrir skaðlegum áhrifum reykinga og gætu erfðir skýrt það að nokkru leyti. Það er sanngjörn krafa að allir reykingamenn borgi jafnt fyrir að taka áhættuna sem fylgir því að reykja, en ósanngjarnt að einungis þeir sem veikjast, sumpart vegna líffræðilegra eða félagslegra orsaka, sem þeir ráða litlu eða engu um, borgi brúsann þegar þeir veikjast. Sé því haldið fram að einstaklingar sem hætta á að skaða heilsuna með lífsstíl sínum eigi að borga fyrir þá heilbrigðisþjónustu sem af því hlýst, er því ekki nóg að sýna fram á að þeir taki áhættuna sjálfviljugir. Einnig þarf að sýna fram á að lífs- stíllinn sé meginskaðvaldurinn og að samfélagið eigi þess vegna ekki að bera kostnaðinn af heilbrigðis- þjónustunni við þá. Það er ekki réttlætiskrafa að sam- félagið kosti heilbrigðisþjónustu þegar augljóst er að heilsutjónið er tilkomið vegna lífshátta sem ein- staklingar eru ótvírætt ábyrgir fyrir. Það er réttlætismál og jafnframt „heilsuhvetjandi" að gera með ein- hverjum hætti upp á milli þeirra sem baka sér heilsutjón sjálfir og hinna sem veikjast af orsökum sem þeir ráða engu um. Það er hins veg- ar bæði mannúðlegra og auðveld- ara í framkvæmd að leita óbeinna leiða í þessu skyni heldur en að láta hina „seku" sjúklinga greiða reikn- inginn. I lokin má nefna að kröfur um breytta heilbrigðisþjónustu geta rekist á frelsi heilbrigðisstarfsfólks til að stunda störf sín eins og það kýs sjálft. Það býr við ákveðið kerfi sem veitir faglegt sjálfræði, réttindi og forréttindi. Sé hróflað við þessu kerfi í því skyni að auka heilsu- vernd heyrast oft ramakvein um brot á réttindum og faglegu sjálf- ræði, en þó einkum um að dregið sé úr gæðum þjónustu við sjúka. Heilbrigðisstéttir geta villst á þröngum sérhagsmunum sínum og eiginlegum markmiðum heilbrigð- isþjónustu sem þeim ber að efla með starfi sínu. Það er til dæmis lágmarksskilyrði að heilbrigðis- stéttir geri sér grein fyrir því að hlutverk þeirra er að græða sjúkl- inga en ekki að græða á þeim. Nú- verandi skipulag á læknisþjónustu virðist ekki alltaf gera greinarmun á þessu tvennu. Dr. Vilhjálmur Árnason er dósent í heimspeki við Háskóla íslands. Hann vinnur nú að bók um siðfræði heil- brigðisþjónustu. Það yrði dýrkeypt frelsi ef menn gætu hagað sér eins og þeim sýnd- ist í umferðinni og lög kvæðu ekki á um það hvort aka ætti á hægri eða vinstri vegarhelmingi og hver ætti forgang fyrir hverj- um. 30 HEILBRIGÐISMÁL 2/1993

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.