Heilbrigðismál - 01.06.1996, Síða 12

Heilbrigðismál - 01.06.1996, Síða 12
Ef tóbak dræpi dýr ... Grein eftir Svein Magnússon Reykingar eru langstærsta orsök sjúkdóma sem hægt er að koma í veg fyrir. Hér á landi deyja um þrjú hundruð manns á ári úr sjúkdóm- um sem rekja má beint til reykinga, fleiri en af slysum, ofbeldi, áfengis- misnotkun og eiturlyfjanotkun samanlagt. Viðbrögðin við þessum ógnvaldi eru ekki í neinu samræmi við afleiðingarnar. Reykingar verða útundan og iðulega er litið á þær sem sjálfsagðan ósóma. Nýjasta dæmið um öfgakennd viðbrögð almennings og yfirvalda er kúafárið í Bretlandi, sem hefur hugsanlega orðið 10 manns að fjör- tjóni. I þessu sama landi deyja um 6.000 manns á ári í umferðarslysum og um 120.000 manns vegna reyk- inga. Yfirvöld í Evrópu bregðast af fullum þunga við kúafárinu en um leið er slakað á kröfum um tób- aksvarnir, að fyrirmælum sömu yf- irvalda. Löggjafinn setur ströng viðurlög gegn mengun, gegn hættu á vinnu- stöðum, hættu í umferð á landi, lofti og legi en þegar kemur að vörnum gegn ógnvænlegasta valdi sjúkdóma og dauða verða við- brögðin dræm. Aðgerðir löggjafans hér á landi hafa einkennst af seina- gangi og jafnvel undanhaldi síð- ustu árin. Hert tóbaksvarnalög voru lengi á leið gegnum Alþingi. Virk verðlagningarákvæði með heimild til hækkunar á tóbaki hafa ekki átt upp á pallborðið hjá stjórn- málamönnum. Þegar hlustað er á erlenda fyrir- lesara ræða um vandamál tóbaks- neyslu verður manni ljóst að vandi íslendinga er á margan hátt auð- veldari viðureignar en vandi ann- arra þjóða. Hér eru hvorki bændur sem rækta tóbak né verksmiðjur með fjölda fólks í vinnu sem gerir úr því söluvarning. Baráttan á ís- landi ætti eingöngu að vera við fá- eina hagsmunaaðila, innflytjendur vörunnar. Ahrif þeirra eru hins vegar veruleg, jafnvel inni á Al- þingi, og í mótsögn við hagsmuni fjöldans. Aðrir helstu andstæðingar tób- aksvarna eru þeir sem einblína á óheft frelsi sem lausn allra mála. Það lítur út fyrir að hjá sumum ráðamönnum sé frelsi til að skaða heilsu fólks meira metið en sjálf- sagðar takmarkanir á tóbakssölu og reykingum. Þeir virðast telja að tóbak eigi að lúta sömu lögmálum og aðrar neysluvörur eða nauð- synjavörur. Tóbak er eitur og á að fara með það sem slíkt. Ekki eðlilegt að reykja Eitt stærsta verkefni heilbrigðis- starfsfólks í baráttunni við tóbaks- neysluna er að benda aftur og aftur á að reykingar eru óeðlileg hegðun. Neysla tóbaks verður gerð óeðlileg með því að hvetja samfélagið til að hafna reykingum í ýmsu félagslegu samhengi, t.d. í skólum, á vinnu- stöðum, á stöðum þar sem almenn- ingur kemur saman og á öðrum þeim stöðum þar sem líklegt er að margir safnist saman sem ekki reykja. Hér á landi hefur reyklausum stöðum fjölgað verulega, bæði afgreiðslustöðum, vinnustöðum, heimilum, samkomustöðum og far- artækjum. Þetta er glöggt dæmi um vel heppnað átak við að gera reyk- ingar óeðlilegar. Reyklaust rými verndar ekki ein- göngu þá sem ekki reykja, það gef- ur líka skýr skilaboð til barna, unglinga og fullorðinna um nei- kvæðni þess að reykja og gefur skýrt í skyn, að reykingar eru til óþæginda og félagslega óæskilegar eða ólíðandi. Það sem hefur áunnist Tóbaksauglýsingar voru bannaðar (1971 og 1977). Markviss fræðsla hefur verið í grunnskólum (frá 1975). Bannað var að selja tóbak þeim sem voru yngri en 16 ára (1985) og aldursmarkið síðar hækkað í 18 ár (1996). Almenningi var tryggður réttur til reykleysis á afgreiðslu- og þjónustustöðum og í mörgum almenningsfarartækjum (1985). Viðvörunarmerkingar voru teknar upp (1985) en þeim var síðar breytt að kröfu Evrópusambandsins (1996). Settar voru reglur um takmarkanir á reykingum á vinnustöðum (1985) og um borð í skipum (1993). Reykleysi hefur náðst fram í flugi innanlands (1984) og milli landa (1995). Kvikmyndahús urðu reyklaus (1995). Reykingar voru alveg bannaðar í leikskólum, grunnskólum, fram- haldsskólum og heilbrigðisstofnunum (1996). Reyklaust tóbak verður bannað (1997). 12 HEILBRIGÐISMÁL 2/1996

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.