Heilbrigðismál - 01.06.1996, Síða 13

Heilbrigðismál - 01.06.1996, Síða 13
Nokkrar staðreyndir • Rannsóknir sýna að helmingur þeirra sem deyja úr reykingasjúkdómum er á aldrinum frá 35 ára til 69 ára. • Þeir sem reykja stytta líf sitt að meðal- tali um sex til átta ár, en það samsvar- ar tíu mínútum fyrir hverja sígarettu sem reykt er. • A síðasta ári voru seldar um 370 millj- ón sígarettur hér á Jandi, eðá meira en milljón sígarettur á dag. • Fjórði hver fuíloroinn Íslendingur reykir. ’SW-, • Meira en fimmtíu þúsund núlifandi Islendingum hefur tekist að hætta að reykja. Enn má bæta um betur. Hvaða vit er í því að leyfa reykingar á litl- um veitingastöðum, til dæmis á listasöfnum eða menningarmið- stöðvum? Minnumst þess aðþrír af hverjum fjórum fullorðnum Islend- ingum reykja ekki. Islenskar rannsóknir hafa sýnt að reykingar foreldra inni á heimilum hafa bein og óbein áhrif á börn. Samkvæmt erlendum rannsóknum skiptir hegðun foreldranna miklu máli en einnig skoðanir þeirra. Það er eitt að foreldri reyki og annað hver boðskapurinn er. Það getur dregið úr fordæmisáhrifum ef foreldri lýsir andstöðu við reyking- ar þó svo að það sé háð nikótíni. Þetta má til dæmis gera með því að reykja ekki inni á heimilum eða í bíl fjölskyldunnar. Aðrir staðir sem veruleg áhrif hafa á barnið snemma á ævi þess eru leikskólar og heimili dag- mæðra. Barnið fær skýr skilaboð frá allri hegðun sem á sér stað í svo nánu umhverfi og því geta jákvæð uppeldisáhrif foreldra farið fyrir lít- ið ef barnið er stóran hluta dagsins undir allt öðrum áhrifum. Þess vegna hlýtur það að vera sjálfsögð krafa allra að skólar, þar með taldir leikskólar, séu algjörlega reyklausir, eins og lög mæla nú fyrir um. Bregðast parfhart við Það er í lok grunnskólans og byrjun framhaldsskólans sem flest- ir byrja að reykja. Því má segja að upphaf reykinga setji þá sem tengj- ast skólaheilsugæslunni í enn meiri ábyrgðarstöðu. Skapa þarf svigrúm til að skólalæknar og skólahjúkrun- arfræðingar geti hjálpað ungling- um að losna við tóbak ekki síður en aðra óværu. Hart er brugðist við ef lús finnst á einum nemanda en menn láta sér fátt um finnast þó að 800-1000 unglingar byrji að reykja á hverju ári, flestir á grunnskólaaldri. Enginn hefur látið lífið vegna lúsar en annar hver reykingamaður er beinlínis að dæma sjálfan sig til dauða! Ýmiss konar hegðunarfræðilegar rannsóknir hafa verið gerðar á unglingum, bæði hérlendis og er- lendis. Þórólfur Þórlindsson pró- fessor hefur bent á jákvæð tengsl við íþróttalíf og annað það sem unglingar gera í frítímum. Alls staðar kemur fram tilhneig- ing stúlkna til þess að reykja frekar en stráka. Flestir hafa þá skoðun að stúlkur séu í rneiri þörf fyrir hóp- inn, og hræddari við að hópurinn segi skilið við þær, og séu þess vegna tilbúnar til þess að taka upp siði sem tryggja veru þeirra í ákveðnum hópum. Þeir unglingar sem ánetjast reyk- ingum eru oft sérstakir persónu- leikar, baldnari og áhættusæknari en aðrir, standa sig yfirleitt fremur illa í námi og hafa lélegt samband við skólann. Þá er sjálfsmat þeirra og sjálfsálit minna en hinna. Unglingar svara líkt og fullorðnir þegar þeir eru spurðir af hverju þeir reykja. Þeir segjast reykja af því að þeir ætla að róa taugarnar, vera með hinum, sýna sjálfstæði og stjórna líkamsþyngd. Sumir telja sig hafa ánægju af því að reykja. Allt hljómar þetta líkt og fullorðnir séu að tala. Hlutverk heilbrigðisstarfsfólks Læknar og annað heilbrigðis- starfsfólk gegnir mjög veigamiklu hlutverki í baráttunni gegn tóbaks- notkun. Rannsóknir hafa sýnt að I 1 | Það sem þarf að gera • Fylgja þarf eftir banni við tóbakssölu til barna og svipta sölustaði leyfi til tóbakssölu ef út af er brugðið. • Slíta þarf samhengi tóbaksværðs og vísitölu til að auðveldara verði að hækka tóbaksverð. • Tryggja þarf rétt til reykleysis á veitingahúsum. • Losa þarf börn við reykmettað loft á heimilum og í bílum. • Auðvelda þarf starfsmönnum skóla og heilbrigðisþjónustunnar að bregðast við af festu ef börn byrja að fikta við reykingar. • Harnra þarf á því að reykingar eru manninum ekki eðlilegar og rnenga umhverfið meira en flest annað. • Bannað verði að stilla tóbaki upp í hillur. Þannig er verið að auglýsa það. • Stækka þarf viðvörunarmerkingar á ný og draga úr vægi vöru- merkja á umbúðum tii að hindra áhrif óbeinna auglýsinga. • Berjast þarf gegn því að reykt sé í leiksýningum og kvikmyndum. • Fækka þarf sölustöðum tóbaks. HEILBRIGÐISMÁL 2/1996 13

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.