Heilbrigðismál - 01.06.1996, Síða 22

Heilbrigðismál - 01.06.1996, Síða 22
maður, sem ekki lét sig varða vandamál atvinnuvega, en nú varð hann að taka virkan þátt í að leysa vandamál iðnaðarins. Innan eins árs frá komu hans til Lille var hann byrjaður að einbeita sér að vanda- málum víniðnaðarins, sem var ein helsta iðnaðargrein héraðsins. I þeim rannsóknum sem Pasteur stundaði í Lille komu vandvirkni og yfirsýn hans greinilega í ljós og hann sýndi fram á ýmsa þætti sem höfðu áhrif á gerhvata, en það eru lífrænir hvatar sem taka þátt í ýms- um gagnlegum efnabreytingum. Hann gerði sér jafnvel grein fyrir verkun ýmissa sóttvarnarefna í fyrsta skipti. Hann sýndi fram á að lauksafi hefur áhrif á ger, en ekki á mjólkursýrugerhvatana. Þessar og aðrar uppgötvanir sínar birti Pa- steur árið 1857 í stuttri tímarits- grein, sem er talin vera grundvöllur vísindalegrar örverufræði og marka tímamót í lífefna- og líf- fræðivísindum. Þótt Pasteur notaði þessa þekk- ingu sína nær eingöngu til fram- leiðslu á víni, ediki og bjór skildi hann að hægt var að nota örverur til þess að framkvæma næstum hvaða lífefnafræðilegu breytingu sem var, eins og greinilega kemur fram er hann sagði: „Ég er sann- færður um að sá dagur mun koma að örverur verða notaðar í iðnaði sökum hæfileika þeirra til þess að breyta lífrænu efni." Þessi spá- mannlegu orð Pasteurs hafa svo sannarlega ræst þar eð ýmsar líf- rænar sýrur, leysiefni, vítamín, lyf og gerhvatar, svo aðeins nokkur dæmi séu tekin, eru framleidd í stórum stíl með þeim efnabreyting- um sem vissar örverur hvetja, en þetta er allt rökrétt afleiðing af rannsóknum Pasteurs. Ahrif örvera Arið 1857 sneri Pasteur aftur til Parísar að sínum gamla háskóla, Ecole Normale Superieure. Eftir það helgaði hann krafta sína rann- sóknum á sjúkdómum í mönnum og dýrum. Eitt af þeim rannsóknarverkefn- um, sem hann tók sér fyrir hendur eftir komuna til Parísar, var varð- andi svokallaða sjálfkviknunar- kenningu, sem mjög var umdeild á þessum tíma. Ef hinar ýmsu breyt- ingar sem áttu sér stað í lífrænum efnum svo sem súrnun mjólkur, alkóhólgerjun, ediksmyndun, rotn- un kjöts og fleiri breytingar urðu af völdum örvera, hvaðan komu þá þessar örverur? Kviknuðu þær sjálfkrafa eða voru þær einhvers staðar tilbúnar að hefja starfsemi sína um leið og hentugt tækifæri byðist. Þessum og öðrum ámóta spurningum svaraði Pasteur fyrst- ur manna. Árið 1877 markar þáttaskil í lífi Pasteurs og sögu heilbrigðisvís- inda. I aprílmánuði það ár gaf hann út fyrstu rannsóknir sínar á fniltis- bruna, sem er sjúkdómur er herjar bæði á menn og dýr. Þessi ritgerð hans stendur í samhengi við kenn- inguna um að örverur geti valdið smitsjúkdómum sem án alls efa er ein merkilegasta vísindakenning, sem sönnuð hefur verið, á sama hátt og ritgerð hans árið 1857 um mjólkursýru stendur í samhengi við kenninguna um, að örverur geti valdið gerjun. Það er athyglisvert að Pasteur eyddi því sem eftir var ævinnar til þess að rannsaka líf- fræði- og læknisfræðivandamál, Mikil áhætta Louis Pasteur tók mikla áhættu þegar hann féllst á það, 7. júlí 1885, að Joseph Meister fengi bólusetningu gegn hundaæði. Þrem dög- um áður hafði óður hundur bitið drenginn og fullyrtu læknar að engin von væri um að lifa það af. Pasteur hafði áttað sig á því hvernig hægt væri að vekja mótefnasvörun með veikluðum veirum og hafði gert tilraunir á dýrum. Meister var bólusettur tólf sinnum á tíu dögum. Fyrst í stað var Pasteur mjög áhyggjufullur en smám sam- an kom árangurinn í ljós. I bréfi til vinar síns sagði hann: „Ef til vill eru mestu stórviðburðir í læknisfræði þessarar aldar að gerast." Hann reyndist sannspár. enda þótt hann væri menntaður sem efnafræðingur og hefði aldrei numið líffræði né læknisfræði. Grundvöllur aðgerða Listers Eins og nærri má geta höfðu læknar þungar áhyggjur af því hve oft ígerðir hlupu í sár og þær urðu í mörgum tilvikum svo magnaðar að lífi sjúklingsins varð ekki bjargað. Pasteur hafði oft, bæði í ræðu og riti, haldið því fram að smitsjúk- dómar væru í nánu samhengi við gerjun og rotnun. Árið 1864 náðu skrif Pasteurs um þessi efni augum skoska skurðlæknisins Joseph List- er. Á grundvelli rannsókna Pa- steurs komst Lister á þá skoðun, að örverur gætu valdið ígerðum í sár- um á hliðstæðan hátt og þær gætu valdið gerjun og rotnun. Af þessum sökum lagði hann til að allar tiltæk- ar ráðstafanir yrðu gerðar til þess að koma í veg fyrir að örverur kæmust í hendur og tæki skurð- læknisins og að fjarlægja þær úr loftinu sem lék um skurðstaðinn. I þessu skyni notaði Lister úða af sóttvarnarefninu fenól eða kar- bólsýru. Þannig hófst tímabil nú- tímaskurðlækninga sem byggja á vísindalegum grunni. Lister var sér fyllilega meðvit- andi um þá þakkarskuld sem hann stóð í við Pasteur, en rit hans voru kveikjan að þessum merku rann- sóknarstörfum Listers og hann við- urkenndi oft þessa staðreynd opin- berlega. Sjúkdómar í silkiormum Það voru eingöngu vitsmunaleg- ar hugleiðingar sem leiddu til þeirrar sannfæringar að örverur gætu valdið sjúkdómum í mönn- um. En það var vegna alveg sér- stakra aðstæðna sem Pasteur fékk tækifæri til þess að rannsaka raun- verulegan sjúkdóm. Fyrstu sjúkl- ingar hans voru ekki menn heldur silkiormar. Framleiðsla á silki úr silkiormum var þá mikilvægur iðn- aður víða í Mið- og Suður-Frakk- landi. Um miðbik nítjándu aldar tók leyndardómsfullur sjúkdómur að herja á ormana. Um 1865 hafði sjúkdómurinn dreifst til flestra þeirra héraða, þar sem silkiormar voru ræktaðir og þessi iðnaður var á barmi gjaldþrots í Frakklandi og 22 HEILBRIGÐISMAL 2/1996

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.