Heilbrigðismál - 01.06.1996, Page 26
1959
• Fjármálaráðuneytið féllst á að félagið fengi eina
krónu af hverju heillaóskaskeyti Landsímans (síðar var
þessi tekjustofn afnuminn).
1960
• Alþingi samþykkti þingsályktun um „að krabba-
meinsvarnir verði efldar."
1962
• Heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna (NIH) veitti styrk
til rannsókna á magakrabbameini á Islandi.
• Fest voru kaup á húsinu Suðurgötu 22 í Reykjavík. I
fjáröflunarskyni voru seld heiðurshlutabréf í félaginu.
• A Alþingi var samþykkt að 25 aura skattur yrði lagð-
ur á hvern sígarettupakka (sem þá kostaði 15,80 kr.) og
skyldi gjaldið renna til félagsins (síðar var þessi tekju-
stofn afnuminn).
1963
• Krabbameinsfélagi Reykjavíkur var falið að annast
fræðslustarf heildarsamtakanna að miklu leyti.
1964
• Hafin var leit að krabbameini í leghálsi og forstigum
þess. Leitarstöðin (nefnd Leitarstöð B) var formlega
opnuð 29. júní í húsi félagsins við Suðurgötu. Eldri leit-
arstarfsemi (Leitarstöð A) var í október flutt úr Heilsu-
verndarstöðinni í Suðurgötuna.
• Lög félagsins voru endurskoðuð. Meirihluti fundar-
manna á aðalfundi var andvígur því að breyta nafni fé-
lagsins í Krabbavernd eða Krabbavarnarfélag íslands.
Höfuðstöðvar Krabbameinsfélagsins voru við Suður-
götu í Reykjavík í tvo áratugi, frá 1964. Aður hafði fé-
lagið skrifstofuaðstöðu f Blóðbankanum.
Barátta gegn reykingum ungs fólks var hert verulega
árið 1975, undir forystu Krabbameinsfélags Reykja-
víkur. Síðan hefur ástandið batnað til muna.
1968
• Við rannsóknir á krabbameinsvaldandi efnum í ís-
lenskum matvælum fundust slík efni í sviðum og harð-
reyktu kjöti.
1969
• Oddfellowar, Krabbameinsfélagið o.fl. gáfu Land-
spítalanum kóbaltgeislalækningatæki.
• Leit að leghálskrabbameini náði til alls landsins.
1970
• Á alþjóðlega heilbrigðisdaginn, 7. apríl, var fræðsla
um krabbamein, í útvarpi, sjónvarpi og blöðum.
• Húsið Suðurgata 24 var keypt.
• Átta krabbameinsfélög voru stofnuð sama árið, eink-
um til að annast leitarstarf á landsbyggðinni.
1971
• Bann við tóbaksauglýsingum varð að lögum, en
Krabbameinsfélagið hafði barist fyrir því í mörg ár.
1972
• í árslok var hætt rekstri Leitarstöðvar A.
1973
• Leit hófst að brjóstakrabbameini hjá konum sem
komu í leghálsskoðun í Leitarstöð B.
1974
• Samvinna hófst milli Krabbameinsskrárinnar, Al-
þjóða krabbameinsrannsóknastofnunarinnar (IARC) í
Lyon í Frakklandi, Erfðafræðinefndar Háskólans og
26 heilbrigðismAl 2/1996