Heilbrigðismál - 01.06.1996, Page 27
Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði um fjöl-
skyldurannsóknir í brjóstakrabbameini.
1975
• Heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna (NIH) veitti félag-
inu styrk til rannsóknaverkefna í tengslum við Krabba-
meinsskrána.
1976
• I tilefni af 25 ára afmæli Krabbameinsfélags Islands
var efnt til ráðstefnu um krabbameinslækningar,
ástand og horfur.
• Ný sókn hófst í baráttunni gegn reykingum. Krabba-
meinsfélag Reykjavíkur jók verulega fræðslu í grunn-
skólum og beitti nýjum aðferðum. Hafin var útgáfa á
blaðinu Tnkmark, og því dreift í tugþúsundum eintaka
til nemenda.
1982
• Landsráð gegn krabbameini var stofnað í maí, að
áskorun forseta íslands, forsætisráðherra og biskupsins
yfir íslandi. Aðild að ráðinu áttu 62 félagasamtök. Á
vegum ráðsins var skipulögð landssöfnun í október
undir kjörorðinu Þjóðarátak gegn krabbameini. Alls var
safnað 13 milljónum króna (samsvarar meira en hundr-
að milljónum nú) til að búa Krabbameinsfélaginu að-
stöðu til aukinnar starfsemi í nýju húsi, og auk þess
lögðu fyrirtæki fram 7 milljónir króna. I framhaldi af
söfnuninni festi Krabbameinsfélagið kaup á húsinu
Skógarhlíð 8, en það var þá í byggingu.
• Nafn Fréttabréfs um heilbrigðismál var stytt í Heilbrigð-
ismál.
1984
• í lok september flutti Krabbameinsfélagið í hið nýja
hús sitt við Skógarhlíð. Félaginu hafði verið gefinn
tölvubúnaður sem metinn var á 10-15 milljónir króna.
Jafnframt var tölvudeild félagsins stofnuð.
Húsið nr. 8 við Skógarhlíð í Reykjavík var keypt fyrir
fé sem safnaðist í Þjóðarátaki gegn krabbameini árið
1982 og tekið í notkun tveim árum síðar.
1985
• Krabbameinsfélaginu voru gefin tvö röntgentæki til
myndatöku af brjóstum. Röntgendeild var formlega
opnuð í maí.
• Stofnað var bókasafn, sem ætlað er að veita lærðum
sem leikum upplýsingar um krabbamein.
• Hafin var útgáfa á ársskýrslu félagsins, en hún hefur
síðan verið lögð fram á aðalfundi ár hvert.
• Skipað var í Vísindaráð Krabbameinsfélagsins í
fyrsta sinn. Ráðið fjallar um vísindaverkefni sem unnin
eru á vegum félagsins.
Formenn í 45 ár
í 45 ára sögu Krabbameinsfélags íslands hafa sex
menn verið formenn þess. Niels Dungal prófessor
var kosinn fyrsti formaður félagsins á stofnfundin-
um 27. júní 1951 (en hann var einnig fyrsti formaður
Krabbameinsfélags Reykjavíkur árið 1949). Niels
gegndi formennskunni þar til hann lést, árið 1965.
Bjarni Bjarnason læknir var formaður félagsins frá
1966 til 1973. Ólafur Bjarnason prófessor tók við af
Bjarna og var formaður til 1979. Næstu níu árin var
Gunnlaugur Snædal prófessor formaður félagsins.
Almar Grímsson apótekari var formaður frá 1988
til 1992 en Jón Þorgeir Hallgrímsson yfirlæknir hef-
ur verið formaður Krabbameinsfélags íslands síð-
ustu fjögur ár (sjá mynd og viðtal á bls. 34).
KRABBA-
MEINS-
FÉLAG
ÍSLANDS
45 ÁRA
HEILBRIGÐISMÁL 2/1996 27