Heilbrigðismál - 01.06.1996, Qupperneq 29
Tómas Jónasson
Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins er orðið árvisst.
Myndin var tekin í Reykjavík í vor en einnig var
hlaupið víða annars staðar á landinu.
1990
• Efnt var til Þjóðnrátaks gegn krabbameini í þriðja sinn,
nú undir kjörorðunum Til sigurs. Söfnunarfé nam 52
milljónum króna og var ákveðið að verja því til rann-
sókna á krabbameini, stuðnings við krabbameinssjúkl-
inga og fræðslu um heilbrigða lífshætti.
• Mikill stuðningur við starf félagsins kom fram í
könnun Hagvangs. Um 97% þeirra sem afstöðu tóku
sögðu að Krabbameinsfélagið hefði sinnt sínum verk-
efnum mjög vel eða vel.
1994
• Krabbameinsfélagið lagði til húsnæði fyrir vefjasýna-
safn Rannsóknastofu Háskólans. Það var tekið í notkun
á afmælisdegi Nielsar Dungal prófessors og nefnt
Dungalssafn.
• Ákveðið var að Krabbameinsfélagið tæki þátt í
kostnaði við nýja kennslustöðu í krabbameinslækning-
um við læknadeild Háskóla Islands.
• Matreiðslubókin Af bestu lyst var gefin út hjá Vöku-
Helgafelli í samvinnu við Hjartavernd, Krabbameinsfé-
lagið og Manneldisráð. Bókin hefur selst i meira en 13
þúsund eintökum.
1995
• Krabbameinsráðgjöfin tók til starfa. Hjúkrunarfræð-
ingar svara í síma 800 4040, sem er grænt númer, og
veita upplýsingar og ráðgjöf.
• Minningarsjóður Guðjóns B. Ólafssonar var stofnað-
ur. Hlutverk sjóðsins er að efla rannsóknir á krabba-
meini í blöðruhálskirtli.
1996
• Rishæð Skógarhlíðar 8 var tekin í notkun. Þar er
matsalur, námskeiðssalur og fundaherbergi. í kjölfarið
var aukið rými fyrir stuðningshópa, Heimahlynningu
og bókasafn á fyrstu hæð.
• Minningarsjóður Kristínar Björnsdóttur var stofnað-
ur. Hann á að styðja rannsóknir á krabbameini í börn-
um (sjá bls. 33).
• Krabbameinsfélaginu barst stór arfur eftir Jóhann
Vilmundarson (sjá bls. 33).
• Unnið var að gerð heimasíðu á Internetinu fyrir
Krabbameinsfélagið. Slóðin er: www.krabb.is
Vefjasýnasafn Rannsóknastofu Háskóla íslands í
meinafræði, Dungalssafn, komst í öruggt skjól árið
1994 fyrir tilverknað Krabbameinsfélagsins.
1991
• Blettaskoðun var boðin í fyrsta sinn, á sumardaginn
fyrsta, í samvinnu við Félag íslenskra húðlækna, í þeim
tilgangi að leita að krabbameini í húð. Síðan hefur slík
skoðun verið árlega.
• Krabbameinsfélagið og Rauði krossinn keyptu tvær
íbúðir í nágrenni Landspítalans, til afnota fyrir krabba-
meinssjúklinga og aðstandendur þeirra meðan á sjúk-
dómsmeðferð stendur. íbúðirnar voru vígðar á 40 ára
afmæli Krabbameinsfélags íslands. Síðar hafa fleiri
íbúðir verið keyptar og eru þær nú fjórar.
• R Samúelsson hf. gaf Krabbameinsfélaginu Toyota
sendibíl.
• Styrkjunr úr rannsókna- og tækjasjóði leitarsviðs
Krabbameinsfélagsins var úthlutað í fyrsta sinn.
1992
• Endurnýjaður var samningur við ríkið um skipulega
leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum. Hann gildir
til ársloka 1998.
HEILBRIGÐISMÁL 2/1996 29