Heilbrigðismál - 01.03.1998, Page 31
Öflug fráhvarfseinkenni
Fráhvarfseinkenni eftir nikótín
(sígarettureykingar) eru vel þekkt.
Þau eru venjulega öfug við verkan-
ir nikótíns. Fráhvarfseinkennin
(kvíði, óeirðni, aukin matarlyst,
hægðatregða, sljóleiki, hægari hjart-
sláttur, ásókn (craving) í sígarettur
o. fl.) byrja fáeinum klukkustund-
um eftir að síðasta sígarettan var
reykt. Þau ná hámarki eftir fáeina
daga og geta staðið í nokkrar vikur
og má upphefja þau með viðeig-
andi skammti af nikótíni í formi
reyktóbaks eða á annan hátt.
Tóbaksreykingar (sígarettureyk-
ingar) eru tvisvar til þrisvar sinn-
um algengari hjá fólki, sem haldið
er geðsjúkdómum en öðru fólki, og
þessu fólki gengur enn fremur mun
verr að hætta reykingum en öðrum.
Þetta á sennilega sér í lagi við fólk
með geðklofa. I þessu sambandi
ber þess að minnast að nikótín get-
ur aukið umbrot margra geðklofa-
lyfja í óvirk umbrotsefni. Að auki
rekur oft í augu hve margir alkó-
hólistar, og ekki síður fyrrverandi
alkóhólistar, reykja mikið og stund-
um heiftarlega. Freistandi er að
ætla að reykingar hjá fólki með
geðklofa (eða alkóhólisma) séu eins
konar sjálfslyfjun og megi ef til vill
skýra út frá verkunum fyrir tilstilli
dópamíns, glútamínsýru eða acetýl-
kólíns.
Tóbaksreykingar varna ótvírætt
uppkomu Parkinsonsjúkdóms og
er það án efa að rekja til nikótíns í
tóbaki. Verkun nikótíns í þessa
veru tengist óhjákvæmilega boð-
efninu dópamíni.
Við Alzheimersjúkdóm er hrörn-
un í nikótínviðtækjum og kólvirk-
um taugungum í ennisgeira heilans
(og raunar víðar) áberandi. Nikótín
ætti að geta komið að gagni við
Alzheimersjúkdóm, einkum á byrj-
unarstigi, ef það væri gefið í nægj-
anlega stórum skömmtum (í æð
eða undir húð). Má segja að þetta
hafi reynst rétt, en hefur þó ekki
lækningagildi.
Önnur efni eru skaðlegri
Enda þótt tóbaksreykingar séu
mjög heilsuspillandi, er öldungis
óvíst, hvern þátt nikótín á í þá
veru. Nikótín er ekki krabbameins-
valdur en það gæti virkjað krabba-
meinsvalda sem í líkamann koma
við reykingar vegna umbrota
óvirkra forstiga í virka krabba-
meinsvalda eða umbrotnað í
krabbameinsvalda (nikótínnítrósa-
mín). Nikótín eitt sér veldur og
trauðla lungnaskemmdum, og
gagnstætt þvf sem áður var talið er
í hæsta máta óvíst hvort nikótín á
nokkurn þátt í æðakölkun af völd-
um reykinga. í þessu sambandi er
sérlega áhugavert að kótínín, aðal-
umbrotsefni nikótíns, kann að
draga úr að minnsta kosti sumum
af þeim verkunum nikótíns á hjarta
og æðar, sem áður voru taldar geta
leitt til hjarta- og æðasjúkdóma.
Höfundur er þeirrar skoðunar, að
greina þurfi milli tóbaks og nikótíns.
Ef tóbak er leyft til reykinga eða á
annan hátt vegna verkunar nikó-
„Nikótín er sterklega vanabind-
andi og árangur af því að venja
menn af tóbaksreykingum er lé-
legur, eða hefur verið svo til þessa,
hverjum tiltækum ráðum sem hef-
ur verið beitt," segir greinarhöf-
undur.
tíns á miðtaugakerfið hlýtur að
vera sanngirnismál að leyfa notkun
hreins nikótins í þessu skyni, þar
eð með því móti myndi sparast
stórfé vegna minni tíðni lungna-,
hjarta- og æðasjúkdóma og illkynja
sjúkdóma og þar af leiðandi þján-
inga. Enda þótt fyrstu hreinu nikó-
tínsamsetningarnar (tyggigúmmí,
plástrar) hafi reynst lítt nothæfar til
þess að hefja eða viðhalda nikótín-
ávana, er ólíklegt að það eigi einnig
við hreint nikótín í dropum eða úða
í nef eða úða til innöndunar.
Nikótín er langoftast notað í
formi tóbaks (sérstaklega reyk-
tóbak). Full ástæða er til þess að
ætla að menn sækist í tóbak vegna
nikótíns, en það séu önnur efni í
tóbaki sem ráði mestu um skað-
semi tóbaksreykinga eða annarrar
tóbaksnotkunar. Nikótín er ekki
vímugjafi og er tiltölulega lítið not-
að við félagslegar athafnir sérstak-
legá. Nikótín er fyrst og fremst not-
að á ávanastigi og fíkn í það er
sjaldgæf í þeirri merkingu að allt líf
og starf hlutaðeigandi einstaklinga
snúist að heita má um það eitt að
afla sér nikótíns. Slíkt er þó þekkt,
ekki síst meðal lungnasjúklinga,
sem lengi hafa reykt heiftarlega.
Saknæmt athæfi við öflun nikótíns
(innbrot, smygl, peningafals eða
þjófnaður) hefur og ætíð verið
miklu fátíðara en til dæmis þegar
etanól (áfengi) á í hlut.
Notkun nikótíns á ávanastigi
kann að mótast af sjálfslyfjun oftar
en álitið hefur verið og nikótín hef-
ur eitthvert lækningagildi. Líffæra-
skemmdir af völdum tóbaksreyk-
inga eru áberandi og þar á meðal
vissar fósturskemmdir. Fráhvarfs-
einkenni eru oft áberandi, en yfir-
leitt ekki hættuleg. Dauðsföll af
völdum nikótíns í formi tóbaks eru
lítt þekkt (að minnsta kosti hér á
landi).
Þorkell Jóhannesson læknir, dr.
med., er prófessor í lyfjafræði við
læknadcild Háskóla íslands og for-
stöðumaður Rannsóknastofu í hjfja-
fræði. Grein þessi er útdráttur úr kafla
t nýju riti eftir Þorkel, „Ávana- og
fíkniefni og hjf". Þar er ítarleg heim-
ildaskrá og einnig nokkrar skýringar-
myndir. í síðasta tölublaði Heilbrigðis-
tnáia var grein eftir Þorkel um koffein.
HEILBRIGÐISMÁL 1/1998 31