Heilbrigðismál - 01.06.1998, Blaðsíða 4
Tómas Jí
Mismunandi
margir eru á
eftirlaunaaldri
Um það bil tíundi hver
íslendingur er 67 ára eða
eldri, alls rúmlega 27
þúsund manns, sam-
kvæmt upplýsingum frá
Hagstofu Islands, og er
þá miðað við 1. desember
1997.
Af kaupstöðunum eru
hlutfallslega flestir aldr-
aðir á Siglufirði, 14,5%,
næst koma Reykjavík,
11,7% og Neskaupstaður,
10,9%. Fæstir aldraðir eru
í Mosfellsbæ, 3,6% og
Snæfellsbæ, 6,4%.
í öðrum sveitarfé-
lögum er lægsta hlutfall-
ið í Bessastaðahreppi,
2,9%, en hæst í Bæjar-
hreppi í Austur-Skafta-
fellssýslu, 30% (17 af 57
íbúum eru 67 ára eða
eldri), og í Keldunes-
hreppi í Norður-Þingeyj-
arsýslu, 29%. Hlutfallið
er einnig hátt, rúmlega
20%, í Hofshreppi í Aust-
ur-Skaftafellssýslu, Þver-
árhlíðarhreppi í Mýra-
sýslu og Fljótahreppi í
Skagafjarðarsýslu. Sumir
þessara hreppa hafa nú
verið sameinaðir öðrum.
Aðeins 40 af 1359 íbúum
Bessastaðahrepps eru 67
ára eða eldri. Þetta er
lægsta hlutfall á land-
inu. Börnin eru því
áberandi í byggðinni á
Álftanesi.
Sorpbrennsla er
ekki síðri kostur
en sorpurðun
Um 85% af öllum úr-
gangi sem til fellur hér á
landi er urðaður, um 15%
fer í brennslu. „Segja má
að urðun hafi tekið við af
brennslu í mörgum til-
fellum þar sem verið var
að leggja niður opnar
brennslur. Nýjar
brennslustöðvar eru dýr-
ar og því einungis fá
sveitarfélög sem hafa lagt
í þann kostnað," segir
Lúðvík E. Gústafsson
jarðfræðingur hjá Holl-
ustuvernd ríkisins.
Svo virðist sem
brennsla sé þyrnir í aug-
um þeirra sem nálægt
henni búa en ekki er víst
að það sé umhverfinu
fyrir bestu að urða sem
mest. „Sorpbrennsla er
ekki slæmur kostur við
eyðingu úrgangs og met-
in skárri en urðun, þegar
orkunýting er höfð í
huga," segir Lúðvík. Að
því er varðar mengun
segir hann: „Sennilega
mengar lítil brennslustöð,
eins og sú sem er í Öræf-
um, ekki meira en einn
góður varðeldur eða ára-
mótabrenna."
Innlent
Minnsta tóbaks-
sala síðan 1954
Á síðasta ári voru seld
413,7 tonn af tóbaki, og
þykir sumum nóg um.
Salan hefur þó minnkað
stöðugt síðan 1984 en þá
var hún 122,6 tonnum
meiri en nú.
Breytingin er augljósari
þegar tekið er tillit til
fjölgunar landsmanna. Þá
kemur í ljós að heildar-
sala tóbaks árið 1997 var
2007 grömm á hvern full-
orðinn íbúa (minnsta sala
síðan 1954), sígarettusal-
an 1761 stykki (sú
minnsta síðan 1969),
vindlasalan 56 stykki
(minnsta sala síðan 1963)
og sala á reyktóbaki, nef-
tóbaki og munntóbaki
var 105 grömm á hvern
fullorðinn íbúa (minnsta
sala síðan mælingar hóf-
ust árið 1941).
Sölutölur fyrir fyrri
hluta ársins 1998 benda
til að enn dragi úr tób-
akssölunni.
Beltin spennt
Hópbílar hf., sem er
dótturfyrirtæki Hag-
vagna, hafa sett öryggis-
belti í öll sæti í sínum
bílum, og munu vera
fyrstir íslenskra hóp-
ferðafyrirtækja til að
bjóða slíkt öryggi. Víða
erlendis er farið að gera
kröfur til að farþegar í
hópbifreiðum geti spennt
á sig bílbelti en yfirvöld
hafa ekki enn sett það
sem skilyrði fyrir akst-
ursleyfi.
Fræðsluyfirvöld í
Reykjavík stefna að því
að sem flestir hópbílar í
skólaakstri verði búnir
beltum.
Þrjátíu
reyklausir
veitingastaðir
Könnun sem Heil-
brigðiseftirlit Reykjavíkur
og Tóbaksvarnanefnd
gerðu í vor leiðir I ljós að
af 159 veitingastöðum í
borginni eru 30 reyklaus-
ir, flestir aðrir bjóða reyk-
laus svæði en 18 staðir
gera það ekki og brjóta
þannig lög um tób-
aksvarnir.
Hana-nú fékk heilsuverðlaun
Frístundahópurinn Hana-nú í Kópavogi fékk
heilsuverðlaun heilbrigðisráðherra haustið 1997.
Hópurinn hefur í fjórtán ár lagt áherslu á al-
hliða heilsurækt, meðal annars með reglu-
bundnum gönguferðum, og hvatt eldra fólk til
að stuðla að heilbrigðum lífsháttum. Um sex
hundruð manns taka þátt í starfi hópsins.
4 HEILBRIGÐISMÁL 2/1998