Heilbrigðismál - 01.06.1998, Blaðsíða 27
Aðalfundur Krabbameinsfélags íslands
Nýr formaður kosinn
Á aðalfundi Krabbameinsfélags íslands, sem haldinn
var í maí, tók Sigurður Björnsson yfirlæknir við for-
mennsku af Jóni Þorgeiri Hallgrímssyni yfirlækni sem
gaf ekki kost á sér lengur. Jón var formaður í sex ár en
hafði áður verið í stjórn félagsins og tengst þv'í með
öðrum hætti í meira en þrjá áratugi. Hann hefur nú
verið kjörinn í Heiðursráð Krabbameinsfélagsins.
Fram kom á aðalfundinum að starfsemin á síðasta
ári var með svipuðu sniði og áður en nokkur halli var á
rekstrinum. Gerður hefur verið þjónustusamningur við
heilbrigðisyfirvöld um Krabbameinsskrána og unnið er
að gerð samnings um leitarstarfið, en gildandi samn-
ingur rennur út um næstu áramót.
íslendingar gegna nú forystu í Norræna krabba-
meinssambandinu og sáu um árlega vísindaráðstefnu
sambandins, sem haldin var hér á landi í sumar.
Sagt var frá því á aðalfundinum að samið hefði verið
við Búnaðarbanka íslands um að gerast aðal styrktar-
aðili Krabbameinsfélags íslands og Krabbameinsfélags
Reykjavíkur. Bankinn verður kynntur sem slíkur í út-
gáfu- og kynningarefni félagsins, á happdrættismiðum,
heimasíðu, í Heilsuhlaupi Krabbameinsfélagsins og
víðar. Samningurinn er til fimm ára og í honum felst
einnig að öll bankaviðskipti félaganna verða við Bún-
aðarbankann.
I kjölfar aðalfundarins var þess minnst að tíu ár eru
síðan Rannsóknastofa í sameinda- og frumulíffræði tók
til starfa. Af því tilefni afhenti Oddfellowreglan félag-
inu að gjöf tvær dýrar og vandaðar smjásjár sem notað-
ar verða á rannsóknastofunni.
-F-
Myndir:
1. Jón Þorgeir Hallgrímsson fráfarandi formaður
Krabbameinsfélags Islands og Sigurður Björnsson
nýkjörinn formaður.
2. Skrifað undir samning um að Búnaðarbankinn ger-
ist aðal styrktaraðili Krabbameinsfélagsins. Fremri
e röð: Sveinn Magnússon varaformaður Krabbameins-
| félags Reykjavíkur, Stefán Pálsson aðalbankastjóri
7 Búnaðarbankans og Sigurður Björnsson formaður
P Krabbameinsfélags íslands. Aftari röð: Ásthildur
Bernharðsdóttir gjaldkeri Krabbameinsfélags Reykja-
víkur, Sólon Sigurðsson bankastjóri og Ingi R. Helga-
son gjaldkeri Krabbameinsfélags Islands.
3. Svipmynd frá aðalfundi Krabbameinsfélags fs-
lands í maí.
4. Frá afhendingu tveggja smásjáa sem notaðar verða
við krabbameinsrannsóknir: Geir Zoéga æðsti maður
Oddfellowreglunnar á íslandi og Helga M. Ög-
mundsdóttir forstöðumaður Rannsóknastofu í sam-
einda- og frumulíffræði.
HEILBRIGÐISMÁL 2/1998 27