Heilbrigðismál - 01.06.1998, Qupperneq 7
Hálftíma áreynsla á
hverjum degi gerir
meira en að draga úr
hættu á hjartasjúkdóm-
um. Með þessu móti má
einnig minnka líkur á
krabbameini í ristli, að
sögn bandaríska tíma-
ritsins Vibrant life.
Réttur taktur?
Rannsóknir sýna að
tónlist hefur áhrif á lík-
amsstarfsemina. Er það
skýrt með því að hljóm-
fall tónlistarinnar geti
myndað einhvers konar
samhljóm með hjart-
slætti, öndun og heila-
bylgjum, svo að nokkur
dæmi séu nefnd.
Talið er að tónlist hafi
jafnvel áhrif á matarlyst.
Ef leikin er róleg tónlist á
veitingastöðum borðar
fólk minna en þar sem
þögnin ræður ríkjum.
Vibrant Life,
mars-apríl 1998.
Hættuleg þyngd
Þeir sem eru of feitir
eru í tvöfaldri til þre-
faldri hættu á að deyja
úr hjartasjúkdómum
samanborið við þá sem
eru mátulega þungir. Þar
við bætist hætta á syk-
ursýki og jafnvel krabba-
meini. Það vakti athygli í
niðurstöðum rannsókna
frá Norður-Karólínu að
hættan er meiri fyrir
fimmtugt en hjá þeim
sem eldri eru.
Harvard Health Letter,
mars 1998.
Bað fyrir
svefninn
Þeir sem eiga í erfið-
leikum með að sofna á
kvöldin ættu að reyna
gamalt og gott ráð: Fara í
heitt bað áður en lagst er
til hvílu. Að baðinu
loknu lækkar líkams-
hitinn nokkuð hratt, það
eykur syfju og getur
tryggt djúpan og endur-
nærandi svefn.
Vibrant Life,
júlí-ágúst 1998.
E-vítamín
handa þeim eldri
Rannsókn sem gerð
var við Tufts háskóla í
Bandaríkjunum bendir til
þess að eldri borgarar
sem taka E-vítamín
reglulega (200-800 al-
þjóðaeiningar á dag) séu
betur á sig komnir en
þeir sem fá lítið af þessu
vítamíni. Þeir fá síður
kvef eða flensu og hugs-
anlega hægir vítamín-
neyslan á elliglöpum.
Áður hefur verið fullyrt
að E-vítamín veiti vörn
Eldri borgarar ættu að
taka E-vítamín daglega.
gegn hjartasjúkdómum,
krabbameini og gigt.
Health, september 1997.
Þær léttu
anda léttar
Konur sem eru þriðj-
ungi of þungar eru í
þrisvar sinnum meiri
hættu á að fá astma held-
ur en hæfilega þungar
konur. Vísindamenn í
Boston segja að um-
framþyngdin reyni mikið
á öndunarfærin og að
þær þungu séu einnig
næmari en aðrar konur
fyrir þeim þáttum sem
koma astma af stað.
American Health,
júlí-ágúst 1998.
Heilbrigðari
lífshættir
Neysluvenjur Banda-
ríkjamanna hafa breyst til
batnaðar síðasta aldar-
fjórðunginn. Kannanir
sýna að dregið hefur úr
neyslu á eggjum, rauðu
kjöti og feitri mjólk. Jafn-
framt hefur aukist neysla
á grænmeti, ávöxtum,
korni og mögrum mjólk-
urafurðum. Hins vegar
hefur sykurneyslan auk-
ist.
Þrátt fyrir þetta sýna
aðrar rannsóknir að enn
sé hægt að bæta lífshætt-
ina.
Vibrant Life,
júlí-ágúst 1998.
Hvað segirðu?
Heyrnarleysi er nær
helmingi algengara með-
al reykingamanna en
þeirra sem reykja ekki.
Þetta sýna niðurstöður
rannsóknar sem gerð var
í Wisconsin í Bandaríkj-
unum. Þeir sem reykja
ekki sjálfir en eru mikið í
reyk frá öðrum eru einn-
ig í aukinni hættu.
JAMA, júni 1998.
Kívíávöxturinn er hlað-
inn næringarefnum.
Valdi Eva
ekki rétt?
Ef Eva hefði verið að
leita að næringarríkum
ávexti í aldingarðinum
forðum daga hefði hún
valið kíví í stað eplis.
Þegar félag bandarískra
næringarfræðinga bar
saman 27 algengar teg-
undir ávaxta kom í ljós
að kíví hefur mest nær-
ingargildi miðað við
þyngd. í öðru og þriðja
sæti voru melónutegund-
ir (papaya og canta-
loupe). Meira að segja
appelsínur voru ofar á
blaði en epli.
American Health,
október 1997.
Gleymska
vegna reykinga
Hollensk rannsókn
sýnir að reykingamenn
sem komnir eru á efri ár
standi sig ekki eins vel
og aðrir á prófum sem
meta andlega hæfni.
Þeim hættir frekar en
hinum reyklausu til að
gleyma hvar þeir lögðu
lyklana og hvað sam-
ferðafólkið heitir. Þá eiga
þeir einnig erfitt með að
telja smámynt eða muna
símanúmer.
Hugsanlega er skýr-
inga að leita í því að
reykingar geta stíflað
smáæðar við heilann.
Pathfinder, apríl 1998.
HEILBRIGÐiSMÁL 2/1998 7