Heilbrigðismál - 01.06.1998, Qupperneq 8

Heilbrigðismál - 01.06.1998, Qupperneq 8
Gamalt Taumhald á tilfinningum Gott uppeldi er fólgið í því meðal annars að hafa taumhald á tilfinningum sínum svo að þær sleppi aldrei undan stjórn skyn- seminnar og viljans. En slíkt uppeldi fæst ekki nema í hörðum skóla, sem fæst okkar hafa gengið í gegnum. Niels Dungal prófessor (f. 1897, á. 1965). Fréttabréf um heilbrigðismál, maí-júní 1955. Allir jafn kærir Allir menn eiga að mynda eitt þjóðfélag, eitt bræðrafélag. Ættjarðar- ástin, sem er notuð til að æsa upp þjóðaríg og ófrið, er tilfinning sem hefur engan rétt á sér. Allir menn eiga að vera okkur jafn kærir, hverrar þjóðar sem þeir eru. Þorsteinn Gíslason ritstjóri (f. 1867, d. 1938). Úr Sunnanfara. Skáldskapur og stjórnmál, 1966. Ást og elska Það hugarþel er vér köllum ást er elska, í frummerkingu þess orðs, að það er frjótt, skap- andi, verndandi, gefandi, fórnandi. En eins og hvert annað hugarþel þróast elskan af því starfi er hún leiðir til . . . Vér getum fengið ást á hverri þeirri veru, manni, mál- efni eða hugsjón sem vér þjónum dyggilega og fórnum kröftum vorum fyrir . . . Plató kenndi að ástin á hugsjón hins fagra, góða og sanna knýr menn áfram til æðra lífs, stig af stigi. Guðmundur Finnbogason prófessor (f. 1873, d. 1944). Samtíð og saga, 1943. Flækjast ekki fyrir Enginn vafi er á því að meiri regla er að komast á götuumferðina. Það eru færri og færri sem „krossa strítuna" í ská- horn, en fleiri og fleiri sem venjast við að fara yfir götuna innan þeirra svæða sem afmörkuð eru á götuhornum, þar sem Auglýsingar um ágæti tiltekinna bifreiðateg- unda eru ekki nýjar af nálinni. f blaðinu ísa- fold birtist 1. febrúar 1919 auglýsing um Overland bifreið. „Fjöðr- unum þannig fyrirkom- mest er umferðin. Með þessu móti verður það fátíðara að fótgangandi menn séu að flækjast fyr- ir á akbrautum. Morgunblaðið, 28. júlí 1938. Komið undir náttúrunni Náttúruvísindin eru sú grein mannlegrar visku er skýrir frá öllum líkam- legum hlutum og rann- sakar öfl þeirra og eðli . . . Náttúrufræðin er allra vísinda indælust og ið að verstu vegir finn- ast sem sléttir. Óvenju- lega sver togleðursdekk miðað við stærð bif- reiðarinnar. Oll stjórn- tæki eru á stýrinu svo kvenfólk getur auðveld- lega stjórnað henni." nytsemi hennar harla mikil og margfaldleg. Hið líkamlega líf manns- ins hér á jörðu er að kalla má allt saman kom- ið undir náttúrunni og réttri þekkingu á þeim hlutum er hún framleið- ir . . . Náttúruvísindin forða oss fyrir margföldu tjóni, veita oss ærinn ávinning og auka þannig farsæld manna og vel- vegnun. Jónas Hallgrímsson skáld og náttúrufræðingur (f. 1807, d. 1845). Ritverk, 1989. Upphaf tómataræktar í byrjun aldarinnar í sumar sem leið voru ræktað- ar 45 tómötuplöntur í suðurenda ræktunarhússins á Reykjum í Mosfellssveit, hjá Bjarna bónda Asgeirssyni, og mun það vera í fyrsta sinn sem tómötur hafa verið ræktaðar hér á íslandi svo nokkru nemi. Mun það þó þykja Iítið seinna. Ég veit aðeins um að tómötur hafi verið ræktaðar hér í húsum inni tvisvar eða þrisvar sinnum áður, en þó ekki fleiri en 2-3 plöntur alls. Það er enginn efi á því að tómöturækt mun eiga allmikla framtíð fyrir sér á ís- landi ... Tómatan er frá Perú, og var ræktuð þar til forna, var flutt til Evrópu skömmu eftir 1520 og er nú ræktuð um allan heim . . . Ávextirnir . . . eru taldir ríkir af lífefnum (vitaminum), eru bragðgóðir og hressandi . . . Síðast í fyrra mánuði höfðu alls fengist 900 þroskaðar tóm- ötur af þessum 45 plöntum, og þá voru ennþá nokkrir ávextir eftir. Svo voru bragðgæðin mikli að ég minnist ekki að hafa feng- ið betri tómötur annars staðar, og allar seldust þær jafnóðum og þær þroskuðust. Vafalaust er mikill markaður fyrir tómötur í Reykjavík, því þær eru ljúffengar, og þeir sem venjast þeim verða sólgnir í þær. Væri heppilegt að tómöturæktin ykist sem fyrst svo hægt væri að stöðva allan innflutning hingað af tómötum, en hann mun vera í byrjun nú á hinum síðustu árum. Aðfluttar tómötur geta ekki jafn- ast á við þær íslensku að gæðum. Ragnar Ásgeirsson ráðunautur (f. 1895, d. 1973). Tíminn, 7. nóvem- ber 1925. Þess má geta að Óskar HaUdórsson, síðar sÚdarsaltandi, mun fyrstur manna hér á landi liafa ræktað tómata við hverahita á Reykj- um í Mosfellssveit árið 1913. 8 HEILBRIGÐISMAL 2/1998

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.