Heilbrigðismál - 01.06.1998, Síða 16
um. Það er marktækt lægra á Vest-
fjörðum og Norðurlandi heldur en í
Reykjavík. Aftur á móti er ekki
marktækur munur milli nýgengis-
ins á Austurlandi og í Reykjavík,
þó mikill sé. Nýgengi hjá konum er
hæst í Reykjavík en lægst á Norð-
urlandi vestra. Krabbamein í þvag-
blöðru hefur aukist verulega und-
anfarna áratugi, einkum meðal
karla. Reykingar eru taldar sterkur
áhættuþáttur. Einnig hefur þessi
sjúkdómur verið tengdur hættuleg-
um efnum, ekki síst í efnaiðnaði.
Erfitt er að skýra hátt nýgengi
þessa sjúkdóms meðal karla á
Austurlandi, en það hefur lítið
breyst á þessum tuttugu árum.
Ristilkrabbamein. Nýgengi hjá
körlum er hæst í Reykjavík en lang-
lægst á Austurlandi. Nýgengi hjá
konum er hæst í Reykjavík en lægst
á Vestfjörðum. Meðal karla er ný-
gengið marktækt hærra í Reykjavík
og á Reykjanesi en annars staðar á
landinu. Meðal kvenna er varla
marktækur munur á nýgengi milli
kjördæma. Frá 1977-86 til 1987-96
hefur nýgengi aukist í nokkrum
kjördæmum en minnkað í öðrum,
en munurinn er lítill. Krabbamein í
ristli er algengt á Vesturlöndum,
mun algengara en til dæmis í Asíu
og Afríku. Þetta hefur meðal ann-
ars verið rakið til mikillar neyslu
dýrafitu og lítillar neyslu trefjaríkr-
ar fæðu.
Eggjastokkakrabbamein. Ný-
gengi er hæst á Norðurlandi, þar
sem það hefur aukist mest. Ný-
gengi þar er marktækt hærra en í
Reykjavík. Að öðru leyti er ekki um
marktækan mun að ræða milli kjör-
dæma nema á Suðurlandi þar sem
nýgengið er marktækt lægra en í
Reykjavík. Lítið er vitað um
áhættuþætti þessa sjúkdóms.
Legbolskrabbamein. Nýgengi er
hæst í Reykjavík og er það mark-
Nýgengi krabbameins eftir kjördæmum. Karlar.
Árlegt nýgengi miðað við 100.000 karla, 1977-1996.
Byggt á upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands.
I aftari dálkinum (%) er sýnt hundraðshlutfall af nýgengi á öllu landinu.
Marktækur munur miðað við Reykjavík: *p<0.05% **p<0.01% ***p<0.001%
Öll Blööruháls- Lungna- Maga- Þvagblööru- Ristil-
krabba- kirlils- krabba- krabba- krabba- krabba-
mein krabbamein mein mein mein mein
Nýgengi % Nýgengi % Nýgengi % Nýgengi % Nýgengi % Nýgengi %
Landið allt 268,0 100 54,9 100 32,1 100 23,5 100 19,3 100 18,7 100
Reykjavík 300,7 112 66,3 121 37,5 117 22,9 97 22,1 115 23,7 127
Reykjanes 267,4 100’“ 56,2 102’ 34,2 107 23,9 102 18,7 97 20,4 109
Vesturland 221,0 82“* 44,3 81*** 18,7 58*’* 23,4 100 15,9 82 13,9 74“
Vestfirðir 220,1 82*** 47,7 87** 26,2 82* 26,4 112 9,7 50*** 12,0 64***
Norðurland vestra 233,7 87*** 41,2 75*** 27,3 85» 21,5 91 11,1 58*** 11,8 63***
Norðurland eystra 228,3 85’*’ 39,4 rjr2*** 27,1 84“ 20,2 86 15,4 80* 14,0 75***
Austurland 227,5 85*** 42,8 78**’ 27,3 85* 19,9 85 27,8 144 7,3 39***
Suðurland 244,7 91*** 56,4 103 23,2 72*** 21,8 93 20,7 107 17,2 92*
16 HEILBRIGÐISMÁL 2/1998