Heilbrigðismál - 01.06.1998, Page 20
Óvær böm - algeng byrjun
Kona um þrítugt kemur til læknis. Segir að vin-
kona sín hafi sent sig. Annars sé hún hætt að fara til
lækna. Föl, þreytt, greindarleg kona.
Aðalkvartanir: Höfuðverkur, vöðvaverkir, sífelld
þreyta í mörg ár, sljóleiki, pirruð í skapi, reynir þó
að vera „eins og manneskja". Nefnir aukalega að
hún sofi aðeins tvær til fjórar stundir í upphafi næt-
ur. Svefninn er óvær eða enginn úr því. Bíður
morgunsins andvaka. Segir að vinkonan telji að
svefnskorturinn sé aðalvandamálið.
Eftirfarandi saga býr að baki: Átti góða bernsku
og æsku í góðri fjölskyldu. Duglegur unglingur.
Giftist um tvítugt. Eignaðist barn fljótlega. Þótt
barnið virtist heilbrigt að öllu leyti var það óvært á
nóttunni fyrstu tvö árin.
Barn sem er óvært sefur ekki nema smádúra alla
nóttina og á daginn er sama sagan. Blessað barnið
vaknar, grætur og eins og allir vita er ekkert að gera
annað en að sinna grátandi ungbarni. Drífa sig fram
úr og annast barnið með þeim ráðum sem til eru.
Stundum finnur læknirinn eyrnabólgu sem vissu-
lega getur orðið þrálát, en læknast þó alltaf um síð-
ir. Svo getur verið þarmakrampi, ungbarnaastmi,
fæðuofnæmi. í sjálfu sér er gott þegar einhver skýr-
ing finnst og þar með verkefni til að leysa og von
um að ástandinu linni.
En stundum finnst engin skýring og þá er bara að
vona að ekkert alvarlegt sé að sem öllum hafi yfir-
sést, og reyna að halda út. Svo er haldið áfram þrátt
fyrir þreytu, spennu, bauga undir augum, höfuð-
verk, vöðvabólgur, magaverk, minnisleysi, nætur-
svita og martraðir. Þetta er venjuleg lýsing á því
streituástandi sem óhjákvæmilega skapast. Smám
saman bætist í þetta einkennasafn og einkennin lita
lífsstílinn.
Snjallir foreldrar skiptast á vöktum við slíkar að-
stæður, annað sefur í öðru herbergi eða öðru húsi
meðan hitt tekur vaktina. En til eru atvinnuaðstæð-
ur sem leyfa ekki slíka samhjálp og til eru einstæðir
foreldrar sem þurfa að sinna vinnu yfir daginn eða
hinum börnunum yfir daginn. Hjálpi allir heilagir
því barni sem þarf að umgangast slíka foreldra -
móður eða föður - örþreytta, vankaða, pirraða,
gleðilausa. „Mamma er svo stressuð og mest á
sjálfri sér," sönglaði einhver. Ekki er að furða þótt
hjónabönd jagist í sundur við slíkar aðstæður. Það
verða stundum allir hjálparlausir.
Loks birtir til. Barnið hættir að gráta á nóttunni
og sefur eins og engill hvað sem breytingunni olli.
En langþráð hvíld foreldrisins lætur á sér standa.
Móðirin er komin í vítahring síþreytu og streitu.
Sofnar seint og illa, vaknar sí og æ í svitabaði við
martraðir, vöðvaverki og friðleysi, þreytt frá
morgni til kvölds. Hún hefur lært af auðmýkjandi
reynslu að ekki þýðir að jarma svefnpillur út úr
lækninum. Hann er hræddur við ávana og þekkir
ekki önnur svæfandi lyf en þau sem hann telur að
valdið geti ávana.
Þar með hefst dapurlegur kafli sem getur orðið
langur. Foreldrið reynir að standa sig eins og mann-
eskja þótt komið sé í fyrrnefndan vítahring. Svefn-
lyfin eru á bannlista. Læknirinn virðist kunna allt
annað en að leiðrétta svefnskortsástand. Hann býð-
ur upp á skýringuna þunglyndi sem nú er mjög í
tísku og fín og dýr lyf við því. Einnig misgóð lyf
við verkjum og frábær lyf við hækkuðum magasýr-
um og blóðþrýstingi, auk rannsókna með nýjustu
hátækni.
Þótt hér sé talað um óvær börn sem tilefni þreytu
getur svipað ástand skapast vegna annarra harð-
indakafla i lífi hvers manns. Vandræðaástand
streitu og þreytu getur staðið í áratugi eða svo lengi
sem svefn kemst ekki í lag. Undraverðast er að
greindasta fólk skuli ekki átta sig á að engin mann-
vera þrífst með slitróttan svefn í örfáar stundir á
sólarhring - og það veit ekki heldur að til eru leiðir
út úr vítahringnum.
Þess má geta að ofangreind kona endurheimti
heilsu sína á þremur mánuðum. I. S. S.
„Svefninn veitir öllum sem þreyttir eru skjól,"
sagði skáldið.
20 HEILBRIGÐISMÁL 2/1998