Heilbrigðismál - 01.06.1998, Side 21

Heilbrigðismál - 01.06.1998, Side 21
hirði ekki um hann. Ólokin verkefni eru af- greidd með setningunni „nóg er nóttin". Sólsetrið og rökkrið eru hætt að stýra. Sú tilhneiging að láta sjónvarpið eða annað álíka stjórna háttatímanum er varhuga- verð. Hægt og hægt safnast þreyta, sem fólk áttar sig ekki á að þurfi að leiðrétta. Þreytunni fylgir aukin spenna sem vekur og dylur þannig þreytuna að hluta. Fólk reynir svo að komast gegnum daginn með örvandi efnum. Kannanir benda til að þriðjungur full- orðinna Bandaríkjamanna búi við skertan svefn í daglegu lífi. Þar af telja þrír af hverjum fjórum að svefnskorturinn skaði heilsuna. Um 13% dauðaslysa í umferð þar í landi eru talin stafa af því að ökumenn sofna við stýrið. Sá fjöldi jafngildir því að fullhlaðin risaþota farist daglega. Grunur leikur á að svefnskortur valdi fleiri slysum en ölvun við akstur veldur. Það er visst áhyggjuefni að líkamsrækt- arstöðvar okkar, sem sinna vel þjálfun og næringarráðgjöf, skuli ekki leggja meiri áherslu á þýðingu hvíldar í heilbrigð- um lífsstíl. Ófþjálfun getur verið vanda- mál, einkum ef hvíld er ónóg. Allir vita að þreyttur maður sem þarf að halda áfram getur það ekki nema með því að herða sig upp og knýja sig áfram. Það sama gerist hið innra. Sjálfvirka taugakerf- ið jafnt sem hormónin hækka spennu. Þreytu er ýtt til hliðar í bili en hún eykst og streita vex að sama skapi. Þriðjungur fullorðinna Bandaríkja- manna býr við skertan svefn í daglegu lífi. Um 13% dauðaslysa í umferð þar í landi eru talin stafa af því að ökumenn sofna við stýrið. Grunur leikur á að svefnskortur valdi fleiri slysum en ölvun við akstur. Svefn er for- senda heilbrigði á sama hátt og vatn, loft og næring. Mikil- vægi hans kemur greini- lega í ljós við svefnskort. Hin algenga tilhneiging langþreyttra ein- staklinga að bjarga sér í gegnum daginn með hjálp örvandi efna verðskuldar frekari umræðu. Kaffi er drukkið á íslandi í meira mæli en í nokkru öðru landi sem vitað er um. Fyrir nokkrum árum sýndi könnun Ei- ríks Arnar Arnarsonar og Asu Guðmunds- dóttur að meðalneysla íslenskra karlmanna yfir sextán ára aldri á kaffi eða drykkjum sem innihalda koffein (kóladrykkjum, tei o.fl.) jafngilti sjö kaffibollum á dag. Konur drukku einum bolla minna. Tveggja til þriggja lítra dagleg neysla á kaffi eða kóla- drykkjum er algeng hjá fólki sem komið er í þreytuástand. Koffein er örvandi, langverkandi lyf. Mikið kaffi drukkið að deginum truflar auðveldlega nætursvefn. Nikótín tóbaksins er annað örvandi lyf sem verkar róandi fyrstu sekúndumar en hækkar síðan spennu flestra líffærakerfa. Algengt er að bæði efnin, koffein og níkótín, séu notuð samtímis sem hjálpartæki fólks sem komið er í hinn sjálfvirka vítahring svefnskorts, þreytu og streitu. Þau eru öflugir hvatar til að gera ástandið enn verra. Vítahringir sípreytu Svefnrannsóknir hafa varpað ljósi á það hvernig vítahringir síþreytu viðhaldast hjá þeim sem hafa orðið hraktir af svefntapi. Streituviðbrögð eru sjálfvirk bjargráð lifandi veru í hrakningum af hvaða tagi sem þeir eru. Vöðvaspenna, verkir af öllu tagi, meltingartruflanir, kvíði, hugarangur eða æsingur - allt þetta veldur því að svefninn er hættur að koma nema stuttar stundir í senn. Líkamlegur sársauki af því einu að bylta sér í djúpum svefni, þegar svefn loks gefst, sársaukinn af því að hreyfa auma vöðva, vekur auðveldlega. Draumar verða martraðir þegar hormóna- framleiðsla líkamans miðast við neyðar- ástand hinnar þreyttu lífveru og slíkir draumar vekja. Það blasir við að örþreyttur maður á takmarkaða möguleika á að fá endurnær- andi svefn, einmitt vegna þess að streitu- ástandið sem slíkt - tilfinningaleg spenna, vöðvaverkir og aðrar truflanir - hindra svefn. Samspil líkamlegra og andlegra pátta Eftir að ljóst er orðið að líkami og sál er ekki tvennt heldur eitt gangverk með sí- virku samspili líkamlegra og andlegra þátta hefur skilningur aukist á því að lífs- stíll, hugarástand og andleg líðan yfirleitt HEILBRIGÐISMÁL 2/1998 21

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.