Heilbrigðismál - 01.06.1998, Blaðsíða 31

Heilbrigðismál - 01.06.1998, Blaðsíða 31
„að láta fólk í friði", eru þau ekki beinlínis háð efnahag þjóðarinnar. Samfélagslegu réttindin eru hins vegar jákvæð og fjalla um dreifingu gæða. Þau eru háð fjármagni og eru ekki þröskuldar- réttindi vegna þess að hægt er að uppfylla þau í mismiklum mæli. Gæðin sem úr er að spila eru mismikil, allt eftir efnahags- legri getu. Þau réttindi sem aðaláhersla hefur verið lögð á að tryggja í þeim laga- setningum um réttindi sjúklinga sem settar hafa verið í nágrannalöndum okkar ganga fyrst og fremst út á að tryggja hinn ein- staklingsbundna rétt. A það einnig við um þau lög um réttindi sjúklinga sem gengu í gildi hér á landi á miðju ári 1997. Með því að viðurkenna þátt sjúklingsins í meðferðinni hlýtur að verða keppikefli þeirra sem starfa með sjúklingum að sjá til þess að öll samskipti verði sem greiðust og eðlilegur hluti af fagmennsku þeirra. Ekki er þó hægt að gera ofurmannlegar kröfur til starfsfólksins því að til þess að upplýs- ingarnar komist sem best til skila og að þátttaka sjúklingsins byggist á réttum for- sendum er líka nauðsynlegt að hann hafi ákveðna grunnþekkingu á eigin líkama og starfsemi hans. Til þess að hafa forsendur til að verða „sjálfráða sjúklingur" verður einstaklingur- inn að vera vel upplýstur um eigin líkama. Hér endurspeglast mikilvægi góðrar al- mennrar menntunar. Það er ekki nóg að til- einka sér vitneskjuna um eigin líkama eftir að maður verður veikur, heldur þarf hún að vera liður í uppeldi sérhvers einstakl- ings til þess að hann geti, þegar á þarf að halda, axlað þá ábyrgð að vera „sjálfráða sjúklingur". Réttindi og skyldur Það má segja að réttindi sjúklinga og skyldur heilbrigðisstarfsfólks séu tvær hliðar á sama peningi. Það er skylda starfs- mannsins að haga sér á ákveðinn hátt til að réttur sjúklingsins sé tryggður. Þessar skyldur hafa hingað til verið tilgreindar í lögum og siðareglum heilbrigðisstétta. En einmitt með því að velta peningnum við og ræða um þann flöt sem kalla má rétt sjúkl- inga í stað þess að tala einvörðungu um skyldur starfsfólks á sér stað ákveðin við- horfsbreyting. Það er einmitt í þessari við- horfsbreytingu sem mikilvægi umræðunn- ar liggur. Það er gerð tilraun til að líta á samskipti heilbrigðisstarfsfólks og sjúkl- inga frá sjónarhorni sjúklingsins sjálfs. í stað þess að ganga út frá skyldum starfs- fólks og tala út frá reynslu heilbrigðis- starfsmannsins er talað um rétt sjúklingsins Það má segja að réttindi sjúkl- inga og skyldur heilbrigðis- starfsfólks séu tvær hliðar á sama peningi. og við setjum okkur í spor hans. Það sem gerir það sérstaklega brýnt siðferðilega að skoða málin út frá sjónarhorni sjúklingsins er einmitt sú veika staða, og þar með sú hætta á kúgun, sem hann er í innan heil- brigðiskerfisins. Með þessum nýja sjónar- hóli birtast ný sjónarmið sem nauðsynlegt er að taka tillit til. Þau réttindamál sem nú eru talin hvað brýnust, og endurspeglast í þeim alþjóðasamþykktum sem við erum aðilar að, birtast í þáttum eins og hvernig eigi að tryggja upplýst samþykki sjúklings fyrir meðferð, greiða aðgang hans að sjúkraskrám, vernda persónuupplýsingar um sjúklinginn og greiða leið kvartana til réttra aðila. Með breyttum aðstæðum gætu önnur mál öðlast meira vægi og farið væri að tala til dæmis um réttinn til að þekkja eigin uppruna, í tilvikum þar sem einstaklingur- inn er getinn með gjafasæði, réttinn til að þekkja ekki eigin erfðaefni og réttinn til að takmarka aðgang að vefjasýnum frá sjúkl- ingi. Þó að ofangreind atriði séu ekki mikil- væg í daglegu lífi þeirra sem njóta þjón- ustu heilbrigðiskerfisins kunna þau að öðl- ast aukið vægi á komandi árum. Umræðan verður því að vera í takt við þær öru breyt- ingar sem eiga sér stað á sviði rannsókna og lækninga. Ástríður Stefnnsdóttir er læknir og hefur auk þess lokið námi í heimspeki. HEILBRIGÐISMÁL 2/1998 31

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.