Heilbrigðismál - 01.06.1998, Blaðsíða 33

Heilbrigðismál - 01.06.1998, Blaðsíða 33
>félagið íslenskar rannsóknir sýna að reykingar auka hættu á mörgum tegundum krabbameins Konur eru í meiri hættu en karlar varðandi lungnakrabbamein Þeir sem reykja eru í 50-60% meiri hættu á að fá krabbamein heldur en þeir sem hafa aldrei reykt. Þetta kemur fram í niður- stöðum íslenskrar rannsóknar sem nýlega voru birtar í grein í tímarit- inu Cancer Epidemiology Biomark- ers & Prevention. Greinarhöfundar eru Hrafn Tulinius, Nikulás Sigfús- son, Helgi Sigvaldason, Kristín Bjarnadóttir og Laufey Tryggva- dóttir. Rannsókn þessi fjallaði um áhættuþætti illkynja sjúkdóma og var samvinnuverkefni Krabba- meinsskrár Krabbameinsfélags Is- lands og Rannsóknastöðvar Hjarta- verndar. Af 23 þúsund manns sem fóru í rannsókn hjá Hjartavernd greindust 1785 karlar og 1490 konur með krabbamein á árunum frá 1968 til 1995. í hóprannsókn Hjartaverndar var spurt um ýmsa lífshætti og gerðar mælingar á hæð, þyngd, blóðfitu og fleiru. Við samanburð á þessum þáttum kom í ljós að reykingar reyndust langsterkasti áhættuþátt- ur krabbameins í heild, bæði hjá körlum og konum, og einnig varð- andi lungnakrabbamein og nokkrar aðrar tegundir krabbameins (sjá töflu). Sérstaka athygli vekur að sígar- ettureykingar auka hættu á lungna- krabbameini meira meðal kvenna en karla. Áhættan eykst eftir því sem meira er reykt (sjá súlurit). Þannig eru konur sem reykja 25 eða fleiri sígarettur á dag í 44-faldri áhættu en karlar í 29-faldri áhættu miðað við þá sem hafa aldrei reykt. Þetta er staðfesting á niðurstöðum nokkurra nýrra erlendra rann- sókna. Að því er varðar aðra áhættu- þætti má nefna að aukin hæð og þyngd virðist geta aukið hættu á nokkrum tegundum krabbameins en í flestum tilvikum eru áhrifin ekki mikil. Taflan sýnir hlutfallslega áhættu þeirra sem reykja, samanborið við þá sem hafa aldrei reykt. Karlar: Krabbamein í lungum 10,4 Krabbamein í briskirtli 6,5 Krabbamein í þvagblöðru 2,4 Konur: Krabbamein í lungum 18,3 Krabbamein í leghálsi 2,5 Krabbamein í briskirtli 1,7 Krabbamein í ristli og endaþarmi 1,3 Reykingar margfalda hættu á lungnakrabbameini Niðurstöður rannsókna Krabbameinsskrárinnar og Hjartaverndar 13,5 Karlar 1,0 Konur 1,0 2,9 3,7 Hafa aldrei reykt 9,4 6,5 30,7 28,7 44,1 15,7 7,8 Hættir að reykja Reykja 1-14 sígarettur á dag Reykja 15-24 sígarettur á dag Reykja 25 eða fleiri sígarettur á dag Reykja vindla eða pípu HEILBRIGÐISMÁL 2/1998 33

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.