Samtíðin - 01.05.1934, Page 6
S AMTÍÐIN
að kjarni þess efnis, sem þau
flytja, birtist í e i n u f j ö 1-
1 e s n u tímariti.
Þessu tímariti, SAMTlÐINNI,
er svo háttað, að hun á að geta
orðið sameiginlegt tímarit marga
nh ugamannahópa.
Efnið verður aðgi-eint í flokka.
í upphafi hvers heftis verður
flokkur um almenn menningarmál.
En sérflokkar eru nú þegar
ákveðnir þessir: Uppeldis- og
mentamál, bókmentir og listir,
heimilismál, náttúrufræði og dýra.
vernd, útvarpsmál, íþróttir og
kýmni. Fleiri flokkum verður
bætt við svo fljótt sem unt er, og
verður efni þeirra: Iðnaðarmál,
heilbrigðismál, skáldsögur o. fl.
Þá er ennfremur gert ráð fyrir
að gefa út safn fræðirita, sem
komi út við og við í hálfu minna
broti, og má safna þeim örkum í
sjálfstæðar bækur.
Félögum verður gefinn kostur á
að eiga flokka í SAMTÍÐINNI,
og hafa íhlutunarrétt um ritstjórn
þeirra, með sérstökum samningi
við útgefendur.
SAMTÍÐIN ætlar að leiða hjá
sér alt dægurþras um málefni og
stefnur, og verður að því leyti
ldutlaus í pólitískum flokkadrætti.
En hún mun ei að síður ekki
skirrast við að flytja rökstuddar
fræðigreinar um stjórnmál, án
alls tillits til flokkslegra stjóm-
málaskoðana.
Ritstjóm SAMTlÐARINNAR
verður svo háttað, að efni margra
2
hefta verður að mestu leyti skipu-
lagt fyrirfram og fengnir færustu
menn, sem kostur er á, til þess
að rita um hvert efni fyrir sig.
Hefir í þessu skyni verið leitað
aðstoðar margra mentuðustu og
ritfærustu manna hér í Reykja-
vík, sem allir hafa lofað efni í
ritið. Skulu nokkrir þeirra nefnd-
ir hér: Alexander Jóhannesson
prófessor, Árni Friðriksson mag.,
Freysteinn Gunnarsson skóla-
stjóri, Gunnlaugur Claessen
doktor, Halldór IGljan Laxness
rithöfundur, Páll ísólfsson organ-
leikari, Pálmi Hannesson rektor,
Ragnar E. Kvaran rithöfundur,
Sigurður Skúlason magister og
Vilhj. Þ. Gíslason skólastjóri.
Með þessu fyrirkomulagi er þó
alls ekki fyrir það girt, að teknar
verði ritgerðir, sem ekki hefir
verið falast eftir, ef þær falla
saman við skipulag og tilgang
S AMTÍÐ ARINN AR.
Raunsæi er einkenni nútímans.
— SAMTÍÐIN vill verða vett-
vangur raka þeirra manna, sem á
raunsæjum grundvelli og af heil-
um hug vilja vinna að eflingu
þ j óðmenningarinnar.
Verðið á SAMTÍÐINNI er lágt
í hlutfalli við útgáfukostnaðinn.
En lágt verð er höfuðskilyrði
þess, að rit geti náð almennri út-
breiðslu.
Sendum við svo SAMTÍÐINA
út í þeirri von, að henni verði vel
tekið og að hún megi verða að
því gagni, sem henni er ætlað.