Samtíðin - 01.05.1934, Side 26
S A M T í Ð I N
og ánægjulegt sé að fylla það
dýrum húsgögnum. En því fer
fjarri. Sú firra ríkir ennþá hjá
fjölda fólks, að ekki sé hægt að
stofna heimili með minna en
þrem stofum með þrennskonar
húsgögnum. Fyrst og fremst er
stór borðstofa með óþægilegum
og oftast ósmekklegum borðstofu-
húsgögnum, önnur með djúpum,
stoppuðum stólum, þar sem að-
eins koma nokkrir gestir, en fjöl-
skyldan sjálf því nær aldrei, og
loks er svefnherbergi með skraut-
legum hiísgögnum, gerðum úr
dýrasta efnivið, sem völ er á. Þá
er heimilið fullkomið. Slíkt er
hinn mesti misskilningur. Alt
þetta gerir heimilið ekki vistlegt,
í þess stað líkist það mest sýn-
ingarstofum í húsgangaverslun.
Tilgangur heimilisins er að
vera dvalarstaður fjölskyldunnar,
þar sem hún er í frístundum sín-
um, hvílir sig, matast og gleðst.
Heimilið á því fyrst og fremst að
miðast við þessar þarfir. Til þess
að fullnægja þeim þarf eldhús,
dálitla borðstofu, dagstofu og'
svefnherbergi með baðklefa.
Dagstofan, aðal dvalarstaður
heimilisfólksins, á að vera vistleg,
björt, þægileg og rúmgóð, en ekki
sýningarsalur með óþörfum hús-
gögnum. í dagstofunni eiga að
vera hæfilega mörg þægileg sæti,
sem smekklega og haganlega er
fyrirkomið, borð og helst bóka-
liilla með nokkrum bókum, sem
auk þess að þær prýða heimilið,
eiga sinn mikla þátt í að skapa
ánægju á heimilinu. Teppi á helst
að vera á gólfi. Það gefur heim-
ilinu hlýlegan blæ.
Fyrsta og síðasta skilyrðið er
þó, að heimilið sé hreinlegt og
snoturt og beri persónulegan blæ,
sem ber vott um, að alúð sé við
það lögð. Þá unir fjölskyldan sér
heima. GIR.
NýUsk\i dag'Btofau
er stilhrein, björt
og' rúingóö.