Samtíðin - 01.05.1934, Blaðsíða 27
yL
bokmentm oa
is
in
SIGRID BOO
„Selv i tider som disse“.
Oslo 1932.
Sigrid Boo vakti þegar á sér
mikla eftirtekt með fyrstu bók
sinni, „Vi som gaar kjökkenveien“
(á ísl.: „Við sem vinnum eld-
hússtörfin“). Efni bókarinnar
var vinsælt og frásögnin skemti-
leg, enda flaug bókin út. Hún
var þýdd á mörg tungumál, film-
uð og leikin. Kvöld eftir kvöld
liefir hún verið sýnd í leikhúsum
og kvikmyndahúsum víðsvegar
um Norðurlönd og hlotið almanna
hylli.
Aðra bók gaf Sigrid Boo út,
rétt fyrir jólin 1932. Ileitir hún
„Selv i tider som disse“ (á ísl.:
„Þrátt fyrir kreppuna“). Kaup-
endurnir þyrptust í bókabúðirnar.
Hver útgáfan eftir aðra flaug út
á skömmum tíma. Á nokkrum
mánuðum seldust 60 þúsund ein-
tiik. Slík sala mun vera einsdæmi
í Noregi, þegar slept er sölu á
verkum Björnsons, sem gefin voru
út á 100 ára afmæli hans, og
seldust í 70 þús. eintökum.
Sagan segir frá heimilislífi em-
bættismanns í Oslo, sem á mörg
uppkomin börn. — Heimilið er
dýrt í rekstri og eru allmiklir
erfiðleikar á að láta launin
Sigrid Boo.
23