Samtíðin - 01.05.1940, Síða 7

Samtíðin - 01.05.1940, Síða 7
SAMTiOIN Maí 1940 Nr. 62 7. árg. 4. hefti TSLAND ER UNDUALAND dásamleg- ustu andstæðna, heill heimur út af fyrir sig, sem naumast á sinn líka í víðri veröld. Græni liturinn á graslendinu hér er ferskari en ég þekki dæmi lil annars staðar, og hin íslensku fjöll og jöklar veita landi ykkar tignarlegri svip en nokk- ur orð fái lýst“, sagði víðförull útlend- ingur, er ferðast hafði daglangt um Suð- urlandsundirlendið fyrir nokkrum árum. Dessi orð eru rétt tilfærð, því að ég skrifaði þau hjá mér, um leið og þau voru sögð, en á íslensku þýðingunni ber ég ábyrgð. Oft hafa mér flogið þessi orð í hug, síðan þau hrutu af vörum útlend- ingsins. ísland er vissulega heill heimur út af fyrir sig, og ég efast stórlega um, að sú náttúrufegurð fyrirfinnist erlcndis, er megni að gagntaka venjulegan fslend- ing jafn gersamlega og sum fyrirbrigði íslenskrar náttúru hljóta að gera. Fyrir tiltölulega skömmum tíma var ísland lítt numið í tvennum skilningi: Sveitabúskap- urinn bygðist á úreltum aðferðum, sífeldri rányrkju á óræktuðu landi, þegar fráskild- ■ r voru misjafnlega þýfðir túnskikar í kringum sveitabæina. Nýtísku rætkunar- aðl'erðir voru af eðlilegum ástæðum lítt kunnar fram á þessa öld, en nú eru þær ásamt véltækni í vinnubrögðunt í þann veginn að breyta búskap bænda og færa hann í viðunandi horf. Hins vegar áttu landsins börn til skamms tíma eftir að nema landið í þeim skilningi, að kynn- ast því af eigin sjón og reynd og njóta fegurðar þess. I>að landnám er nú að hefjast með tilstyrk bættra samgöngu- t*kja á sjó og landi og eðlilegs áhuga, sem vaknað hefur fyrir ferðalögum í sam- bandi við bíla og vélknúin skip. — ís- lendingar hafa lengst af verið ókunnugir t flestum bygðum landsins utan átthaga sinna, og fáfræði þjóðarinnar gagnvart öræfunum birtist átakanlega í öllum þeim ógrynnum útilegumanna- og triillasagna, er varðveist hafa. Viðhorf æskunnar gagn- vart hinni fögru fósturjörð mótaðist öld- urn saman af fáfræði og beyg eldri kyn- slóðanna. En hátt yfir almúgann gnæfðu fræðimenn eins og Eggert Ólafsson og Björn Gunnlaugsson, svo að aðeins tvö nöfn séu nel'nd. Á herðum slíkra braut- ryðjenda standa svo síðari tíma könnuðir landsins, beint og óbeint. Mér virðist, að viðhorfi íslendinga gagnvart landi voru megi, eftir að kúgunaraldirnar hefjast, skipta 'í þrent. Fyrst ríkir fáfræði og hræðsla, mótuð af harðærum, eldgosum, kúgun, hjátrú o. fl. Því næst hefst nýr áfangi með sköpun ættjarðarkvæðanna á 19. öld. Þau skópu geðþckka meðvitund um landið í hugurn þjóðarinnar, og slíkt hið sama hafa átthagaljóð og kvæði um ýmsa fagra staði gert. Samfara breyttum lifsskoðunum hafa þau stuðlað að því, að eyða óttanum við öræfi og tröll. En veru- leg kynni íslendinga af landi voru hefj- ast fyrst af eigin sjón og reynd mcð bætt- um vegum, landnámi bílsins og síðast en ekki síst fyrir áhrif og atbeina F e r ð a- félags Islands. Slík' kynni gátu ekki skapast á lestaferðum né vergangi fyrri alda. Nú er það hlutverk héraðsskólanna að miðla æskunni í dreifbýlinu hollri og hagnýtri þekkingu á landinu, sögu þjóð- arinnar og tungu, sem alt á að sýna þar í lífrænu samhengi. Sú þjóð, sem á sér hinn fagra og fornhelga Þingvöll, auðnir og hlýleik Þjórsársdals, fjölbreytni Þórs- mcrkur, tign Eyjafjalla, töfra Hallorms- slaðaskógar, sérkennileik Ásbyrgis, sæld Mývatnssveitar, sagnofna víðáttu Skaga- fjarðar og hið glæsilega Horgarfjarðar- hérað, svo að fáein nöfn séu nefnd af handahófi, og á sér auk þess óbygðir vors víðáttumikla lands, mun jafnan geta sótt sér mentun og lífsþrótt í skaut sinnar eigin fósturjarðar.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.