Samtíðin - 01.05.1940, Qupperneq 14

Samtíðin - 01.05.1940, Qupperneq 14
10 SAMTÍÐIN Drengurinn litli, sem dó Smásaga eftir HANS KLAUFA Niðurl. Ú er ég aftur sestur við skrif- borðið mitt, lil þess að drepa tímann. Það, sem ég kalla skrif- borð, er aðeius, fernisérað furuborð, en það gerir sama gagn og skrif- borð. Ég læt bugann reika yfir liðn- ar stundir og' rifja upp það mark- verðasta, sem á daga mína hefur drifið. Auðvitað dvelur bugurinn lengst við það, sem mér er minnis- stæðast, og það er Erla. Erla er stúllcan, sem ég' elskaði einu sinni, en það er svo óralangt síðan. Það eru ekki til nein orð í mæltu máli, er týst geti Erlu eins og' hún var, þegar ég elskaði liana. Erla var upp yfir allar lýsingar Iiafin. Um tíma vorum við eiginlega trúlofuð, en það slitnaði upp úr því. Ég gleymi aldrei einu kvöldi, er við vorum saman. Það er frá því kvöldi, sem ég taldi, að við værum heitbundin hvort öðru. Þó nefndi hvorugt okk- ar trúlofun eða hjúskap á nafn það kvöld. Þetta var um vor. Vorkvöld. Ég hitti hana af tilviljun niðri i Austurstræti, og við gengum suður með Tjörninni. Sjaldan bef ég séð Tjörnina fallegri en þetta kvöld. Hún var sléll eins og spegilgler. þakin litfögrum myndum. Mér fanst öll hamingja tífsins speglast í blá- um vatnsfletinum. Ástalíf fuglanna var að vakna, og sumar endurnar voru farnar að reisa bú sin í gró- andi sefinu. Við Erla vorum þögul. Ivyrð og fegurð kvöldsins böfðu seiðandi álirif á okkur. Svo var annað, sem einnig olli þögn okkar. Það var ástin. Vorið er tími ástar- innar. Eftir göngu okkar fórum við heim í berhergið mitt. Ég lief aldrei lifað neina nótt, sem var eins fljót að líða og þessi nótt. Ilenni verður ekki með orðum lýst. Þegar ég fylgdi Erlu lieim, mættum við verkamönn- um, sem voru að faraáil vinnu sinn- ar. Verkamenn eru árrisulir, og ungu, ástföngnu fólki er gjarnt á að gleyma tímanum. Eftir þetla hitti ég Erlu oft og mörgum sinnum, en þó er mér um- rædd nótl ávalt minnisstæðust. Eft- ir þvi, sem fram liðu stundir, kóln- aði Iicldur á milli okkar. Að síð- ustu skrifaði hún mér fáeinar fljót- færnislegar línur og sagðist telja það réttast, að við sæjumst ekki framar. Ég svaraði ekki bréfi henn- ar. llún hefur eflaust lvaft á réttu að standa. Eftir þetta sá ég bana ekki í langan tíma, en ég heyrði hennar getið öðru hvoru. Mér var sagt, að hún væri lauslát, hefði í mörg horn að líta. Mér féll þungt að trúa þessu um Erlu, en ég trúði því samt. Ég vissi, að hún var svo örgeðja. Seinna hitti ég hana í húsi vinar míns. Það var seint um kvöld, eða réttara sagt að nælurlagi. Ilún kom þangað með fjölda af ungu

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.