Samtíðin - 01.05.1940, Page 35
SAMTlÐIN
31
Nýjar
b erlendar bækur <J
Leo Hansen: Situationen er kritisk.
- Þetta er mjög fróðleg ferðabók,
er lýsir dýralífi og lífsskilyrðum á
ísbreiðum Grænlands að vetrar-
lagi, og er bókin prýdd mörgum
ágætum myndum. Verð ób. d. kr.
7.50.
Peter Freuchen: Sibiriske Eventyr.
— Skáldleg ferðabók, án mynda,
um Rússland og Sibiríu. P. F. á sér
góðan penna og næmt auga. Yerð
ób. d. kr. 7.50.
William Faulkner: De vilde Palmer.
— Höfundur þessarar bókar er
einn af efnilegustu skáldum Banda-
ríkjanna, þeim, er teljast til vngri
kynslóðarinnar. í þessari bók eru
tvær frásagnir. Önnur segir frá
ungum læknanema, er hleypur frá
námi sínu með giftri konu, en hin
frásögnin er um fanga, er slepp-
ur úr fangelsi af völdum flóðs.
Hann lendir í miklum ævintýrum.
Loks tekst honum að komast i
tugthúsið á ný, enda liefur hann
nú sannprófað, að hvergi annars
slaðar er næði að fá. 308 bls. Verð
ób. d. kr. 7.75.
Robert Briffault: Europa. — Þessi
skáldsaga gerist fyrir 1914, áður eu
álfa vor varð brjáluð í fyrra skift-
ið á þessari öld! I bókinni kynn-
umst við fjölda persóna, m. a. ung-
um, ítölskum blaðamanni, Benito
Mussolini að nafni, og ýmsum
Þjóðverjum, sem aldrei segjast
ætla í strið, en berjast skönnnu
síðar eius og betjur. 410 bls. Verð
ób. d. kr. 9.75, ib. kr. 15.75.
Mika Waltari: En frennned kom lil
Gaarden -— Á finskum bóndabæ
býr kona ein með manni sínum,
sem er drýkkjurútur, og gömlum
frænda sínum. Einn dag kemur
þangað ungur maður. Konan fellir
hug til hans, en er bóndi kemst að
þvi, drepur liann unga manninn.
Konan ræður nú manni sínum bana
og dysjar liræ bans i mýri. En
morðið kemst upp, og konau er
dæmd af dómara og almennings-
áliti. Merkileg bók. 279 bls. Verð
ób. d. kr. 6.75, ib. kr. 11.00.
Albert Viksten: Tömmer. Þessi bók
segir frá binni stórfenglegu iðju i
einu af lielstu viðarböggsverum
Svíþjóðar, þar sem áin tekur við
trjánum og fleytir þeim til sögun-
armyllanna. Við kynnumst ólg-
unni, sem stóriðjan skapar i hug-
um fólksins — athöfnum, öfuud
og rógi. 201 bls. Verð ób. d. kr.
4.50, ib. kr. 5.50 og 8.00.
J. Schlanbusch: Eftir Konsultations-
tid. — í þessari bók segir gamall,
danskur læknir frá ævintýrum lífs
síns,og er frásögnin vermd af þeirri
skapgerð, sem gerir Dani aðlað-
andi, en það er hin góðlátlega
fyndni og léttlyndi, er einkennir
þá i bliðu og stríðu. 131 bls. Verð
ób. d. kr. 5.00.
Henning 'Höirup: Fangen — vort
Medinenneske. — Þessi bók f jallar
um líf fanganna, frá því að hurð
fangelsisins lykst á bæla þeim, og
þar til þeim er blevpt út í þjóðfé-
lagið á ný. • Athyglivert rit. 216
bls. Verð ób. d. kr. 5.75.