Samtíðin - 01.03.1941, Page 7

Samtíðin - 01.03.1941, Page 7
SAMTiÐIN Mars 1941 Nr. 70 8. árg., 2. hefti HINN GLÖGGSKYGNI fjármálamaður Aron Guðbrandsson, forstjóri Kaup- hallarinnar, hefur skrifað eftirfarandi leiðara um íslensku krónuna fyrir Sám- tíðina: ..Heyrst hafa raddir um það, að íslenska krónan skipaði ekki jafnveglegan sess og 'era ber, miðað við afkomu þjóðar vorr- ar og aðrar aðstaeður, er til greina koma Vlð mat a verðgildi peninga. Til þess að geta glöggvað sig á sa.nnvirði íslenskra Peninga verða menn að gera sér ljóst, 'aö það er, sem ákvarðar verðgildi eirra. Samkvæmt íslenskum gjaldeyris- °gum er óheimilt að flytja íslenska pen- 'nga út úr landinu. Það er bannað að Pfta 'S*ens*ía seðla í viðskiptum erlendis. menn koma með þá inn í erlendan anka og biðja um útlenda mynt í skipt- U,m tjr*r bá, er ósennilegt, að þau við- S^lph takist. vegna þess að seðlarnir eru ekki verslunarvara utan íslands. Ég hef e i orðið þess var, að gengi íslenskrar fonu sé skrásett á þeim stöðum erlend- ís, þar sem gengi peninga er skráð. Yerð- g> i hennar kemur því ekki fram opin- er ega í útlöndum, en þó má fá upplýs- ingar um það eftir krókaleiðum. Skuldir slendinga erlendis eru yfirleitt reiknað- i mjnt annarra þjóða, og. vitanlega en a þær að greiðast í erlendri mynt. s enska krónan er þar ónóg. En hvað er a ronan okkar? Fyrst og fremst íslensk ers unarmynt. Hún er mælikvarði á það, nvað mönnum beri að fá fyrir vinnu sína g "e mikils virði vörur séu á íslensk- um vettvangi. Það ætti því að vera inn- „•i ,1, lsmai Islendinga sjálfra, hvert verð- g> oi íslensku krónunnar er. Ef einhver end þjóð ætti hagsmuna að gæta hér . andl °t’ kæmi fram með kröfu um, að viö miðuðum verðgildi íslenskrar krónu 'agsmuni hennar, væri slíkt vitanlega sama og þessi erlenda þjóð gerði kröfu til að hafa áhrif á innanríkismál íslend- inga. Ef t. d. enska ríkisstjórnin gerði kröfu til þess, að við greiddum fleiri krónur fyrir sterlingspundið en sannvirði gæti talist, væri slíkt að sjálfsögðu krafa um, að við tækjum að okkur að greiða nokkurn hluta af herkostnaði Breta hér á landi. Nú er verðgildi íslenskrar krónu fremur miðað við dollar en sterlingspund, en flestar vörur, sem nú eru keyptar hingað, eru annað hvort greiddar í doll- urum eða pundum. Það hefur því áhrif á vöruverð í landinu, hve margar krónur eru greiddar fyrir dollara og pund. Versl- unarstéttin og launþegar hljóta að kjósa hátt gengi á íslenskri krónu, en slíkt kem- ur í bág við hagsmuni útgerðarmanna og anna.rra íslenskra framleiðenda. Forsjál ríkisstjórn verður vitanlega að sjá öllum borgið, þegar verðgildi peninganna er á- kveðið. En við hvað ber að rniða? Á tím- um, þegar framleiðendur stórgræða, en allir aðrir eru að sligast undir síhækk- andi vöruverði, mælir alt með því, að verðgildi krónunnar sé hækkað til hags- bóta fyrir þjóðarheildina. Með því á að leita jafnvægis á gróðanum og dýrtíðinni, þannig að framleiðslan skili viðunandi arði, en almenningi sé ekki misboðið með óhóflegu verði á lífsnauðsynjum.“ ^AMTÍÐIN væntir þess, að þessari hóf- kj samlegu viðreisnartillögu Arons Guð- brandssonar verði gaumur gefinn, enda mun hún að flestra dómi mjög skynsam- Ieg. Gengislækkanirnar voru að voru áliti neyðarráðstöfun, enda þótt nauðsynlegar kunni að hafa verið, eins og komið var fjárhag íslendinga. En hvað segja menn annars um það, að sterlingspund skuli nú vera skráð á rúml. 26 ísl. krónur? Hvað skyldu amerískir fjármálamenn segja um slíkt hlutfall milli punds og dollars?

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.