Samtíðin - 01.12.1952, Side 31
SAMTÍÐIN
25
við sögu. Höfundur er sjálfur aðal-
söguhetjan, því að þetta er ég-bók,
en auk hans verða minnisstæð þau
meistari Ásgrímur og frú Svala. Með
frá Svölu hefur íslenzkum bók-
menntum hætzt konumynd, dregin
fáum, en þeim mun haglegri drátt-
um. Hver gleymir þessari óræðu
menntakonu, þar sem hún situr í
dyngju sinni við blátt ljós í návist
skáldsins og meistara Ásgrims? Hvcr
man hana ekki alla daga og kennir
návistar hennar í lokakafla sögunn-
ar?
Heiman eg fór er eins og gömul
minning, sem klappar undurþýtt á
vanga. Nú geta vísindamenn framtíð-
arinnar spreytt sig á að greina þar
veruleik frá skáldskap, leita að fyrir-
myndum persónanna o. s. frv. Stefán
Einarsson hefur gert þeim afleitan
grikk með því að koma handritinu
allt of fljótt á framfæri! Fyrir vikið
verður nú enginn þeirra til þess að
finna það eftir mörg herrans ár. Þá
hefur höfundur sjálfur firrt ritskýr-
endur framtíðarinnar kærkonmu
vandamáli: tímasetningu þessarar
sögu. Mér kæmi ekki á óvart, þótt
þeir mundu hafa talið hana 20—
25 árum yngri en höfundur segir i
formála, svo íturþroskað skáldverk
er hér á köflum um að ræða. En allir
þeir, sem ekki eru ritskýrendur og
lifa i þeirri trú, að fullkominn skáld-
skapur sé einn hinn dásamlegasti
veruleiki, sem hugsazt getur, eru
þakklátir fyrir að hafa eignazt þessa
bók til þess að geta gleymt við
hana einu eða tveim skammdegis-
kvöldum 1952.
Seljum
myndir og málverk og
margs konar gjafavörur.
/*«r) nýjasta:
Framleiðum mikið úrval af alls konar
rammalistum og myndarömmum,
máluðum og iskreyttum eftir sænskum
fyrirmyndum.
Sendum gegn póst-
kröfu um allt land.
RAMMAGERÐIIM H.F.
HAFNARSTRÆTI 17
FRAMKVÆMUM:
Bílaviðgerðir,
Bílasmurningu,
Bílasprautun.
SELJUM:
Bílavarahluti,
Bílaolíur,
Loftþrýstiáhöld,
Hjóldráttarvélar
(amerískar og þýzkar)
og Beltisdráttarvélar.
S. Sk.