Fréttablaðið - 28.12.2009, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MÁNUDAGUR
28. desember 2009 — 305. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
JÓLAPAPPÍRINN hefur líklega hrannast upp á heimilum undanfarið. Vert er að nefna að jólapappír
má ekki setja í pappírsgáma. Sterkir litir pappírsins og
þá sérstaklega gyllingin og glimmerskrautið gera það
að verkum að hann er ódrjúgur til endurvinnslu. www.
sorpa.is
„Margir eru langt frá sínu besta formi yfir háveturinn og eru þá frekar í því að byggja upp þrek og slíkt. Þannig að almennt tekur fólk aðallega þátt til að hafa gaman af þessu,“ segir Margrét Héðinsdótt-ir, formaður frjálsíþróttadeildar ÍR. Árlegt gamlárshlaup félagsins fer nú fram í 33. sinn, en hlaupið hefur verið óslitið frá árinu 1976.Að sögn Margrétar hefur hlið með tí
og frumlegustu. Ég man til dæmis eftir að jólasveinar og snjókarlar hafi hlaupið, og þetta minnir oft á dimmisjónir í menntaskólum.“Fyrsta árið sem hlaupið fór fram voru þátttakendur tíu tals-ins, en árið 1991 voru þeir í fyrsta sinn fleiri en hundrað. Síðan hefur þátttakan aukist jafnt og þétt ogvarð metþáttt k
frjálsum íþróttum yfirhöfuð. Til að mynda hefur þátttakendum á krakkamótinu okkar í ÍR fjölgað úr hundrað í sex hundruð á örfá-um árum.“
Rásmarkið er við gatnamót Hólavallagötu og Túngötu. Hlaup-ið er vestur í bæ um Tú
Margir langt frá sínu besta formi yfir veturinn
Gamlárshlaup ÍR fer fram í 33. sinn í ár. Metþátttaka var í hlaupinu um síðustu áramót, en þá tóku alls
760 þátt. Formaður frjálsíþróttadeildar ÍR segir fjölgunina ekki einskorðast við hlaup.
Margrét segir algjöra sprengingu hafa orðið í fjölda þátttakenda í gamlárshlaupinu á síðasta ári, en þá tóku 760 þátt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
“teg. Karmazyn - glæsilegur push up í D,DD,E,F skálum á kr. 6.885,-”
“teg. Olimpia - mjög flottur push up í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 6.885,-
NÁM
VEÐRIÐ Í DAG
Belja &
hlið
GÓÐ NÆRING,
FYRIR HRESSA KRAKKA!
Ó
· 1
29
64
MARGRÉT HÉÐINSDÓTTIR
Heldur utan um 33.
áramótahlaup ÍR
• áramót
Í MIÐJU BLAÐSINS
Barnadagurinn
endurvakinn
Sr. Kristján Valur Ing-
ólfsson segir kirkjuna
hafa unnið að því að
endurvekja barna-
daginn.
TÍMAMÓT 34
Vaxandi frost þegar á daginn
líður. Hægur vindur víða um land
og él með köflum. Hvessir og fer að
snjóa NA-lands í kvöld.
VEÐUR 4
-2
-7
-8
-6-4
60 lítrar af blóði
Ólafur Helgi Kjart-
ansson, sýslumaður
á Selfossi, er búinn
að gefa 60 lítra af
blóði.
FÓLK 54
VILHJÁLMUR ÁRNI SVEINSSON
Fékk gat á hausinn
í ræktinni
Villi WRX lætur lögfræðing skoða málið
FÓLK 54
VIÐSKIPTI Samkeppniseftirlit-
ið hefur sett skorður við skipan
stjórnarmanna í Arion banka og
Íslandsbanka. Skorðurnar eru sett-
ar vegna þess að sömu kröfuhafar
kunna að verða áberandi í báðum
bönkum.
Ákvörðunin kemur í kjölfar
samkomulags ríkisins og skila-
nefnda gömlu bankanna um að
gömlu bankarnir eignist þá nýju að
mestu. Skilanefndir beggja banka
hafa gengist undir skilyrðin, en í
þeim felst meðal annars að þær
tryggja að í stjórn hvors banka
sitji einstaklingar sem óháðir séu
öðrum viðskiptabönkum og spari-
sjóðum sem starfa á sama mark-
aði.
Skipan stjórna bankanna er
háð samþykki Fjármálaeftirlits-
ins (FME). Samkvæmt heimildum
blaðsins hefur þegar verið lögð
fram tillaga að skipan stjórnar
Íslandsbanka sem verið er að fara
yfir. Samkvæmt henni verður Jón
Sigurðsson, fyrrverandi stjórnar-
formaður FME, formaður stjórnar
Íslandsbanka.
Enn hefur ekki verið lögð fram
tillaga að stjórnarskipan Arion
banka, en búist er við að það verði
gert fljótlega á nýju ári. Þó liggur
fyrir að skilanefnd Kaupþings til-
nefni fjóra stjórnarmenn og ríkið
einn. Af þeim fjórum sem sitja
í stjórn fyrir hönd stærstu eig-
enda verða tveir íslenskir og tveir
erlendir sérfræðingar. Gert er ráð
fyrir að einn komi úr skilanefnd-
inni.
Gunnar Þ. Andersen, forstjóri
FME, staðfestir að mál tengd
stjórnarskipan Arion banka og
Íslandsbanka hafi verið í ferli
innan FME í nokkurn tíma. Hann
segir báða banka hafa látið af hendi
miklar upplýsingar vegna yfirtöku
gömlu bankanna á þeim nýju. Ferl-
ið sé það sama í báðum bönkum
þótt ef til vill séu þeir ekki alveg
samstíga í því í tíma. „En báðir eru
á lokaspretti. Nákvæmari en það
get ég ekki verið,“ segir hann.
Gunnar segir þó ljóst að hvað
eignarhald bankanna varði þá
séu þar að hluta til sömu eigend-
ur á ferðinni. „Kröfuhafarnir voru
náttúrlega að stórum hluta lánveit-
endur til beggja banka á sínum
tíma. Síðan hefur eignarhald bank-
anna líka eitthvað breyst, því sjóð-
ir hafa keypt skuldabréfin og því
ekki alveg sami eigendahópur að
báðum bönkum,“ segir hann, en
áréttar um leið að FME vaki yfir
því að ekki verði skipaðir stjórnar-
menn sem hagsmuni eigi að gæta
í báðum bönkum, skilyrði Sam-
keppniseftirlitsins verði uppfyllt.
Skilanefndir bankanna fara
með eignarhlut kröfuhafanna í
heild þar til gengið hefur verið
frá nauðasamningum við þá. Það
ferli gæti, samkvæmt heimildum
blaðsins, staðið langt fram á næsta
ár. Komi þá að nýju til breytinga
á stjórn bankanna verða þær líka
háðar samþykki FME. - óká
Setja skilyrði
vegna tengsla
Samkeppniseftirlitið setur skorður varðandi skip-
an stjórnarmanna í Arion banka og Íslandsbanka.
Sömu kröfuhafar eru áberandi hjá báðum bönkum.
STJÓRNMÁL „Þetta hefur bara sinn
gang. Hver og einn verður að gera
það upp við sig hvernig hann greiðir
atkvæði.“ Þetta segir Árni Þór Sig-
urðsson, þingflokksformaður VG,
spurður hvort hann hafi gert liðs-
könnun í sínum röðum vegna Icesa-
ve-málsins.
Þriðja umræða málsins hefst
í dag en óvíst er hvort hún tekur
daginn, tvo eða þrjá. Ríkisstjórnin
hefur ekki meirihluta fyrir málinu
í hendi þar sem enn er óvíst hvernig
nokkrir þingmenn VG munu ráðstafa
atkvæði sínu. Til dæmis leikur vafi á
hvað Ásmundur Daðason mun gera.
Ekki náðist í hann í gær.
Óvíst er líka hvað Þráinn Bertels-
son gerir. Í samtali við Fréttablað-
ið í gær sagðist Þráinn enn telja að
best væri að ganga frá samningnum
en hann færi til umræðunnar með
opinn huga.
Gunnar Bragi Sveinsson, þing-
flokksformaður Framsóknarflokks-
ins, sagði stjórnarflokkana hafa
málið í hendi sér og kvaðst trúaður á
að málinu lyki fyrir áramót. Skoðun
framsóknarmanna sé engu að síður
sú að málið sé hvorki fullkannað né
-rætt, sífellt komi fram nýjar upplýs-
ingar sem varpi fram nýjum, áleitn-
um spurningum.
Guðbjartur Hannesson, formaður
fjárlaganefndar, er ósammála því að
nýjar upplýsingar feli í sér ný tíðindi;
fremur sé um ný sjónarhorn að ræða.
Nú beri að greiða atkvæði. „Við erum
að leggja mat á spádóma og horfur
sem breytast eftir því sem tíminn
líður.“ Það réttlæti hins vegar ekki
að beðið sé lengur. - bþs / kh
Stjórnarþingmenn ganga rólegir til þriðju umræðu um Icesave-málið í dag:
„Þetta hefur bara sinn gang“
Kröfuhafarnir voru
náttúrlega að stórum
hluta lánveitendur
til beggja banka á sínum tíma.
Síðan hefur eignarhald bankanna
líka eitthvað breyst.
GUNNAR Þ. ANDERSEN
FORSTJÓRI FJÁRMÁLA-
EFTIRLITSINS
Spennan magnast
Chelsea tapaði stigum
og Manchester United
minnkaði forskot-
ið í tvö stig.
ÍÞRÓTTIR 46
Nýja Ísland, óskalandið
– hvenær kemur þú?
Stefán Jón Hafstein segir að hinn
svikni, reiði og vanmáttugi verði
að fá hlutverk í sköpun Nýja
Íslands.
VENDIPUNKTAR 16
FLUGELDASALAN UNDIRBÚIN Flugeldasala hjálparsveitanna hefst í dag. Þær Magnea
Heiður Unnarsdóttir og Brynja Ingólfsdóttir hjá Hjálparsveit skáta í Kópavogi voru í
óðaönn að undirbúa söluna þegar ljósmyndari Fréttablaðsins átti leið hjá.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM