Samtíðin - 01.11.1955, Síða 10

Samtíðin - 01.11.1955, Síða 10
(i SAMTÍÐIN lag sitt í alls konar „poka“-fötum og verði að tízkufyrirbrigðum á kostn- að þess kvenlega, eðlilega og upp- runalega, sem karlmenn dá og elska mest af öllu. ★ Vetrartízkan 1955/56 Hið lieimsfræga tízkuhús mun framvegis sem áður verða rekið und- ir nafni Jaques Fath. Stefnu þess, að undirstrika hið fegursta í vaxtarlagi konunnar, mun haldið óhreyttri. — Mittið á kjólnum er þar, sem vera ber. Kjólarnir eru flegnir í hálsinn og körfulaga til að prýða vöxtinn. Axl- irnar eru breikkaðar með fellingum. „Af því að konur sitja mikið í sam- kvæmum og lítið ber því á pilsum þeirra, verður að leggja sérstaka rækt við efri hluta kjólanna,“ segir frú Fath. Hún hefur að þessu sinni skapað vetrartízkuna samkvæmt tveim línum, sem mjög erfitt er að gefa íslenzk nöfn. Sú fyrri, er helzt mætti kalla topplínuna, byggist á belgermum á síðdegisdröktum og kvöldkápum. Hin línan, eldingarlín- an svonefnda, dregur nafn sitt af skökkum eða x-mynduðum hnappa- röðum óg skálhöllum fellingum. Dag- kjólar og kápur eru fremur þröngar. Kjólasíddin er 35 sm frá gólfi. Káp- ur eru ýmist klukkulaga eða með sígildu frakkasniði og falla hér um bil að líkamanum. Ermarnar eru skemmtilegar, djúpt ísettar, víkka Vel klædd kona kaupir hattana hjá okkur. HATTAVERZLUN ÍSAFOLDAR H.F. Bára Sigurjónsdóttir, Austurstræti 14. Sími 5222. upp eftir og eru þar skreyttar dýr- um skinnum. Loðskinn eru mikið í tízku, líka á vetrarkjólunum. 2. ráð til að karlmönnum lítist á þig. LÆRÐU AÐ NOTA augun. Láttu þau tala. Augun eru gluggar, sem flestir karlmenn geta greint dulda kynhvöt gegnum. Augu þín geta lát- ið í ljós margvíslegar tilfinningar, án þess að þú mælir orð frá vörum. Karlmenn verða oft frá sér numdir við fyrsta tillit stúlku, sem kaim að beita augunum. Ef þú vilt þjálfa augu þín og gera þau máttug, skaltu taka þér stöðu fyrir framan spegil og byrgja allt andlitið nema þau. Reyndu svo að finna til ástar, haturs, angistar, ör- væntingar, gleði, sorgar eða ástleitni, og láttu augun jafnframt túlka allar þessar tilfinningar. Með því að gera þessar æfingar nokkrum sinnum verða augu þín smám saman svo lcikin í listinni, að þau geta í einu vetfangi túlkað hverja tilfinninguna el'tir aðra. Þú kemst brátt að raun um, að þau hafa öðlazt seiðandi mátt, sem ekkert stenzt fyrir. Við birtum fleiri ráð í næstu heft- um. Skrifaðu okkur, hvernig þetta og 1. ráðið í seinasta hefti hafa gef- izt, þegar þú hefur orðið vald á augnaráði þínu. GULLSMIÐIR TRÚLOFUNARHRINGIR, 14 og 18 karata, STEINHRIN GIR, GULLMEN. Steínþór og Jóhannes, Laugavegi 30. Sími 82209.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.