Samtíðin - 01.11.1955, Qupperneq 23
SAMTÍÐIN
19
Suni tíöarhjón in
GAUKUR litli Krummason stækk-
aði og hló. Hann var orðinn 10 mán-
aða og sagði bæði mamma og baba
— auk þess sem hann bablaði einhver
ósköp, sem enginn skildi. Handfljót-
ur var bann og ekki seinn á sér, ef
hann sá eitthvað, sem honum leizt
vel á. Svala vildi banna syni sínum
og kenna honum að hlýða, en það var
eins og að koma við hjartað í
Ki'imuna, enda lét hann allt eftir hon-
um.
Svala: Uss! Gaukur láta kyrrt. (En
barnið gegndi því ekki. Það hafði
lcomið auga á ýmsa smámuni, sem
voru á litlu borði. Á horðinu var dúk-
ur. Barnið gerði sig líklegt til þess að
taka í hornið á dúknum).
Krummi: Láttu krakkaangann eiga
sig. Hann hrekkur við, þegar þú
kallar svona hastarlega á hann. — Ég
held, að hann megi skoða þetta gling-
ur þitt.
Svala: Glingur mitt! Ef það væri
draslið þitt, þá myndirðu segja eitt-
hvað annað. — Nei, annars. Þú
myndir ábyggilega lofa honum að
rífa og tæta. Þú lætur allt eftir hon-
um og það, sem verst er, að þú lofar
honum að gera það, sem ég er búin
að banna honum.
Krummi (Dæsir): Jæja. -— Ég er
VÖNDUÐ FATAEFNI
ávallt fyrirliggjandi, einnig karnbgarn í
samkvœmisföt. Hagstætt verð.
ÞORGILS ÞORGILSSON, KLÆÐSKERI
Hafnarstræti 21 uppi. Sími 82276.
Framkvæmum hvers konar járn-
iðnaðarvinnu fyrir
Sjávarútveg,
Iðnað
og Landbúnað
Seljum og útvegum hveis konar
efnivöru til málmiðnaðar.
Hverfisgötu 42, sími 82422.