Samtíðin - 01.02.1953, Qupperneq 7

Samtíðin - 01.02.1953, Qupperneq 7
1. hefti 20. árg, Nr. 189 Febrúar 1953 ÁSKRIFTARTÍMARIT UM ISLEINZK OG ERLEND MENNINGARMAL SAMTIÐIN kemur 10 sinnum á ári, mánaðarlega nema í janúar og ágúst, samtals 320 bls. Argjaldið er 35 kr. burðargjaldsfrítt (erlendis 45 kr.), og greiðist það fyrirfram. Áskrift getur byrjað hvenær sem er og miðast við síðustu áramót. Úrsögn sé skrifleg og verður að liafa borizt fyrir áramót. Ritstjóri: Sigurður Skúlason, sími 2526, póst- hólf 75. Áskriftargjöldum er veitt móttaka i verzluninni Bækur og ritföng hf„ Aust- urstræti 1 og í bókabúðinni á Laugavegi 39. — Prentuð i Félagsprentsmiðjunni h.f. ÁGÆT LANDKYNNING LESTIR ÍSLENDINGAR, sem dvalizt hafa erlendis, munu einhvern tíma hafa veitt athygli bagalegri vanþekkingu útlendinga á málefnum íslands og ís- lenzkri menningu. Þegar frændþjóðir okk- ar á Norðurlöndum eiga þar hlut að máli, finnst okkur vanþekkingin og misskiln- ingurinn óviðkunnanlegri en ella. Kynn- ing íslands meðal annarra þjóða er nauð- synlegur þáttur íslenzkrar menningarvið- leitni, og þegar útlendir aðilar styðja okk- ur í þeirri viðleitni, er full ástæða til að gjalda þeim þakkir. Danmerkurdeild Dansk-íslenzka félags- ins (Dansk-islandsk samfund, eftirleiðis skammstafað D. I. S.) hefur árum saman unnið að margvíslegri kynningu fslands og málefna þess. Á fyrstu starfsárum fé- lagsins gaf það út nokkur smárit, en síð- an 1928 hefur það gefið út myndarlega árbók, sem vegna dýrtíðar hefur aðeins komið út annað hvert ár síðan 1946. Rit- stjórn árbókarinnar annast ritari D. I. S„ mag. art. Chr. Westergárd-Nielsen, gagn- hollur maður íslendingum, og er hún í höndum hans bæði fróðleg og skemmti- leg. Ég hef hér við höndina árbókina um árin 1948—49, sem kom út 1950. Hún . hefst að vanda á mjög greinargóðu yfir- liti um þjóðhagi íslendinga (afkomu ís- lenzkra atvinnuvega og atvinnufram- kvæmdir) eftir ritstjórann. Tekur ritgerð hans um árið 1948 yfir 55 bls„ og kveðst höf. aðallega hafa notað að heimild árs- skýrslu Landsbanka íslands. Enn fremur skrifar hann um ísland 1949 (bls. 56—85) og er þar m. a. rakin stjórnmálaþróunin fram á árið 1950. Þessar yfirlitsritgerðir W.-N. hafa vakið maklega athygli er- lendis. Þykir mönnum að þeim mikill fengur, en sannast að segja gætum við íslendingar hér heima einnig lesið þær okkur til verulegs gagns. í fyrrnefndri árbók er minningargrein um dr. Sigfús Blöndal bókavörð eftir ritstjórann, rit- gerð um iðnskólana á íslandi eftir Helga H. Eiríksson skólastjóra, þýðing eftir Gyrithe Muller á kafla úr bók Lárusar J. Rists, Synda eða sökkva, ritgerð um skógrækt á íslandi eftir Hákon Bjarna- son skógræktarstjóra, frásögn um Dan- merkurför íslenzkra kennara 1947 eftir Hallgrím kennara Jónasson, ritgerð um jarðhita íslands og hagnýting hans eftir Pálma Hannesson rektor, en auk þess nokkrir ritdómar, skýrsla um starfsemi D. I. S. o. fl. Félagið gengst fyrir fundahöldum í Khöfn og víðsvegar um Danmörku, og eru þar fluttir fyrirlestrar um ísland. Þá hef- ur félagið frá upphafi haft skrifstofu í Höfn, þar sem menn geta lesið ísl. blöð og spurzt fyrir um hvaðeina, er Island varðar. Til dæmis um það, hve langt fyrir- greiðsla D. I. S. nær, má geta þess, að veturinn 1951 barst félaginu beiðni frá

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.