Samtíðin - 01.02.1953, Side 32
28
SAMTÍÐIN
Sendibréf frá íslenzkum kon-
um 1784—1900
FINNUR SIGMUNDSSON lands-
bókavörður héfur nýlega sent frá sér
í bók 32 sendibréf frá ísl. konum, og
hefur Helgafell séð um útgáfuna. Rit-
ar F. S. formála, inngangsorð að
hverju bréfi og lokaorð aftan við
mörg þeirra til skýringar.
I Landsbókasafni eru varðveitt all-
mörg bréf ísl. kvenna frá 18. öld,
enda þótt hópur bréfritaranna væri
þá ekki ýkja stór. Þegar kemur fram
á 19. öld, fjölgar varðveittum bréfum
hins vegar að miklum mun, og frá 20.
öld er til fjöldi bréfa frá konurii,
en fullsnemmt er sjálfsagt að birta
sumt af þeirn enn.
Margrét Finnsdóttir, biskupsekkja
á Hólum í Hjaltadal, skrifar elzta
bréfið í þessu safnriti Hannesi Skál-
holtsbiskupi Finnssyni, bróður sín-
um, 2. jan. 1784. Yngsta bréfið er
frá Kristjönu Hafstein, móður
Hannesar ráðherra, til Ólafs fræði-
manns Davíðssonar, frænda hennar,
dags. í Stykkishólmi 14. apríl 1900.
Elzt bréfritaranna er Valgerður,
„frúin á Grund“, ekkja Gunnlaugs
sýslumanns Briems, komin á tiræðis-
aldur, flestar eru miðaldra, en þær
yngstu innan við tvítugt. Bréfin eru
þannlg valin, að þau veita furðu
glögga hugmynd um áhugamál,
hugsunarhátt og lífsbaráttu ísl. lcven-
skörunga frá því í Móðurharðindum
ÓSKAR SÓLBERGS
feldskurðarmeistari.
• Klapparstíg 16. — Sími 7413.
Gólfteppagerðin
Sími 7360
Barónsstíg — Skúlagötu — Reykjavík
♦
Framleiðum ávallt hina
sterku og viðurkenndu Sís-
al gólfrenninga úr fiski-
línum í mörgum litum og
breiddum.
♦
Höfum einnig sölu á flos-
renningum og teppum úr
íslenzkri ull í ýmsum
gerðum og mynztrum.
♦
Fjölbreýtt
■íi'val
vefnaðarvörii
jafnan
fyrirliggjandi
♦
íslenzk- erlenda
verzlunarfélagið
Garðastræti 2. Sími 5333.
Alls konar loðskinnavinna.