Samtíðin - 01.02.1953, Side 20

Samtíðin - 01.02.1953, Side 20
16 SAMTÍÐIN 99Flugvcíin er mitt annað hcimili, og íar- þegarnir cru mcr eins og kasrhomnir gestir“ SAMTAL VIÐ KRISTÍNU SNÆHÓLM FLUGFREYJU ÞEIR, SEM fevðazt hafa nokkuð að ráði með flugvélum Flugfélags Islands, kannast áreiðanlega flestir við Kristínu Snæhólm, þá flugfreyj- una, sem lengst hefur starfað hjá fé- laginu og þar af leiðandi veitt flest- um aðhlynningu á vegum íslenzkrar flugþjónustu. Ungfréi Snæhólm átti um seinustu áramót 6 ára starfsaf- mæli hjá F. I., og áttum við þá eftirfarandi samtal um störf hennar. „Hvaða undirbúningsmenntunar hafið þér notið?“ „Ég stundaði nám í Menntaskól- anum á Akureyri og lauk þar gagn- fræðaprófi vorið 1939. Foreldrar mínir fluttust frá Akureyri til Reykjavíkur árið 1938, en ég sá ekki höfuðstaðinn fyiT en vorið 1939 og hafði þar þá aðeins hálfsmánaðar viðdvöl, því að síðan fór ég til Nor- egs og var í Osló fram i marzbyrjun 1940. Þá var stríðið skollið á, svo að ég tók það ráð að fara heim með „Lagarfossi“. Oft verður mér hugsað til þeirrar heimferðar, þegar við Þannig veitir þessi bréfaskóli nú kennslu í allmörgum tungumálum, en auk þess svo ólíkum greinum sem siglingafræði, skák, bragfræði, vélfræði o. s. frv. Hin sívaxandi þátt- taka í náminu bendir ótvírætt til þess, að bréfaskólinn hafi vinsælu menn- ingarhlutverki að gegna. fljúgum milli Oslóar og Reykjavík- ur á fáeinum ldukkustundum. Hún tók nefnilega þrjár vikur, að vísu með nokkurri viðdvöl í Khöfn. Við rötuðum í það ævintýri að festast í ís á leiðinni milli Oslóar og Hafnar og sátum þar föst í 5 daga. Þetta var i bezta veðri, og það amaði svo sem ekkert að okkur. Suma dagana geng- um við meira að segja út á ísljreið- una og tókum myndir. Loksins kom svo ísbrjótur frá Khöfn og ruddi okkur braút út úr ísnum, og eftir það gekk ferðin greiðlega. Svo var ég heima öll stríðsárin og starfaði sitt af hverju, en aflaði mér jafnframt frekari menntunar, stundaði m. a. enskunám á kvöldnámskeiði á veg- um háskólans. Þegar stríðinu lauk vorið 1945, fór ég til Randaríkjanna og dvaldist í New York og San Francisco í hálft annað ár. Stundaði ég þar menntaskólanám, en ferðað- ist auk þess talsvert um Randaríkin og Kanada“. „Hver voru tildrögin til þess, að þér gerðuzt flugfreyja?“ „Meðal annars þau, að þegar ég kom heim í árslok 1946, hafði ég engu sérstöku starfi að að hverfa, en átti mér hins vegar allmikla ferðaþrá, eins og þér skiljið eftir alla þessa útivist. Þegar svo Flugfélag Islands auglýsti eftir flugfreyju i ársbyi'jun 1947, sótti ég ásamt eitt-

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.